Vikan - 27.03.1980, Side 37
ELDUR
UM
BORÐ
Það rann upp hörmunganótt fyrir Morro
Castle: Skipstjórinn fannst látinn í klefa
sínum. Átta klukkustundum síðar stóð
skipið í Ijósum logum. Morð? íkveikja?
Enginn veit hvað raunverulega gerðist um
borð í Morro Castle.
7. september 1934 um kJ. 17.00 var
morð framið á miðju Atlantshafinu,
u.þ.b. 400 sjómilur suðaustur af New
York. Morð sem aldrei fékkst nokkur
lausn á. Morð sem kostaði 134
manneskjur lifið.
Sögusviðið er skemmtiferðaskipið
Morro Castle. Þetta er stórt skip, 11.520
tonn, 156 metrar á lengd. Þetta er fallegt
skip með dans- og borðsölum. börum,
setustofum og sundlaugunt. Þetta er
öruggt skip, smiðir þess fullyrða að
öryggisútbúnaður sé svo mikill að það
geti hvorki sokkið né brunnið.
Morro Castle er á leið frá Kúbu til
New York. 318 farþegar eru með i
þessari skemmtiferð. í kvöld heldur skip-
stjórinn veislu og allir fara í viðhafnar-
klæðnað. Engan grunar þann harmleik
semáeftiraðgerast.
1. þáttur hefst nteð sakleysislegri
tilkynningu frá einunt hásetanum: 1.
stýrimaður er strax beðinn unt að mæta
til klefa skipstjórans.
William Warms hlýðir kallinu. Hann
kentur að hurðinni á klefa skipstjórans i
hálfa gátt. Hann ber að dyrunt og
gengur inn. Klefinn virðisl tómtir. Hann
gengur inn i baðherbergið. þar liggur
maður i undariegurn stellingum á
gólfinu. Þaðerskipstjórinn.
— Hann er dáinn. Myrtur.
Maðurinn sent hafði kropið yfir likinu
snýr sér við. Það er dr. de Witt. skips-
læknirinn.
— Myrtur. stamar Warnts. —
Hvernig vitið þér...?
— Litiðframan i hann. Andlit hanser
helblátt. Þannig Iíta þeir út sem hafa
verið myrtir á eitri.
Á meðan hefur enn einn maður bæst i
hópinn. yfirvélstjórinn, Abbott. Hann
skiptir litum þegar hann heyrir orðið
eitur. Það verður andartaks þrign. Þá
snýr læknirinn sér að I. stýrimanni:
— Nú eruð þér skipstjórinn, Warms.
Takið þér stjórnina að yður?
Warms kemur ekki upp orði en kinkar
kolli. Hann leggur af stað upp á
stjórnpallinn þar sem honum ber nú að
vera.
— Það verður að læsa híbýlum
skipstjórans. segir de Witt. — l.ikið
verður svo krufið í New York.
En lík Roberts Willmotts kemst aldrei
Viðbrögð yflr-
manna um borð í
Morro Castle voru
alveg ótrúleg
til krufningar. Það hverfur og skips-
læknirinn á heldur ekki nema nokkrar
klukkustundir ólifaðar.
Veislunni er aflýst. í danssalnum rikir
myrkriðeitt. Á bafnum er þóenn Ijós þó
að flestir farþega Italdi sig i klefum
sinum. Það er vont i sjóinn og borist
hefur tilkynning um væntanlegan
hvirfilvind frá norðaustri. Að vísu ntun
hann ekki geta valdið Morro Castle
neinum skaða utan óþægindanna af
slæmu veðri.
Warms. Itinn nýbakaði skipstjóri.
stendur á stjórnpalli þegar varðmaður
tilkynnir honum mcrki unt reyk í
skipinu.
Warnts litur á klukkuna. Hún sýnir
2.50. Hann þarf að vita timann
nákvæntlega til að geta skráð hann i
dagbók skipsins. Þessi tiðindi valda
honum engum óróleika. Hann segir 2.
stýrimanni að kanna málið og gefa sér
siðan skýrslu.
Seinna þarf skipstjórinn að gera grein
fyrir öllum sínum viðbrögðum fyrir
sjórétti i New York. Hverri sekúndu.
Það sannast að hann vikur aldrei af
stjórnpalli. Þar ber honum að vera sent
skipstjóra og 2. stýrimaður tekur við
skyldum hans sem 1. stýrimanns. Það
sannast lika að á þessari stundu liggur
bátsmaðurinn dauðadrukkinn i koju
sinni. Og Abbott yfirvélstjóri hagar sér
eins og brjálæðingur — eða bleyða.
