Vikan - 27.03.1980, Page 28
— Mér finnst kannabisplantan falleg
og ég vil fá að rækta hana í frkli
heima hjá mér.
— Ekki get ég sagt það. Alla vega
j hefur fólkið hér í blokkinni alveg látið
! mig i friði en aftur á móti hefur siminn
ekki stoppað hjá ntér. Hingað hringja
stælgæjar og hrósa mér I hástert
fyrir kjarkinn og vilja endilega bjóða
mér í parti — segjast eiga nóg af ..stuði"
j og væla af ánægju i simann. Svo hringdi
i mig maður á fimmtugsaldri, reyndar
hafði hann þurft aðfara út í sjoppu til að
hrmgja svo konuna hans grunaði ekkert.
en hann var að lýsa yfir stuðningi sínum
i og i leiðitmi bað hann ntig um að utvega
sér eitthvað að reykja. Ég svaraði því til
aö ég hvorki vildi né gæti útvegað
i honuni efni og ráðlagði honuni að fara
I ekkert að fikta við þetta svona
fullorðinn ntaður. Það myndi ekki skipta
I neinum sköpúm úr þessu. Sjálfsagt á ég
; eftir að verða fyrir einhverjum ákúrum
vegna þessa en l'ram á þennan dag hafa
j öll \ iðbrögð verið jákvæð. Við því bjóst
eg rcyndar ekki. F.n best gæti ég trúað að
samtökin yrðu blásin niður á nokkrum
vikum.
„Þegar afkvæmi
stjórnmálamanna
j eru farin að lenda í
klandri, þá gerist
örugglega eitthvað."
Lenny llrucc sagði einhverju sinni að i
I þjóðfélaginu þyrftu að skapast tvö
skilyrði áður en hægt væri að búast við
að fíkniefnalöggjöfinni yrði breytt.
Annað var að þegar menn sem notað
hefðu kannabisefni i skóla væru komnir
i áhrifastöður ntætti eiga von á að málið
færi að hreyfast og hitt var að hreyfing
kæmist sannarlega á þessi mál þegar
afkvæmi stjórnmálamanna væru farin
að lenda I klandri vegna þessa. Þá myndi
örugglega eitthvað gerast. Sú hefur líka
orðið raunin þar vestra. Hvernig voru
ekki viðbrögð manna þegar Chip, sonur
Carters Bandaríkjaforseta, viðurkenndi
að hann hefði reykt marijuana? Hann
var lofaður og fékk ekkert nema hrós
fyrir hreinskilni og drengilegt hugarfar.
Við erum ekki komnir eins langt og
Bandaríkjamenn i þessum efnum, en þó
eitthvað áleiðis þvi ef trúa má
sögusögnum þá eru þeir fleiri en einn og
fleiri en tveir, alþingismennirnir sem
reynt hafa kannabisefni. Enda ekkert
skrýtið. Margir þessara manna eru enn
ungir.
Óttist þiðekki fíkniefnalögregluna?
— Fíkniefnalögreglan hefur staðið sig
ákaflega vel og ef betur væri að henni
búið er ég sannfærður um að hún gæti
upprætt vandamálið. Fyrir mér er
vandamáliðekki til. Mér líður best þegar
ég er eðlilegur. Þó ég hafi beitt mér fyrir
stofnun þessara samtaka þá hef ég aldrei
verslað með fíkniefni. ég er aðeins
áhugasamur ræktandi ýmissa jurta.
þ.á m. eiturjurta. Og þá iðju vil ég fá að
stunda í friði....
EJ
28 Vikan 13. tbl.