Vikan - 03.02.1983, Blaðsíða 62
POSTIHIW
Roðna alltaf
Hœ elsku Póstur!
Ég á vid dálítið mörg
vandamál að stríða núna.
Ég er svo vodalega feimin að
þegar ég er í miklum mann-
fjölda þori ég ekki að segja
orð og ég þori ekki að tala
við stráka sem ég er hrifin
af. Svo er það vandamál nr.
2 að ég roðna alltaf svo ofsa-
lega. Þegar strákur segir
eitthvað við mig roðna ég
svo að mig langar mest til að
hverfa niður í jörðina. Og
svo er það síðasta vanda-
málið að ég lief svo mikla
minnimáttarkennd að ég
veit ekki hvað ég á að gera.
Vinkonur mínar eru alveg að
verða brjálaðar út afþessari
vitleysu í mér.
Jaja, þá bið ég bara að
heilsa Helgu nöfnu minni.
Bless, bless.
Helga S.
Þessi vandamál eru í raun
og veru eitt og hiö sama
eins og margir kannast viö,
sérstaklega í viðskiptum
viö hitt kynið. Vegna þess
að fólk er feimið og óöruggt
þá roönar það oft. Þetta
getur orðið hinn versti víta-
hringur til lengdar. Ottinn
við að roöna getur fram-
kallaö ennþá meiri kinn-
roða sem manneskjan
skammast sín þá enn
meira fyrir. En er í raun og
veru nokkuð til að skamm-
ast sín fyrir? Af hverju má
fólk ekki bara roðna í friöi?
Það er mannlegt og heil-
brigt að sýna tilfinningar,
mannlegt og heilbrigt að
vera svolítið feiminn. Þar
fyrir utan hefur þú ekkert
til aö skammast þín fyrir.
Þú ert örugglega sæt og
hress stelpa. Gleymdu öllu
öðru en því næst þegar
strákarnir gefa sig eitt-
hvaö að þér. Reyndu um-
fram allt að sannfæra
sjálfa þig um að þaö sé allt
í lagi með þig og þá finnst
öörum þaö líka. Þú þarft
ekkert að skammast þín
fyrir feimnina heldur sigr-
ast á henni. Láttu sem þú
takir ekki eftir því þegar þú
roönar og smám saman
gerist það sjaldnar. Vin-
konur þínar ættu líka að
reyna að hjálpa þér meö
því að látast ekki taka eftir
því heldur. Það gæti hjálp-
að ef þið stelpurnar rædduö
málin. Þær kannast örugg-
lega við vandamálið líka af
eigin raun.
Þér til huggunar upplýs-
ist þaö og að þetta er oft
tímabundið vandamál,
tengist gjarnan kynþroska-
skeiöinu og þeim breyting-
um og umróti sem eiga sér
stað hjá fólki, bæði andlega
og líkamlega, og hverfur
þegar meira jafnvægi
kemst á.
Nokkrir aðdá-
endaklúbbar
ABBA, 2 Sheep Street, High-
worth, Swindon, Wilts,
Great Britain. ABC, P.O.
Box 92, Sheffield Sl ÍLP,
Great Britain. AC/DC, IS
Watson Close, Burg St.
Edmunds, Suffolk, Great
Britain. Adam Ant, The
Bivouac, P.O. Box IQT,
London WIA 4QT. Great
Britain. The Clash, P.O.
Box 87, London NWl, 8NF,
Great Britain. Culture Club,
c/o Wedge Music, 63 Gros-
venor street London Wl,
Great Britain. Depeche
Mode, c/o Mute Records, 102
Seymour Place, London Wl,
England. Dexy’s Midnight
Runners, Yourk House, 27
Tenby Street, Birmingham
B1 3EE, England. Dollar,
P.O. Box 95, London SW15
2TN, England. Duran
Duran, 273 Broad Street,
Birmingham B1 2DS, Eng-
land.
Plásslítill
Póstur
Kœri, frábœri Póstur.
Mig langar að spyrja
hvort það sé svo ferlega lítið
að gera hjá Póstinum að það
sé bara hœgt að setja teikni-
myndasögur og annað í
Póstopnuna eins og til dœm-
is í 51. tbl. 23. des. 1982. Er
það hœgt?
Hvað lest þú út úr skrift-
inni hjá mér og ég vona að
ekki séu margar villur í bréf-
inu. Takk.
Ein sem vonast
eftir svari.
P.S. Hefur verið sami
Póstur (sami maður) síðan
Pósturinn byrjaði?
Pósturinn áskilur sér all-
an rétt til þess að svara
eins mörgum bréfum í Viku
hverri og hann kemst yfir.
Varðandi umrætt blaö er
því til að svara aö mynda-
sögur (sem eru uppáhalds-
efni margra lesenda) höfðu
orðið að sitja á hakanum í
nokkrum blöðum á undan
vegna jólanna og þess aug-
lýsingaflóðs sem þeim fylg-
ir. Til þess að hægt væri að
koma öllum myndasögun-
um fyrir í þessu tölublaöi
var gripiö til þess ráös aö
taka aðra Póstsíðuna. I
svona atriöum hefur álit
Póstsins svo sem ekkert aö
segja hvort sem er — nauð-
syn brýtur lög.
Nei, það hefur ekki alveg
sami maður svarað Póst-
bréfunum frá upphafi því
fyrsti Pósturinn er nú kom-
inn á eftirlaun.
Ef þú læsir Póstinn reglu-
lega og af athygli þá hefðir
þú sennilega rekiö augun í
yfirlýsingu Póstsins þess
efnis að hann sé hættur aö
lesa úr skrift. Bréfið þitt
var blessunarlega laust viö
meiri háttar villur.
Innanhúss-
arkítektúr
og Eddu-hótel
Háttvirti Póstur.
Þar sem ég hef aldrei gerst
svo djörf að skrifa þér þá
langar mig að biðja þig að
svara nokkrum spurningum
sem aldrei þessu vant fjalla
ekki um ástarvandamál. Mig
langar að vita hvert íslend-
ingar hafa helst leitað til að
lœra innanhússarkítektúr.
Hvaða próf eða menntun
þarf til að fá inngöngu í þá
skóla ? Þá langar mig einnig
að vita hvert maður á að
snúa sér ef mann langar að
fá sumarvinnu á Eddu-
hóteli. Hvert er aldurstak-
mark til að gerast þjónustu-
stúlka á þeim? Þarf niaður
að vinna allt sumarið? Með
bestu von um að Pósturinn
svari bréfi mínu og að hin
ógnvekjandi Helga éti ekki
bréfið mitt.
Innanhússarkítektúr er
kenndur í arkítektaháskól-
um víða um heiminn og
Islendingar hafa víða farið
til þess að læra þessa grein.
Stúdentspróf er nauösynleg
undirbúningsmenntun. Til
þess að fá nákvæmar upp-
lýsingar um nám í einstök-
um löndum eða skólum er
best aö hafa samband viö
menntamálaráöuneytiö,
háskóla- og alþjóðadeild, s.
91-25000.
Upplýsingar um ráöning-
ar á Eddu-hótelunum ættir
þú að geta fengið hjá
Feröaskrifstofu ríkisins
sem rekur hótelin, s. 91-
25855.
62VlkanS>tbl.