Vikan - 27.03.1980, Page 30
Draumar
Maður með brún
augu
Kæri þáttur.
Mig lartgar til að sertda
draurrt í þáttinn. Hann hljóðar
svona:
Ég lá í rúmi og mér Jannst
maðurinn ælla að kyssa mig,
en ég var nógu fljót að láta
það ekki ske, en hann var
breyttur, orðinn stærri.
Dökkhært barn með brún augu
var í baksýn og maðurinn er
sjálfur með brún augu, en ég er
sjálf með brún augu og
dökkhœrð.
Virðingarfyllst.
I.Þ.
P.S. Maðurinn sem ætlaði að
kyssa mig er með brún augu og
dökkhœrður.
Þessi draumur bendir til að þú
eigir í vændum nýtt og
spennandi ástarævintýri. Farðu
þér hægt í því sambandi því þér
er hætt við vonbrigðum í þeim
efnum ef þú teflir of djarft.
Þetta merkir líka einhvern
ávinning, en frekar ólíklegt að
þetta tákni að þú hafir samband
við þennan tiltekna mann í
draumnum.
Þrír blóðdropar
á höfuðið
Kæri draumráöandi!
Mig langar til að biðja þig um að
ráða fram úr þessum draumi fyrir mig.
Mig hefur dreymt hann þrisvar sinnum
með fjögurra mánaða millibili. Og hér
er í i'o draumurinn:
Ég er alltaf stödd ístóru hqfi, mjög
fögru og fornu. Mér finnst það standa
i eyðimörk, aðeins mjög faltegur
garður umlvkur hoftð. Þar eru suðrœn
blóm. Komið er inn i stóran sal og ég
sé sjátfa mig standa þarna um það bil
fjórum árum eldri en ég er núna,
svona 20-21. / raunveruleikanum er ég
með stutt hár en þarna var ég með
gullfallegt hár niður á rass, slegið. Ég
var með gullspöng um hárið með
silfurlaufblöðum, i hvitum kyrtli með
bláa skikkju á öxlum. með gullhringi á
fótum með laufblöðum, sams konar og
á höfði. Og mér finnst ég halda á
hörpu.
Allt umhverfið þarna er mjög
hátíðlegt og fornfálegt, líkist helst ein-
hvers konarfórnarhofi. Fólkið þarna
er i sams konar klceðnaði og ég, karlar
i dökkbláu og hvítu en konur í alla
vega litum klæðum. Nú hefst einhver
athöfn. Kveikt er á 7 kertum á altari
þarna i sal inn af salnum, semfólkið er
statl í. Og Ijósin kvikna af sjálfu sér.
eitt í einu.
Þá geng ég að þessu altari og fer að
spila á þessa hörpu. Þá allt i einu
birtist maður mér við hægri hlið og
hefur upp röddu og mælir: „ Yður skal
hér með kunngjört, unga stúlka, hinn
hágöfgi Venus vill fá að tala við þig
eftir skírnina. " Sjálfur fannst mér hann
heita Rocko.
„Já." svara ég og held áfram að
spila, hœgt og seiðandi. Þá kemur
gamall maður með sitt hvitt skegg, sem
ég hygg að hafi verið afi minn í
þessum draumi. Tekur hann hörpuna,
heggur hana í tvennt. en hún hangir
saman á einum þræði, og leggur afi
minn hana yfir mig, eða réttara sagt
yfir hálsinn. Svo tekur hann blóð, sem
er í skál þarna á altarinu, setur baug-
fmgur ofan í það og lætur drjúpa þrjá
blóðdropa á höfuð mér. Síðan nuddar
hann blóði á enni mitt og gerir kross.
Síðan slekkur hann á 4 Ijósum en
lætur þrjú lifa.
Söngur stígur upp að þessu loknu og
sungnir eru sálmar. Svo er athöfninni
lokið. Þarna hét ég minu rétta nafni en
öðru nafni bætt við.
