Vikan - 03.02.1983, Blaðsíða 34
Meira um fólk
— Heyrðu Sigga, þú veröur
bara aö segja mér um öll hneyksl-
in sem hafa orðið meðan ég var
burtu.
— Já en Magga mín, það gerð-
ist bara ekkert hneykslanlegt
meðan þú varst burtu.
— Það er orðið ómögulegt að
þekkja muninn á körlum og kon-
um nú orðið. Líttu til dæmis á
þennan!
— Þetta er nú dóttir mín.
— Afsakið, ef ég hefði vitað að
þú værir faðir hennar þá hefði...
— Eg er nú mamma hennar.
Nýlega var vormisserisáætlunin
kynnt fyrir meðlimum klúbbs
nokkurs í Kópavogi.
— Við höfum hugsað okkur að
vera meö tvö konukvöld núna á
vormisseri, annað í léttum dúr og
hitt fræðslukvöld. . .
— Verður maöur aö koma með
sömu konuna bæði kvöldin?
Maximilian Mortensen tann-
kremsverksmiðjueigandi hafði
keypt sér bóndabýli sér til
skemmtunar og meðal annars þar
á bæ var geysistór hænsnagarður.
— Verpa þær eitthvað? spurði
einn ættinginn sem kom í heim-
sókn til að líta á herlegheitin.
— Já, þær gera það nú reyndar,
en einungis sér til ánægju, ég hef
nú nógu góðar tekjur til að halda
þeim öllum uppi án þess þær verpi
nokkuð. ..
Maður nokkur kom til bónda og
ætlaði að kaupa af honum grísi.
— Hvaö kosta þeir?
— 40 kall stykkið ef þú tekur
hérna megin og 50 kall stykkiö ef
þú tekur hinum megin og velur þá
stærstu.
— Gildir verðið sama hvað
maður tekur marga?
— Já,já.
— Ja, þá ætla ég að fá allan hóp-
inn og taka hann hérna megin.
Bóndi nokkur var að fá sér nýj-
an vinnumann.
— Hvenær er venjan hér að
vakna á morgnana? spurði vinnu-
maðurinn.
— Ja, á sumrin förum við á fæt-
ur klukkan fimm en á vetuma
erum við vön að sofa út og förum
ekki á fætur fyrr en hálfsex!
Láttu
streituna og
vöðvabólguna
ekki skemma
fyrir þér!
eftir andlitsbað og fótsnyrtingu,
ertu sem ....
Ný manneskja!
Nú viljum við kynna NU body línuna frá París
og mikið úrval BOURJOIS make-up-snyrtivara.
de
* . i______
París
créateurlde l’hydradermie
Nu hefur öðruvísi ilm.
Nu ilmvatn.
Nu body-lotion.
Nu body-olía (fyrir og eftir bað).
Nu brjósta-ampullur og olía
Nu er allt með sama ilm.
BOURJOIS
PARIS
Komið og reynið BOURJOIS make-up snyrtivörurnar, því þær eru á
sérlega hagstæðu verði.
Starfs.túlkur Ásýndar eru meðlimir
í Félagi íslenskra snyrtifræðinga.
Ingunn Þórðardóttir, snyrtifræðingur.
4
smrtistúfcm
'A s
Garöastræti 4, sími 29669.
34Vikan5. tbl.