Vikan


Vikan - 03.02.1983, Qupperneq 27

Vikan - 03.02.1983, Qupperneq 27
Þessi sjón blasir viö Fjodorow þegar hann horf- ir á homhimnuna í gegnum smásjá. I samræmi við tölvuútreikningana ristir hann sextán rákir í himnuna. Til aö auka afkastagetu sjúkrahússins hefur Fjodorow varpað fram hugmynd um nokkurs konar færibandafyrir- komulag á augnskurðað- gerðunum. ingu að skurðstofu þar sem sjö sjúklingar liggja á hringlaga borði, sem hægt er að snúa eftir þörfum. Viö höfuð hvers sjúklings situr læknir sem sífellt endurtekur sömu handtökin. Til dæmis opnar sá fyrsti auga sjúklings með ör- vefsmyndun á augnlinsunni. Síðan ýtir hann við borðinu þannig að næsti læknir hefur sjúklinginn framan við sig. Sá fjarlægir ónýtu linsuna úr auganu. Borðið snýst áfram. Þriðji læknirinn setur gervilinsu í augað og sá næsti saumar allt saman aftur. „Við höfum nóg af læknum til að vinna svona, en samt tel ég að læknarnir ættu fremur að beita huga en höndum. Þeir eiga að greina sjúkdóminn og ákveða meðferðina. Handverkið geta vel þjálfaöir aðstoðarmenn unnið. Þeir eru ódýrari en læknar og geta unnið við „hringekjuna”. Tíminn sem fer í að bíöa eftir næsta sjúkl- ingi hefur mjög tekið á þolinmæð- ina. Mig langar til að sjá hvernig svona hringborð virkar í raun og veru. Við verðum komnir með tólf skurðstofur næsta vor, þegar nýja viðbótarbyggingin kemst í gagniö. Sjúkrarúmin verða 500 talsins og við getum skorið upp 100 manns á dag.” Hvernig varð hún til, þessi að- ferð að uppræta nærsýni meö því að rista á hornhimnuna? „Eg fann hana ekki upp,” segir Fjodorow. „Eg gerði hana hins vegar not- hæfa. Fyrir nokkrum árum var komið meö ungan pilt til okkar, hann hafði orðið fyrir því slysi að gleraugun brotnuðu og brot skár- ust inn í hornhimnuna. Bati hans varð skjótur, hornhimnan greri fljótt en hún flattist nokkuð. Af- leiðingin varð sú sem engan hafði grunað, drengurinn sá betur en áður. Þetta tilfelli minnti mig á japanska augnlækninn Sato. Hann hafði þegar árið 1953 reynt aö móta ljósbrot augans hjá nærsýnu fólki.” Og Fjodorow útskýrir þetta nán- ar: „Gerðu þér í hugarlund að nærsýna augað sé ílangt. Það er ekki hægt að stytta það og skerpa sjónina þannig. Aftur á móti er hægt að rétta sjónina af með því að breyta hornhimnunni, þaö er að segja linsu augans. Sato reyndi þetta með því að skera í horn- himnuna bæði utan frá og innan frá (til þess notaði hann sérstakan hníf sem komið var inn í augað). Þetta mistókst vegna þess aö innsta lag hornhimnunnar myndaöi örvef og hún eyðilagðist. Við ristum aftur á móti aðeins í ytra lagið, þá er áhættan mun minni.” Augnlæknirinn þrífur 32 kílóa lóð af skrifborðinu og lyftir því 5. tbl. Vikan 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.