Vikan - 27.03.1980, Qupperneq 41
12. Versalir
pipraður. Béarnaise-sósan var líka góð.
Verðið er 8.865 krónur.
Lúðvíksnaut
Nautabuffsteik að hætti Lúðvíks
fjórtánda var raunar öllu betri en turn-
bautinn, miðlungi steikt og með brúnni,
hálfsætri sósu. Verðið er 8.900 krónur.
ís
Rjómaís hússins búinn til i eldhúsinu
var einfaldur og góður. Verðið er 1.290
krónur.
Pönnukökur
Pönnukökur með ís og ávöxtum voru
með rönd af jDeyttum rjóma að utan og
fylltar með Is og niðursoðnum ávöxtum.
Pönnukökurnar voru ekki nógu þunnar.
Verðiðer 1.560 krónur.
Kaffi
Kaffi eftir matinn var sæmilegt og
kostaði heilar 550 krónur.
Vín
Einhver ruglingur var á vinveitinga-
leyfi Versala um þessar ntundir. Vínlist-
inn var þó til, stuttur og ágætur. Þar
mátti sjá Tio Pepe sérrí og Noval
portvin. Geisweiler. Saint-Laurent og
Trakia rauðvin og Chablis.
Gewúrztraminer og Edelfráulein hvit-
vín. Þetta er raunar besti vinlisti
landsins, þótt stuttur sé.
Að þessum orðum skrifuðum. sé ég i
fréttum, að vínveitingaleyfið er fengið.
Því fagna ég, um leið og ég vona, að
Homið þurfi ekki lengi að biða og
Laugaás fái leyfi, verði þess óskað. Sum
hús með gömul og nv vínveitingaleyfi
eru mun lakari en þessi þrjú.
Þetta var sérstaklega meyr steik og
nokkuð bragðgóð. Sósan var fremur
hlutlaus. Verðið er 5.420 krónur.
Appelsínulamb
Lambabuffsteik með glóaldinum var
hæfilega steikt, bleik og meyr. sennilega
besti matur prófunarinnar. Með henni
fvlgdi ágæt sveppasósa. Verðið er 5.270
krónur.
Kjúklingur
Kjúklingur að hætti Ho Chi Min var
hæfilega lítið matreiddur og þar af
leiðandi bragðgóður. Honum fylgdu
hrísgrjón með papriku, ananas og karri-
sósu. Þetta meðlæti var vel við hæfi og
mun betra en jukkið, sem fylgdi hinum
réttunum. Sætubragð var af karrisós-
unni eins og sumum öðrum sósum
Versala. Verðið er 6.795 krónur.
Turnbauti
Tournedos Béarnaise, hrásteiktur. var
mjög mjúkur og góður, en dálitið mikið
Meölœti
Áður hefur verið minnst á, að ágætt
hrásalat fylgdi öllum aðalréttum.
Vfirleitt fylgdi þeim einnig sama soðna
grænmetið. rósakál, gulrætur. spergill og
sveppir, svo og bökuð kartafla. Mér
hefði nægt kartaflan ein, enda var hún
ágæt.
Lúðvíkslamb
Kryddlegin lambabuffsteik að hætti
Lúðvíks fjórtánda var aðeins litillega
ofsteikt og hafði enn dálítinn roða innst.
Milliverð
F.nginn matseðill dagsins er i
Versölum. Meðalverð sjö súpa og for-
rétta er 2.300 krónur, sautján aðalrétta
6.900 krónur og þriggja eftirrétta 1.500
krónur. Samtals ætti þríréttuð máltíð þvi
að kosta að meðaltali um 10.700 krónur
og að meðtalinni hálfri flösku á mann af
Trakia rauðvíni og kaffi um 12.600
krónur. Allt er þetta samkvæmt verðlagi
í febrúarlok.
Af þessu má sjá, að verðið i Versölum
er á milli verða Holts og Sögu annars
vegar og Hornsins og Laugaáss hins
vegar. Virðast mér jrau verðhlutföll við
hæfi.
Matreiðslan i Versölum fær sjö í
einkunn, þjónustan átta, vínlistinn sjö og
umhverfi og andrúmsloft átta. Vegin
meðaleinkunn Versala er sjö. Og er þar
með fundið þriðja besta veitingahús
landsins. Jónas Kristjánsson
í næstu Viku:
Skrínan
13. tbl. Vikan4I