Vikan


Vikan - 03.02.1983, Síða 7

Vikan - 03.02.1983, Síða 7
fólkiö niöur aöKrossá tilaöfagna áramótum með tilhlýðilegu móti. Þriðji bíllinn, sem hlaut nafnið „fylgdarsveinninn”, haföi verið drekkhlaðinn af viðarefni, sem hlaðið var upp í bálköst á Krossár- aurum. Söfnuðust menn nú saman, kveiktu í bálkestinum, skutu á loft flugeldum og söngv- amir ómuðu um Þórsmörkina. Söngvar og gleöi, sem ekki er í frásögur færandi, héldu áfram uns morgna tókaðnýju. Flestir voru komnir á stjá um hádegisbilið á nýársdag og komið prýðilegasta veður. Haldið var í gönguferðir um Mörkina, örfáir sátu eftir til að þurfa ekki að bleyta hin fötin sín. Hvarvetna sem yl var að fá í skálanum blöstu við spjarir og sokkaplögg hundruðum saman. Göngumenn skiluöu sér í hús um sexleytið. Veðrið versnaði eftir því sem á daginn leiö, þaö fór aö hvessa og um kvöldmatarleytið var kominn leiðinda skaf- renningur. Inni í skálanum var allt með kyrrum kjörum fram undir níu. Þá hófst kvöldvaka sem farar- stjórarnir stýröu af miklum myndarskap. Menn skemmtu sér við margs konar sprell, upplestur, leiki, getraunir og söng. Góður rómur var gerður að gítarleik Lára Agnarsdóttur. Ekkert lát varð á söngnum fyrr en líöa tók á nótt. Eldsnemma að morgni annars dags nýja ársins vöktu fararstjór- arnir mannskapinn og var tekið til við undirbúning heimferöar. Um níuleytið lögðu þeir fyrstu í Krossána og höföu nú skálaþurrkuð föt til skiptanna. Þegar allir voru komnir á þurrt í rútunum hófst leiðangurinn til baka. Kunnugir vita að ekki er langur spölur frá Krossá yfir að Alfa- kirkjunni. En það tók bílana tvær klukkustundir að brjótast þessa stuttu leið. Enn var það græna rútan sem komst allt, en hin sat sem oftast föst. Raunar má segja að sú síðarnefnda hafi verið dreg- in alveg niður að Merkurbæjunum skammt frá þjóðveginum. Þótti mörgum þetta bölvað basl. Afram var haldiö og má segja að öll heimferðin hafi verið hjakk og baks í ám og sköflum, en tals- vert haföi snjóað um nóttina. Akveöið var að enn skyldu flestir ferðalanganna bregða undir sig tveim jafnfljótum, til að létta bílana. Gekk hópurinn frá Stakk- holtsgjá niður að Steinholtsá og héldu menn á sér hita á göngunni. Bílarnir létu hins vegar standa á sér og varð biöin nokkuð löng, farið að líða á kvöld þegar þeir loksins birtust. A meðan hélt fólk- ið á sér hita með því að syngja, fara í leiki og hlaupa um. Ekki tók betra við. Veðrið fór versnandi, gekk á með hríðar- éljum og komnir stórir skaflar í Langanesinu. Var haldið upptekn- um hætti, fólkið fór úr bílunum og gekk spölkom og hjálpaði til við að moka bílunum leið í gegnum skaflana. Sóttist ferðin seinlega. I gegnum túnið á Merkur- bæjunum lá síðasti spölurinn sem hópurinn þurfti að ferðast fót- gangandi. Um f jögurleytið aðfara- nótt þriðja janúar kom fólkið að bæjunum. Heimafólk var vakiö upp og tók það ferðalúnum vel, en þeir fengu sársvangir að hringja tilHellu tilaöpanta veitingar. Starfsfólk Grillskálans á Hellu hafði raunar haft vaðið fyrir neðan sig og látið fylgjast með Þórsmerkurförum úr Fljóts- hlíöinni. Hellubúar voru því vakandi og reiðubúnir að seðja það hungur sem sárt haföi sorfið að frá því snemma um kvöldið. A Hellu nutu svangir ferðalangar dýrindis veitinga og tóku hraust- lega til matar síns eftir volkið í tæpan sólarhring. Ferðin til Reykjavíkur gekk greiðlega og komu þangað áttatíu ánægðir en þreyttir ferðalangar um ellefuleytið aö morgni þriðja janúar. Luku allir lofsorði á þessa erfiðu og viðburðaríku för. 5. tbl. Vikan 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.