Vikan - 27.03.1980, Blaðsíða 19
6. hluti
veist. er það ekki, að Pamela bjó hjá
^kkur þangað til hún giftist föður
þínum?
Vivien var heima i skólaleyfi og hún
eyddi mörgum klukkutimum i útreiðar á
Diamond, hestinum sínum. Við vildum
aldrei að hún færi mjög langt í burtu.
Það var ennþá — ja. órólegt — þar um
slóðir.
En hún hlýddi þessu ekki alltaf, þegar
hún var í þannig skapi. Pamela var orðin
áhyggjufull því hún hafði ekki séð hana
góða stund. Svo þess vegna gekk hún af
stað til að svipast um eftir henni.
Manstu eftir býlinu?" spurði Sara
frænka. „Manstu eftir afleggjaranum
frá aðalveginum. sem lá til allra býlanna
i kringum okkur? Eða eftir einka-
veginum. sem lá svo heim að okkar
býli?”
Ef ég lokaði augunum gat ég séð þetta
■fyrir mér; við afleggjarann var
hvitmálaður staur. sem á voru negld
skilti nieð nöfnum bændanna, hvert
ofan við annað, og svo kom vegurinn
fimm milna langur, þangað til komið var
að einkaveginum heim til frænda mins.
en sá vegur var um það bil mila á lengd.
Svo mundi ég eftir tvöföldu járnhliðinu
og tröppunum yfir girðinguna við hliðið
og eftir trjánum sem voru meðfram
akveginum.
„Já," svaraði ég, „ég man eftir þvi."
„Á einum stað. nálægt hliðinu. gat
Diamond stokkið yfir girðinguna. en það
var hættulegt og við vorum búin að
banna Vivien að láta hann stökkva
þarna."
Sara frænka hélt þreytulega áfram:
„Pamela hlýtur að hafa fengið
einhvern fyrirboða. þvi hún spurði
N'garja, kokkinn okkar. og allt hitt
þjónustufólkið, hvort það hefði séð
Vivien áður en hún fór frá húsinu og
hún spurði líka vinnumennina sem hún
hitti á leiðinni.
Einhverra hluta vegna kom Pamela
einmitt að staðnum, þar sem ráðist
hafði verið á mig, rétt eftir að það skeði.
Ég hafði verið ein i bilnum svo ég hafði
engan til að opna fyrir mig hliðið. Ég
skildi bílinn eftir i gangi, opnaði hliðið.
ók i gegn og var nýkomin aftur út úr
biinum, til að loka hliðinu, þegar þetta
skeði.
Mennirnir voru tveir og þeir tuldruðu
eitthvað fyrir munni sér, en þó ég gæti
skilið þó nokkuð í swahili töluðu þeir of
hratt til að ég gæti skilið nema eitt og
eitt orð. Ég spurði hvað þeir vildu og
annar svaraði: „Mwezi, frú." I>eir voru
glottandi og annar þeirra hélt á stórum
bjúghníf.
Ég var að velta þvi fyrir mér, hvort
við gætum notað tvo vinnumenn i
viðbót og hvort ég ætti að senda þá til
Julians —"
„Mwezi." greip ég frani i fyrir henni.
Ég kunni svo til ekkert í swahili. Það er
ekki það mál sem algengast er að heyra i
Zambiu. „Þýðir þaðekki tungl?"
„Jú. það lætur nærri. Það getur þó
líka þýtt mánuður. Það segir sig sjálft
að mennirnir voru ekki eins og þeir áttu
að sér. Það var auövitað alveg
gagnslaust að ætla að ræða við þá svona
á sig komna.”
„Ertu að meina að þeir hafi verið
drukknir?” spurði ég.
„Eða undir áhrifum annarra
vimugjafa. Eða jafnvel dáleiddir.”
Sara frænka hélt áfram: „Ég spurði þá
aftur hvað þeir vildu og þeir gerðu mér
skiljanlegt að þeir ætluðu að klippa af
mér hárið. Ég hef alltaf álitið liklegast
að þeim hafi verið fyrirskipað að ná i
hárlokk af höfði hvítrar konu til að færa
töfralækninum.
Það var enga grintmd að sjá á frant-
komu þeirra og mér fannst ég ennþá
hafa í fullu tré við þá. Annar þeirra var
meira að segja farinn að reyna að semja
við mig og hann sagði að hann ætlaði
ekkert meiða mig. Ég brosti til hans. því
ég vildi fyrir alla muni hafa hann góðan.
„Allt i lagi,” sagði ég, „ég er með nagla-
skæri í bílnum. Leyfið mér að ná í þau
og ég skal klippa handa ykkur smálokk."
Ég var líka næstum þvi viss um að
þeir hefðu leyft mér það ef ég hefði ekki
einmitt á sama augnabliki heyrt hófa
tak. Hinir innfæddu heyrðu þetta
auðvitað líka og ég sá hræðslusvipinn á
andliti þeirra.
Ég vissi að það var Vivien, sem kom
ríðandi. og að ég varð að losna við þá
áður en hún kæmi. 1 heimsku minni
reyndi ég að komast að bilnum.
Maðurinn með sveðjuna hljóp til og
sveiflaði henni í átt að vanga minuni.
Ég fann um leið fyrir undarlegri kulda
tilfinningu, eins og höfuð mitt hefði
frosið öðrum megin og það næsta sem ég
vissi var að ég lá á jörðinni og hinn
maðurinn tók upp eitthvað sem lá við
hliðmér.
Mennirnir hlupu af stað en námu svo
13. tbl. Vikan 19