Vikan - 27.03.1980, Page 39
skipstjórinn frá stjórnpallinum.
— Nei, látið hann siga, hrópar Abbott
á móti. — Þetta er skipun!
Angistin hefur gefið rödd hans aukinn
kraft og hásetinn hlýðir honum.
Seinna dæmir sjóréttur yfirvélstjór-
ann til fimm ára fangelsisvistar fyrir að
hafa brugðist skyldu sinni og sýnt af sér
ragmennsku.
Fólkið á C- og D þilju kemst ekki
lengur upp á bátaþilfarið. Það hefur ekki
nema um tvennt að velja: Að verða
Warms skipstjóri fyrir sjórétti i
New York. D. Hoover (standandi)
telur hann ábyrgan fyrir skips-
skaðanum og dauða 134 manna.
eldinum að bráð eða kasta sér í ólgandi
hafið. Hjón þrýsta sér hvort upp að
öðru, mæður taka börn sín í faðminn og
stökkva með þau í freyðandi öldurnar.
Björgunarbátarnir komast aldrei allir í
gagnið, fjórir eru skildir eftir og brenna
til kaldra kola.
Er dagur rennur kemur Andrea S.
Luckenbach að brennandi flaki Morro
Castle. En 134 verður ekki bjargað, þeir
hafa annaðhvort orðið eldinum að bráð
eða drukknað. Þeim sem eftir lifa, og þar
á meðal Warms skipstjóra og báðum
loftskeytamönnunum, er bjargað um
borð i Andreu Luckenbach. Sjórétt
urinn, sem fer fram fjórum mánuðum
seinna, dæmir Warms skipstjóra einnig
'il tveggja ára fangelsisvistar. Við
áfrýjun er málið tekið upp aftur. Warms
skipstjóri er þá sýknaður þar sem hann
hafði ekki yfirgefið skipið fyrr en öllu
var lokið. Abbott var ekki heldur sóttur
til saka þar sem hann var ekki álitinn
ábyrgur gerða sinna sakir reykeitrunar.
Enginn var því látinn sæta ábyrgð á
dauða hinna 134 manna. Og það varð
heldur aldrei uppvist hver átti sök á
morðinu á Willmott skipstjóra og
ikveikjunni um borði MorroCastle.
Mörgum árum seinna var George
Rogers, l. loftskeytamaður, dæmdur i
ævilangt fangelsi vegna tveggja morða
og einnar morðtilraunar. Einnig er vitað
að hann hafði átt í útistöðum við
Willmott og að sá siðarnefndi hafði
ætlað að reka hann að þessari ferð
lokinni.
Var hann morðinginn? Kveikti hann i
skipinu til að hylma yfir glæp sinn? Slikt
tókst aldrei að sanna og Rogers sór af sér
þennan glæp til dauðadags. en
hjartaslag varð honum að aldurtila.
Ekki gefa þeim aftur í glösin því þá
skemma þcir leikfnngin.
gissur
6UULRA55
BILL KAVANAGU £.
FRANK FLETCUSR.
13. tbl. Vikan 39