Vikan - 27.03.1980, Page 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
IVIatthildur var búin að bíða
eftir bréfi frá Ameríku í fimmtíu
ár. Á hverjum einasta morgni
stóð hún falin á bak við glugga-
tjöldin í litlu stofunni sinni og
beið eftir bréfberanum. Hún'
vonaði að hann opnaði garðs-
hliðið, hringdi dyrabjöllunni og
segði:
— Gjörðu svo vel, Matthildur
mín. Hér kemur bréf frá
Ameríku.
En bréfberinn hringdi aldrei
bjöllunni og Matthildur varð að
láta sér nægja að setjast
vonsvikin í körfustólinn sinn og
taka upp prjónana. Og svo lét
hún hugann reika langt til baka
— til æskuáranna.
Þau höfðu verið svo
hamingjusöm, þau Friðrik.
Hann var iðnnemi, hávaxinn
og laglegur maður, laglegasti
ungi maðurinn í bænum. Hún
mundi ennþá eftir hinum
SEINT FYRNAST
FORNAR ÁSTIR
unaðslegu sumarkvöldum,
rómantískum gönguferðum sem
enduðu með því að þau settust á
bekk í þéttum faðmlögum. Eða
þá að þau gengu niður að höfn
og horfðu á mánann speglast í
firðinum. Ó, þau höfðu verið
svo hamingjusöm.
En svo komst þrýstna stelpan
í bakaríinu í spilið. Þetta var
heimsk og ábyrgðarlaus stúlku-
kind sem hugsaði ekki um annað
en að daðra og skemmta sér. En
Friðrik hafði ekki verið nógu
vitur til að sjá í gegnum hana.
Matthildur sagði honum upp
og sama kvöldið fann bakaris-
stelpan nýjan og meira
spennandi aðdáanda. Svo
Friðrik stóð eftir algjörlega
kvenmannslaus. Og hann átti
sér ekki viðreisnar von. Engin
almennileg stúlka í bænum vildi
lita við honum því hann hafði
fengið það orð á sig að vera ekki
við eina fjölina felldur í ástum.
Og svo stakk hann af til
Ameríku.
Matthildur sá innilega eftir
því að hafa svikið hann, einmitt
þegar hann þarfnaðist hennar
allra mest.
Og nú hafði hún beðið eftir
því i heil fimmtíu ár að hann léti
frá sér heyra. En til einskis.
í miðri Kansas City, Missouri,
Ameríku, sat hinn auðugi
byggingarmeistari, Fred
Sörensen, og hugsaði heim til
stúlkunnar sem hann hafði
aldrei getað gleymt: Matthildar.
Honum hafði gengið vel í
Bandaríkjunum, ó, yes, of
course, en hann hafði aldrei
öðlast neina sálarró. Hann hafði
svikið æskuástina sína. Hann
hafði oft og mörgum sinnum
ætlað að skrifa og biðja hana að
koma en aldrei látið til skarar
skríða. Hann hafði verið of
önnum kafinn við að skrapa
saman dollara . . . og well, well,
einhvern veginn varð aldrei
neitt úr neinu. En nú ætlaði
hann að gera alvöru úr því.
Og loksins hringdi dyrabjallan
við útidyrnar á litla, hvítkalkaða
húsinu hennar Matthildar. Hún
reis upp úr körfustólnum og
opnaði. Fyrir utan stóð sendill
með símskeyti. Hún opnaði það
skjálfandi höndum og las:
— Skelltu þér vestur, darling.
Mig langar til að giftast þér,
Friðrik.
Matthildur grét í heila viku af
hamingju. Svo þerraði hún
augun á svuntuhorninu, dró
fjóluilmandi bréfsefni upp úr
Stjörnuspá
llrtiliirinn 2l.ni;irs 20.;i|»ril
Árangurinn, sem þú
taldir þig hafa náð,
virðist jafnvel ennþá
fjarlægari. Reyndu að
komast að orsökunum
og gættu þess vandlega
að láta ekki biturleikann
ná tökum á þér.
Y-iulii) 21.tipril 21.niai
Þér tekst flest það sem
þú tekur þér fyrir
hendur og dugnaður
þinn og áhugi virðist
geta flutt fjöll. Taktu
samt engar framtíðar-
ákvarðanir í flýti og
hugsaðu þig vel um i
þeim efnum.
lAihurarnir 22.m;ii 2l. júni
Hugsun þín fylgir ekki
alltaf raunveruleikanum
og þú ættir að gera þér
grein fyrir að vald-
beiting er ekki rétta
leiðin til að ná settu
marki. Þú gætir orðið
fyrir aðkasti með þessu
móti.
kr. hhinn 22. júm 2A. juli
Hættu þessu stöðuga
voli og ráðaleysi. Lífið
veitir miklu meiri
möguleika en þú gerir
þér grein fyrir. Fáðu þér
frískt loft og þú kemst
að ratin um',að göngu-
ferðir geta gert krafta-
verk.
I.jiúii<t 24. j(i11 24. :iiíú*l
Vanafestan er að ná of
miklum tökum á þér.
Framkvæmdu það sem
þú hefur lengi ætlað að
gera og reyndu að vera
meira lifandi og líta
tilveruna bjartari augum
en áður.
>lc> jan 24.;u*úsl 2.Vscpl.
Þér gengur einstaklega
vel að koma orðum að
þínum hjartans málum
og vekur því áhuga allra
I kringum þig. Flest
gengur I haginn og
dagarnir líða hjá með
undraverðum hraða.
\oiiin 2l.scpi. 2.Vokl.
Það er mesti mis-
skilningur að aðrir séu
að leggja stein í götu
þína, þinn eigin vilji er
mesta hindrunin. Taktu
þig á og framkvæmdu
það sem þér finnst mest
aðkallandi að gera.
Sporúdrckinn 24.okl. '!.Vnó\. Ko4ni;iúurinn 24.no\. 2l.úcs
Það er engin ástæða til
að halda að eina leiðin
til að koma sér áfram sé
að troða skóinn af
næsta manni. Notaðu
frekar meðfædda
skynsemi, dugnað og
eigin hæfileika.
Eyddu ekki kröftum
þínum til einskis. Þú
getur auðveldlega náð
sama árangri með minni
fyrirhöfn ef þú
skipuleggur tíma þinn
betur, en farðu samt
hægt í breytingar.
Slcingcilin 22.ocs. 20. jan.
Leggðu ekki trúnað á
allt sem þú heyrir.
Reyndu að lita hlutlaust
á vandamálin og þá
kemstu að raun um að
þau eru ekki eins ógn-
vekjandi og við fyrstu
sýn virtist.
\alnshcrinn 2l.jan. lú.fchr.
Þú hefur mikið reynt að
bæta þig og setja þig i
annarra spor.
Samkomulagið á
heimilinu hefur þess
vegna batnað mjög en
hafðu hugfast að ekkert
fæst baráttulaust upp í
hendurnar.
Fiskarnir 2().fchr. 20.mars
Sláðu öllum mikil-
vægum ákvörðunum á
frest og reyndu að
vinna bug á öllum
neikvæðum viðhorfum.
Sættu þig við að allt
hefur sín takmörk og
þinn timi kemur að
lokum.
34 Vikan I3,tbl.