2. stýrimaður leitar um skipið en
finnur ekkert grunsamlegt fyrr en hann
kemur að bókaherberginu. Hann finnur
reyklykt og þegar hann opnar hurðina
leggur eldtungurnar á móti honum.
Þeim fylgir stækur þefur, þessi eldur
hefur ekki kviknað út frá neinum
vindlingi heldur hlýtur hér að vera unt
einhverja efnablöndu að ræða. 2. stýri
rnanni dettur strax ikveikja í hug og kalt
vatn rennur honunt ntilli skinns og
hörunds.
Hann beitir handslökkvitækinu sent
hann hefur meðferðis en það hefur lítið
aðsegja gegn eldinunt.
Hann flýtir sér aftur til stjórnpallsins.
— Það er e!dur i bókaherberginu.
herra. Magnaður eldur sent breiðist
hratt út. Við þurfum á vatni að halda.
Skipstjórinn gefur snöggar skipanir og
segir 2. stýrimanni að tilkynna um
eldinn.
Klukkan 2.55 hringja viðvörunar
bjöllur sem gefa til kynna að eldur sé um
borð og að hver áhafnarmeðlimur eigi
að fara á sinn stað. En varðmaðurinn.
sem fer að sækja bátsmanninn i koju
sína, getur ekki komið honum á fætur.
1. stýrimaður hefur nú gegnt hlutverki
skipstjóra i sjö klukkustundir. Og yfir-
vélstjóri, sem á að sjá um að nægur
þrýstingur sé á \atnsslöngunum, klæðir
sig í snjóhvítan hátiðareinkennisbúning.
Örvæntingin greip
um sig á meðal
farþega en enginn
kom til að vísa
þeim leið út úr
eldinum
hringir niður í vélarrúm og spyr hvort
ekki séallt í lagi þar.
1. vélstjóri verður fynr svörum:
— Reykurinn er kominn hingað.
Hann tekur síður en svo djúpt i
árinni. Vélarrúmið er orðið svo fullt af
reyk að starfsmenn sjá varla út úr
augum. hitinn er orðinn óþolandi. En
hann segir þaðekki.
Yfirvélstjórinn spyr hvort eld sé að j
finna i vélarrúminu. I. vélstjóri ncitar j
því.
En sjálfsagt hefði það ekki breytt j
neinu fyrir Abbott þó hann hefði fengið
réttari upplýsingar um hið hættulega
ástand. Hann leggur af stað upp á þilfar
— i áttina að bjórgunarbátunum.
Við hljóminn frá viðvörunarbjöll-
ununt þyrpasl farþegar út úr klefunt !
sinum. Aðeins þær hræður sent enn sátu
á barnum eru fullklæddar. Aðrir standa ,
á reykfylltum göngununt i náttkjólum j
eða á náttfötum. Eldurinn magnast.
Óttinn grípur um sig á göngunum. i
fólk hrópar og kallar, börn og konur
gráta. Allt fer á ringulreið, hitinn er
óþolandi. linginn kemur til að taka
forystuna og visa þeini leiðina til
björgunarbátanna.
I. vélstjóri, Bujia, leitar ákaft að yfir
vélstjóranum. Abbott. Mennirnir i vélar
rúminu hafa gefist upp. Þeir eru að j
kafna i reyk og kasta upp galli. Hitínn er j
kominn upp i 48 gráður. allar
málmleiðslur sjóðandi heitar. Mennirnir
vilja flýja af staðnum Buija hefur reynt j
að ná santbandi viðstjórnpallinn. En þar
svararenginn.
Hann leggur af stað upp. svartur af
sóti og hóstandi. Á leiðinni hittir hann
yfirvélstjórann i snjóhvita einkennis
búningnum.
— Við erunt að gefast upp. herra
minn. stynur hann. — Við getunt ekki
meir. Veitið okkur leyfi til að yfirgefa '
vélarrúmið.
Augu Abbottseru flöktandi.
— Nei. ykkur ber að halda vélununt
gangandi eins lengi og unnt er.
— Já. herra. En hver segir skipstjór
anum að þaðgeti kostaðokkur lífið?
— Ég skal gera það.
Bujia reikar aftur niður i glóandi j
hitann.
— Með vélarnar á fullu bcint i j
dauðann. tautar hann fyrir ntunni sér. \
— Svinið. Helvitis svínið!
Saga þessarar nætur um borð i Morro
Castle er ótrúleg. Einu mennirnir sem
sinna skyldu sinni eru mennirnir í vélar
rúminu. Og gera illt verra með þvi.
Skipið heldur áfram með 18,8 hnúta
hraða og vindurinn magnar eldinn um
borð. Skipstjórinn stendur á stjórnpalli
13. tbl. Vikan 37