Vikan


Vikan - 03.02.1983, Page 28

Vikan - 03.02.1983, Page 28
Áður en aðgerðin hefst er merkt fyr- ir ristunum með þar til gerðu tæki. Síðan er augað glennt upp og nær- sýnin f jarlægð. beint upp yfir höfuöiö án áreynslu. „Þannig þjálfaöi ég kraftana þeg- ar ég var yngri. Ungur að árum var ég fremur kraftlaus. I fyrsta skipti sem ég varö ástfanginn var það stúlka sem vildi bara sterka stráka. Þá náði ég mér í kennslu- bók í sundi og synti tvo tíma dag hvern í Don-fljótinu. Arangurinn lét ekki á sér standa, ég sigraði brátt í hverri skriösundskeppninni áfæturannarri.” I næsta herbergi við skrifstof- una er boröstofa. Þar hanga alls kyns verölaun og minningargripir um alla veggi. A sófa liggur riffill meö kíki. „Eg nota hann á bjarn- dýraveiðum,” segir Fjodorow. Hann býður upp á villiandarsúpu. „Eg skaut nýveriö 16 villiendur og lét kokkinn f á tvær þeirra. ’ ’ Fjodorow bendir á málverk á einum veggnum. „Þessi ein- kennisbúni maöur er faðir minn. Hann var skeifusmiður og gerðist síðar yfirmaöur riddaraliðssveit- ar. Stalín rak hann í 20 ára útlegð. Þaö var ekki fyrr en ég var 51 árs að ég uppgötvaði hestamanna- blóðið í æðum mér. Eg var í De- troit í Bandaríkjunum og gestgjaf- ar mínir buðu mér að skoða hesta- bú. Eg prófaði að fara á bak og síðan fer ég í útreiðartúr á hverj- um einasta miðvikudegi. ” Nú býður Fjodorow í skoðunar- ferö á skurðstofuna. Þar liggja þrír sjúklingar á skurðborðum og yfir höfði hvers og eins skurðað- gerðasmásjá frá vestur-þýska fyrirtækinu Zeiss. A skurðstofunni ríkir kyrrð, þótt veriö sé aö hefja þrjár aðgerðir. A einu boróinu liggur Ala Mass- orsjena. Hún er 22 ára gömul og leitaði til Fjodorows til að losna við hnausþykk gleraugun, en sjón- in var mínus átta á báðum augum. Hann mælti með skurðaðgerð. Hornhimnan verður ekki skorin, það eru ristir í hana skurðir. Aður en skuröaðgerðin hefst eru gerðar mælingar: nærsýnistig, þykkt og yfirborðssveigur hornhimnunnar, þrýstingurinn í auganu. Upplýs- ingarnar eru lesnar inn í tölvu sem reiknar út hve djúpar risturn- ar eiga að vera og hve stór mið- flöturinn, sem látinn er ósnertur, áaðvera. Með litarefni merkir Fjodorow hring á homhimnuna þar sem hún skal látin ósnert. Með öðrum lit: merkir hann fyrir ristunum 16. Síöan þarf hann einungis að stilla skurðhnífinn í míkrómillímetrum, til að ákveða skurðdýptina. Augað er deyft með dropum og þá er allt tilbúið fyrir skurðaðgerðina. Fjodorow notast við smásjá þegar hann ristir 16 skurði frá ytri brún augnsteinsins inn að miöflet- inum. Það tekur hann tíu mínútur að skipta hornhimnunni eins og tertu. Konan sem gekkst undir að- gerðina fær aöeins plástur yfir augað, engin smyrsl eða lyf. Oft- ast grær hornhimnan svo vel að engin ör sjást þegar hún er skoð- uð með tólf-faldri stækkun. Undir skurðaðgerð af þessu tagi geta gengist þeir sem hafa heil augu að frátalinni nærsýni. A hinn bóginn fyrirfinnast margs konar breytingar á augunum sem útiloka skuröaðgerð: nærsýnisem versnar sífellt, hornhimnusýking- ar, kúlulaga hornhimna, örvefs- myndun á hornhimnu og sködduð nethimna. Börn geta ekki gengist undir aðgerðina fyrr en við 14 ára aldur, fram aö þeim aldri er horn- himnan of sveigjanleg. Skurðaðgerðir af því tagi sem lýst hefur verið kosta í Banda- ríkjunum allt aö 2000 dollara. Og hvað þurfa Rússar að borga? Rík- ið greiðir Rannsóknastofnuninni tíu rúblur fyrir aögerðina og 25 rúblur fyrir hvern dvalardag sjúklings. Komi útlendingar til að- gerða hjá Fjodorow og samstarfs- mönnum hans þurfa þeir ekkert að greiða fyrir aögerðina en aftur á móti kostar dvalardagurinn 40 dollara. 28 Vikan 5 tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.