Svo er ég leidd til hans hátignar
Venusar. Þetta er í stærsta sal hofsins
en þeir eru þrír. Þar situr hann i
hásæti ogforljótur er hann viðfvrstu
kynni. Ég lýt honum og kyssi fætur
hans. Þá allt i einu breytist hann og
verður einn af bestu vinum minum,
sem heitir . . . Hann segir við mig:
„Elsku . ... ég gat ekki breyst nema
hrein stúlka og skírð kyssti fætur mina.
Núna er ég orðinn ég sjálfur." Og að
lokum finnsl mér við komin i eina
sæng. klædd i hvíta kyrtla.
Svona endar draumurinn. Með þökk.
Ronnie.
Þér væri hollast að gæta heilsunnar vel á
næstunni og fara í þvi tilliti með mikilli
gætni. Fylgir þú þeim heilræðum máttu
eiga vísan bata og velgengni í flestu
tilliti. Velgengni og auðsæld mun þá
verða þitt hlutskipti i lifinu og þú munt
njóta góðs af reynslu varðandi fyrri
erfiðleika. Gættu þin á að láta ekki
dagdrauma og óraunsæi ná of miklum
tökum á þér því slíkt gæti tafið fyrir
framþróun, orðið þér til tjóns á ýmsa
vegu og valdið þér niðurlægingu í
annarra augum.
Við bjuggum í
banka
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða draum
fyrir mig. Hann er svona!
Mér fannst ég vera í Þýskalandi og
ég væri hálfgerð sígaunastúlka. Móðir
mín var sú sama og er í raunveruleik-
anum en faðir minn var sígauni. Við
vorum 5 systkinin og mjög fátœk (í
draumnum). Við áttum heima í banka.
bankinn sjálfur var á tveimur neðstu
hæðunum en fullt af íbúðum á hinum
8. Mamma vann í einhverri matar-
verslun. Einu sinni fékk ég að fara
með henni í vinnuna. Þegar
vinnutiminn var búinn settust allir á
bekki ogfóru að tala saman. Mamma
settist hjá nokkrum ístenskum konum
sem voru þarna (hún þekkir þær i
raunveruleikanum), og einni sígauna-
stúlku. Allt hitt fólkið sem vann þarna
voru sígaunakarlar. Allt i einu kom
einn af köllunum ogfaðmaði mig að
sér og gerði það sama við hitt fólkið á
meðan stóð ég á miðju gólfinu og
glápti eins og asni. Þá kom mamma og
sagði að ég ætti að gera eins. ég vrði
að sætta mig við það því að þetta væri
venja.
Égfór heim með íslenskri vinkonu
minni (ég man ekki hvað hún heitir).
Þegar við vorum að koma að
bankanum mættum við drauma-pabba
minum. Hann sagði að ég ætti pakka
uppi í ibúðinni. Hann sagði að hann
væri 5 sm breiður og 2 metra langur.
Við Jlýttum okkur upp en vorum
svolítið lengi því að við áttum heima á
efstu hæð. Þegar við vorum komin upp
kom mamma á móti okkur með
pakkann. Ég flýtti mér að taka utan af
honum og í pakkanum var veiðistöng.
Ég varð voðalega hissa þegar ég sá
hvað þetta var. Veiðistöngin var úr
skrítnu efni. Innst var járn, svo var
hún klædd með strigaefni Það var
nœstum mosagrænl en saml Ijósara en
það.
Ég vonast fjótt eftir svari.
HM
Flest tákn i draumnum boða að þú
munir verða fyrir erfiðleikum og fláræði
af annarra völdum. Gættu þín vandlega
á að treysta ekki öðrum í blindni og
reyndu að gera þér sem gleggsta mynd af
þeim sem þú þarft að umgangast.
Enginn er með öllu gallalaus og hætt er
við að þú munir komast að raun um það
hvað varðar einhvern þér tengdan.
Láttu þetta ekki á þig fá því innan tíðar
líturðu alla þessa atburði í öðru ljósi og
virðist þá sem nýjar leiðir opnist. Með
þvi mun líf þitt taka nokkrum stakka-
skiptum og allt verða mun greiðfærara
en áður.