Vikan


Vikan - 03.02.1983, Side 18

Vikan - 03.02.1983, Side 18
SÍISÍMgjp HBIIBfBiiSlflPJIfíJI iÍHÍ ÍM < wmBUW ips mmi 'gij*ja|iilS!8] HIRSLUR Hvern dreymir ekki um aö hafa hirslu undir allt sem einu heimili fylgir? Hirslu- þörf heimila er vissulega mismikil og bygg- ist fyrst og fremst á því að sumir hafa þann hæfileika aö geta hent hlutum en aðrir hirða allt. Til þess að geta hirt ALLT þarf titan- lega hirslur. Vera má að til sé einhver milli- vegur, að til sé fólk sem hirðir sumt en fleyg- ir öðru, en hitt mun algengara að annað- hvort safni menn öllu nýtanlegu og geymi eða hendi reglulega öllu „drasli”. Og vitan- lega er um sömu fyrirbærin að ræða. Eitt gott ráð er til fyrir þá sem engu henda: Ef ákveðinn staður á heimilinu er alltaf fullur af alls konar fötum, dóti eða járnarusli, komið þá viðeigandi hirslu fyrir á þeim stað við fyrsta tækifæri. Hér eru sýnishorn af því sem úr er að velja í hirslubúðum Reykja- víkur og nágrennis. I þessum feiknastóra skáp eru margar hirslur og rýmið vel nýtt. A hliðunum eru til dæmis lítt áber- andi hurðir og þegar þær eru opnaðar má sjá hilluröð eins og grillir í á myndinni. Þessi skápur fékkst í Antique-Gallery á Skólavörðustíg á 28.000 kr. fyrir skömmu og hver veit nema hann sé enn til? Grindarskúffur eru til margra hluta nyt- samlegar og mjög góðar hirslur. Gott er að geyma föt í þeim, hreinan og óhreinan þvott til að mynda, því loft leikur þá um fatnaðinn. Elfa-grindarskúffur eru seldar í BYKO og víðar og um margar stærðir og geröir er að ræða. Svo dæmi sé tekið kostar grind sem er 45 cm á breidd og 74 cm á hæð með einni grunnri skúffu (8,5 cm) og þrem djúpum (18,5 cm) kr. 907.10. Skúffurnar er einnig hægt að setja á Iista í innréttingu og þá kosta sömu skúffur án grindar kr. 429.80 Gjafahúsið viö Skólavörðustíg er löngu orðið þekkt fyrir lygilegt úrval af körfum og kistum úr tágum. Vegfar- endur geta séð sýnishorn af úrvalinu eigi þeir leið um. Ímiðbæinnigsumir falla í freistni ogfásérkörfuúndir rjónadótið eða reikningana? þær odf rustu kosta 20 kr. g þær dýrustu, sem eru reyndar fóðraðar kistur eins og þær sem sjást fyrir miðri mynd, eru á 5.500 kr.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.