Vikan


Vikan - 03.02.1983, Blaðsíða 6

Vikan - 03.02.1983, Blaðsíða 6
Skammt austan viö Markar- fljótsbrúna bættist í hópinn enn einn bíll meö tveim mönnum. Austan viö brúna héldu bílarnir þrír út af þjóðveginum og stefndu upp í Þórsmörkina. Skammt innan við Merkurbæina hófu bílarnir að ösla mikið krap. Fyrsti meiriháttar farartálm- inn var Steinsholtsáin. A henni voru skarir miklar og gekk illa að koma annarri rútunni yfir ána. Vaskir menn undu sér út úr rútunum og tóku til við að höggva för og ryðja leið fyrir rútuna yfir Steinsholts- ána. Græna rútan göslaöist yfir eins og ekkert væri. Þegar komið var innar í Mörk- ina, á móts við Merkurranann, sóttist leiðin enn verr. Voru marg- ar hendur önnum kafnar við snjó- mokstur og íshögg. Afram var baslast með bílana, sem féllu öðru hvoru niður um íshellurnar. Akváðu fararstjórarnir við svo búið að flestir farþeganna skyldu ganga inn í Skagfjörðs- skála. Veðrið var ennþá með á- gætum og ferðalangarnir vel bún- ir til að ráðast gegn ísaköldum án- um. Nokkrir leiðangursmenn urðu eftir í rútunum til að aöstoða bíl- stjórana við að koma þeim inn- eftir, skófla burt snjónum og berja sundur ísinn. Göngufólkinu farnaðist ekki að óskum. Illa gekk að finna vöð á án- um og sáu menn fram á að þurfa aö vökna. Myrkriö lagðist yfir Mörkina áður en göngumenn komust inn aö Hvanná. Ekki tók betra við þegar að henni var komið, snjóbylur skall á. Arnar voru ískaldar og ekki á- rennilegar. En hópurinn við Hvannána lét ekki bugast, allir læstu saman höndum og síðan var látið vaöa beint yfir beljandi jökulfljótið. Halarófan komst heilu og höldnu yfir allar árnar sem eftir voru. Þeir sem blotnuðu voru þó ekki illa settir þar eð lítið frost var í lofti. Yngsti feröalangurinn, níu ára gömul stelpa, stóö sig eins og hetja. Hún óð allar árnar með þeim fullorðnu og kom ásamt gönguhópnum aö Skagfjörösskála um sexleytið á gamlárskvöld. I skálanum safnaðist göngu- fólkið saman, misvott og kalt. Olíukyndingunni var komið af stað, en í suðurstofunni másaði gasofn sem verkaði eins og segull á hópinn. Norpuöu menn þar til geislandi gasofninn tók aö efla hlýjuna í hópnum. Rúturnar voru enn ekki komnar. Söknuöu menn þeirra óspart, einkum vegna þess aö þar voru þurru fötin til skiptanna og allur maturinn í stóra svanginn. Heppnin var þó meö í förinni. Athugull og svangur feröalangur rakst á fötu í öðru eldhúsinu, í henni var torkennilegt duft sem við bragðprófun reyndist vera efni í súpu. Voru nú dregnir fram stærstu pottarnir á staðnum og hituö kynstrin öll af súpu. Allir fengu belgfylli og hugsuðu hlýlega til þeirra hugulsömu manna sem skildu eftir súpuduftiö. Raunar höfðu þeir sem ekki tóku þátt í súpugerðinni í flimtingum að ekkert duft heföi fundist, heldur hefðu Hvanná og Krossá lagt efnið í sokka súpugerðarmannanna. En þessir gárungar, eins og allir aörir göngugarpar, höfðu gott af súpunni og sátu heitir og hljóðir að lokinni súpuveislunni. Um tíuleytiö komust bílarnir loksins í námunda við skálann, en þó ekki yfir Krossá. Farangurinn beiö í bílunum, svo að ferðalang- arnir uröu að gera sér að góðu að skrýöast aftur votum og hálf- köldum fótabúnaðinum. Síöan óðu menn yfir aö bílnum, í gegnum krapa og ískalt vatn. Flestir gengu rösklega þegar snúið var í átt til skálans að nýju, enda voru verölaunin þrifin upp úr hafur- taskinu: þurr föt, gómsætur matur og drukkur af ýmsu tagi. Tóku allir hraustlega til matar og drykkjar og upphófst fljótlega söngur, gleði og gaman. Um miönæturskeiðið hélt feröa- fe Vikan S.tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.