Vikan - 27.03.1980, Side 24
Vikan og Heimilisiönaöarféag íslands
HÚFA MEÐ
VESTFIRSKU
MYNSTRI
*
EFNI: Hvitt, tvíþætt loðband,
Gef junarkambgarn: svart, rautt,
f jólublátt og gult.
E FN ISKOSTN AÐU R :
800 kr. 100 g hespa af tvíþættu
loðbandi og 1000 kr. 100 g hespa
af Gef junarkambgarni. Nokkur
afgangur verður af Gefjunar
kambgarninu og er tilvalið að
nota hann i fallega vestfirska
vettlinga, en uppskriftina að
þeim birtum við í næsta tölu
blaði.
Prjónar nr. 3 og lítill hringprjónn
nr. 3.
Fitjið upp 88 I. með hvíta
bandinu og prj. garðaprjón 7 sm.
Fitjið þá upp 44 lykkjur í viðbót
og prj. enn 4 umf. garðaprjón.
Nú eru allar lykkjurnar
prjónaðar á hringprjón með
svörtu bandi, tvöföldu, 2 br. og 2
sl., 1 sm.
Þá er prj. eftir meðfylgjandi
mynstri:
I annarri umf. á laufabekknum
(þar sem byrja 2 gular og 2
rauðar á vixl) er tekið úr þannig
að 120 I. verði á prjóninum, og í
annarri hvítu umf. eftir laufa-
bekkinn er aftur tekið úr þannig
að 104 I. séu á. Þá eru prj. 2
svartar I. og 6 hvítar I. út
prjóninn tvisvar sinnum og siðan
2 svartar og 2 hvítar I. til skiptis
út prjóninn tvisvar sinnum og nú 2
fjólubláar umf.
Sett á sokkaprjóna og prj. 1 hvit
umf. og í næstu hvítu umf. prj. 6
I. og 2 saman út umferðina og 1
umf. án úrtöku. Þá 5 I. og 2
saman út umf. og þannig er
haldið áfram að fækka um 1 I. á
milli úrt. aðra hverja umf. ca 8
umf. hvítar, þá 2 umf. fjólubláar
og loks endað á svörtu í kollinn.
Band dregið í gegnum siðustu
lykkjurnar og saumað fast og
gengið frá á röngunni. Eins eru
saumaðar saman á röngunni
garðaprjónsumferðirnar neðst á
húfunni sem taka við af barðinu.