Vikan - 27.03.1980, Blaðsíða 38
Hörmuleg sjóslys
Yfirloftskeyta-
maður var
glæpamaður sem
endaði daga sína í
fangelsi. Atti hann
líka sök á harm-
leiknum um borð í
Morro Castle?
og sér ekkert fyrir reyk. En þvi miður
leggur hann ranga merkingu i reykinn.
Hann heldur að hann stafi af þvi að
verið sé að vinna á sjálfum eldinum.
Það er ekki fyrr en að öll Ijós blikka á
töflunni i brúnni að honum verður hið
raunverulega ástand ljóst: Hitastigið i
öllum klefum er komið upp i 70 gráður
sem þýðir að skipið er alelda.
Þá loksins fer Warms að huga að
slökkviaðgerðum og hárin risa á höfði
hans í skelfingu. Allt vatn er löngu
uppurið, það er ekki vatnsdropi í
leiðslunum. Skipstjórinn æðir um skipið.
Hann finnur yfirvélstjórann á gólfinu i
stýrishúsinu — hóstandi og náfölan.
— Hvers vegna eruð þér ekki niðri i
vélarrúntinu, spyr hann. — Það er ekki
dropi af vatni i leiðslunum.
— Það er urn seinan, stynur Abbot.
— Skipið er glatað'— það er of seint að
gera nokkuð.
Warnts grípur um axlir hans og hristir
hann. Um leið er tilkynnt að skipið sé
orðiðstjórnlaust.
Ekkert af stjórntækjunum er
starfhæft lengur.
— Skipið rekur, herra.
En skipstjórinn á ekkert svar til.
héðan í frá eru allar skipanir þýðingar-
lausar. Skipið er allt eitt eldhaf. Öll von
er úti.
í loftskeytaklefa Morro Castle er
orðið jafnheitt og í helvíti. Gólfið, sem á
Urðu 134
manneskjur að
láta lífið af því að
skipstjórinn vildi
spara útgerðinni
björgunarkostnað-
inn ?
að vera eldtraust, glóir. 2.
loftskeytamaður. Alagna, reynir að ná
sambandi við skipstjórann til að fá
skipun um að senda út neyðarkall. Hann
finnur hann ekki. Andlit Alagnas er
alsett brunablöðrum, einkennis-
búningurinn sviðinn.
Sendu út SOS, segir hann við I.
loftskeytamann, George Rogers.
— Ekki án skipunar, svarar Rogers.
Hann veit að samkvæmt sjórétti verður
útgerðarfyrirtæki Morro Castle að taka
á sig allan kostnað við björgunar-
aðgerðir eftir að neyðarkall hefur verið
sent út. Kostnaður sem gæti í þessu
tilfelli farið upp í margar milljónir.
— Ertu brjálaður, hrópar Alagna. —
Ætlarðu að láta alla stikna i hel?
I sömu andrá springur gluggi á
loftskeytaklefanum og eldtungur teygja
sig inn. Alagna ryður sér braut út. Hann
verður að finna skipstjórann og fá hann
til að gefa skipun um að senda út
neyðarkall.
Hann finnur skipstjórann sem gefur
skipunina. Kl. 3.20 berst fyrsta neyðar-
kallið yfir öldur hafsins: SOS, SOS —
Morro Castle. Staða: 20 milur suðaustur
af Scotland Light. SOS — SOS ...
Þrjú skip hafa þegar orðið vör við eld
sem ber við himininn: Strandferðaskipið
Tuckerton, farþegaskipið Monarche of
Bermude og vöruflutningaskipið Andrea
S. Luckenbach. Strax og fyrsta neyðar-
kallið berst til þeirra flýta þau sér á
vettvang.
Rogers tekst að endurtaka neyðar-
kallið þrisvar sinnum. Þá stendur loginn
út úr rafalnum. Morro Castle getur ekki
framarlátiðísér heyra.
Það er búið að slökkva á öllum vélum
i vélarrúminu, 1. vélstjóri er hniginn í
ömegin. Hann nær þó meðvitund á ný
og tekst að nota siðustu kraftana til að
koma þrýstingi á slökkvileiðslurnar.
Siðan tekur aðstoðarmaður hans utan
um axlirnar á honum og tekst að draga
hann uppá þilfarið.
Þar rekast þeir á hóp farþega. konur.
karla og börn, sem hafa kropið á hnén
og syngja sálm.
Þau eru u.þ.b. 10 metra frá eldhafinu.
Þá kemur Bujia auga á brunahana,
skrúfar frá þeim og eldurinn hörfar
undan vatninu.
Klukkan 3.15, áður en fyrsta
neyðarkallið er sent út, er fyrsti
björgunarbáturinn settur á flot. Þar er
pláss fyrir 58 manns.
— Látið konur og börn sitja fyrir.
æpir 2. stýrimaður. 12 manneskjur sitja
þegar i bátnum og nú stekkur sá þrett-
ándi um borð. Það er yfirvélstjórinn.
Abbott, í hvita einkennisbúningnum
sinum. Og hann gefur hásetanum
skipun um að láta bátinn síga niður þó
enn sé þar pláss fyrir 48 i viðbót.
— Takið fyrst fleiri farþega, hrópar
\
38 Vikan 13. tbl.