Vikan


Vikan - 03.02.1983, Page 17

Vikan - 03.02.1983, Page 17
fo|»|iiiriiiii í ihiff / dag hefur toppurinn mikiö að segja ef ná á fram æskilegu heildarútliti að mati tískuhönnuða. Með þvi erátt við að hattar séu aftur komnir í tísku! Karlmannahattarnir hafa verið vinsælir um nokkurt skeið. Nú virðast aðrar hattagerðir einnig eiga upp á pallborðið, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er teknar voru á götu i New York. Tískuhönnuðir vilja þakka kóngafólkinu þessar auknu vinsældir hattanna og segja að það hafi gengið á undan með góðu fordæmi. Konunglegur höfuðfatnaður er með ýmsu móti og virðist hver geta gengið með þann hatt sem honum líkar best. Því til sönnunar látum við nokkrar myndir fylgja.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.