Vikan - 03.02.1983, Blaðsíða 9
Þessar þrjár myndir eru af Grosven-
or hóteli sem talsvert er hrósað i
greininni. Framhliðin, sem sést á
þeim öllum, var endurhyggð eftir
hrunann sem nákvæm eftirliking af
þvi sem var. 4
og heim á mánudegi — kostar far-
miðinn með flugvallarskatti 4764.
Ef þú hins vegar vilt verða vik-
una, segjum frá föstudegi til
föstudags, sem ekki er goðgá,
verður þú aö gera svo vel aö borga
6.695 með flugvallarskatti fyrir
fargjaldið.
Þá er eftir aö borga gistinguna.
Tvær ferðaskrifstofur bjóöa upp á
helgarferöir til Glasgow, að ég
best veit: Utsýn og Urval. Utsýn
býður þær þegar þetta er skrifað á
kr. 6.344 miðað viö gistingu í
tveggja manna herbergi, Urval á
kr. 6.392. Utsýn er því með
gistinguna á kr. 526,70 pr. nótt pr.
mann, eöa £16,5 miðað við gengi
dagsins, Urval kr. 542,70 eöa £17.
Báðar þessar ferðaskrifstofur
miða verö viö gistingu á Ingram
hóteli, eða Stakis Ingram eíns og
það heitir formlega. Þetta hótel er
í góðum flokki samkvæmt skrám
að sjá og vissulega er þaö á ágæt-
um stað miðað viö Argyle Street
og Levis’s (sjá siðustu Viku). Eg
hef aldrei gist þar sjálfur og hef
því enga reynslu af því nema mat-
sölunni. Henni er óhætt að mæla
með — maturinn þar er mjög
góöur, vel fram borinn og ekki til-
takanlega dýr.
Hótelverðlisti síðasta árs gefur
til kynna að tveggja manna her-
bergi á Ingram meö morgunverði
kosti 37 pund á nóttina, eða 18,5 pr.
mann. Miðaö við þaö fæst tveggja
punda afsláttur pr. mann pr. nótt
hjá Utsýn eða 12 pund alls yfir
helgina, en 1,5 pund á nótt pr.
mann hjá Urvali eða 9 pund yfir
helgina. Við þennan reikning miöa
ég aö sjálfsögöu við feröamanna-
gengið á pundinu, sem flestir
verða að sætta sig við.
Eins og ég sagði hef ég aldrei
gist á Ingram og aldrei séð her-
bergin þar. En ég hef komið í hús-
ið og verð aö segja eins og er að
mér þykir þaö svo sem ekki hafa
höfðinglegt yfirbragð. Téöur
verðlisti, sem einnig gefur
gististöðum einkunnir fyrir her-
bergi, þjónustu og fæöi, gefur
Ingram 5 af 6 mögulegum fyrir
hvern þessara þátta.
Gaman væri að
prófa f leiri
Þaö eru ýmis önnur hótel í
Glasgow sem gaman væri að
prófa. Ef þú átt nógan pening og
vilt bara lifa í vellystingum
praktuglega eina helgi má nefna
Albany Hotel, sem kostar £53,50 til
£60 fyrir tveggja manna her-
bergið, Holíday Inn sem kostar
£51, en bæði þessi hótel fá afdrátt-
arlausa einkunnagjöf upp á 6—6—
6 og þakka skyldi þeim, fyrir
þetta verö!
Svolítiö lægra í skalanum koma
Buchanan Hotel (£35 pr. nótt fyrir
tveggja manna herbergi) með 5—
5—5, Central Hotel (£35—48) með
5—5—6, Glasgow Centre Hotel
(£26-41,20) með 6-5-5, The
Lorne Hotel (£36,50) með 5—5—5,
North British Hotel (£29,50—39,50)
með 5—5—5. Oll þessi hótel eru á
þægilegum stöðum miðað viö
þann stað sem Islendingar
almennt gera sér tíöförlast um í
Glasgow. En líka er hægt að velja
sér talsvert ódýrari hótel en láta
samt fara vel um sig. Mér þykir
Atlantic Hotel til dæmis álitlegt á
£16 fyrir tveggja manna herbergi,
einkunnagjöf 3—3—3. Legunnar
vegna væri líka gaman að vita
nánar um hótel eins og Baird Hall
(£18, 3-2-2), Raffles Hotel
(£18,40—23, 4—3—2) og ekki síst
Royal Hotel (£25—29, 4—4—4). Þá
má einnig velja um mjög góð smá-
hótel eða gistiheimili allt niður í
£12 á nótt pr. mann með
morgunveröi, en þá er almennt
ekki um einkasnyrtingu meö her-
bergjunum aö ræða og tæplega út-
varp, hvað þá sjónvarp á her-
bergjum. Þó er stundum hægt að
leigja þaö sérstaklega. Flest þessi
hótel og gistiheimili er hægt að fá
bókuö gegnum ferðaskrif-
stofurnar hér. Þaö er heldur ekk-
ert mál að fara beint til Glasgow
án þess aö eiga bókaöa gistingu. A
ferðamannafyrirgreiöslunni á
George Square fær maöur
umsvifalaust tilvísun á gistingu í
samræmi við það sem beðið hefur
verið um, hvort heldur hún á aö
vera dýr eöa ódýr, nærri miðju
eða fjarri, og meö sívaxandi
framboöi á B&B (árbít og áningu)
þarf enginn að verða vegalaus.
I langflestum tilvikum hef ég
gist á fábrotnum og ódýrum gisti-
stöðum í Glasgow, sem virðast
eiga þaö sameiginlegt aö vera
hreinir, með þægileg rúm og vel til
reiddan morgunmat sem dugir
fram á miðjan dag. Þaö var því
dálítið óvenjuleg reynsla í síöustu
heimsókn þangað aö dvelja á einu
glænýjasta hóteli borgarinnar,
Grosvenor Hotel (Stakis
Grosvenor) áGreat Western Road
5. tbl. Vikan 9