Vikan


Vikan - 03.02.1983, Qupperneq 31

Vikan - 03.02.1983, Qupperneq 31
The Go-Go's Vinsælasta hljómsveit í Bandaríkjunum á s>öasta ári var Go-Go’s. Hljómplötur hennar, Beauty and the Beat og Vocation, seldust betur en aörar LP-plötur og lögin „We got the beat” og „Our lips are sealed” voru bæði meö ^est spiluöu lögum ársins í útvarpsstöövum Vestanhafs. Go-Go’s er skipuö fimm ungum stúlkum og er fyrsta kvennahljómsveitin sem kemst á toppinn í Bandaríkjunum. Sagan af því hvernig Go-Go’s stúlkurnar Uröu vinsælar er eins og ný útgáfa á ameríska draumnum, sagan af því hvernig fimm venjulegar stelpur, sem fannst gaman aö r°kktónlist, náöu á toppinn, uröu frægar og ríkar. Þaö voru Charlotte Chaffey sólógítar- 'eikari, Belinda Carlisle söngvari og Jane ^iedlin rytmagítarleikari sem stofnuðu bljómsveitina í Los Angeles 1978. Pönkiö haföi j-’á náö til borgarinnar og þær stöllur höfðu ynnst í hinum ýmsu pönkklúbbum á Sv®öinu. Gina Schock, trommuleikari frá eltimore, og Margot Olavierra bassaleikari Voru ráönar til að sjá um taktinn og Go-Go’s for aö troða upp í pönkklúbbunum. I apríl 1980 s°göu þær upp störfum sínum til að geta helg- hijómsveitinni alla krafta. Umboöskona Jómsveitarinnar, Ginger Canzonieri, tók lán á bílinn sinn og veðsetti skartgripina. Það °m í ljós aö þetta borgaði sig því skömmu síöar var þeim boöiö til Englands til að spila með Specials á hljómleikaferðalagi. Um sama leyti kom út litla platan We got the beat hjá enska Stiff-fyrirtækinu, og þessi plata komst í efsta sæti listans yfir innfluttar plötur í USA. Þegar Go-Go’s kom aftur til Los Angeles héldu þær stöllur að nú væri björninn unninn, en svo var ekki. Ihaldssamir tónlist- arsérfræöingar stóru hljómplötufyrirtækj- anna héldu að kvennahljómsveitin hefði enga möguleika. Frægð og vinsældir Hljómsveitin réð nú nýjan bassaleikara, Kathy Valentine, sem leikiö haföi meö Girl- school í Bretlandi og Textones í Texas. Skömmu síðar gerðu þær samning viö óháöa fyrirtækið I.R.S., sem er lítiö fyrirtæki í eigu Miles Copeland, bróöur eins af Police-með- limum. Fyrir þetta fyrirtæki hljóðrituöu þær stóru plötuna Beauty and the Beat. Upptökum stjórnaði Richard Gottehrer, sem áður hafði meðal annars unnið meö Blondie. Utvarpsstöövar vildu ekki spila plötuna svo að Go-Go’s hélt í hljómleikaferðalag um öll Bandaríkin. Hvarvetna var fullt hús og hvar sem þær fóru rauk salan á plötunni upp í topp. Hinar íhaldssömu útvarpsstöövar uröu aö láta undan þrýstingnum og fóru aö spila plötuna. Loks, sjö mánuðum eftir útkomu plötunnar, og eftir aöra hljómleikaferð, þa sem upphitun hjá Police, náöi Beauty and the Beat efsta sæti vinsældalistans. Þetta var í febrúar 1982 og platan hélst á toppnum i sex vikur samfleytt. „We got the beat” náði ööru sætinu á listanum yfir vinsælustu lögin. Þetta var einstakur árangur sem náðst hafði meö mikilli vinnu og léttu og skemmtilegu rokki sem flutt var á hressilegan hátt. Stúlkurnar í Go-Go’s eru ekkert sér- staklega mikil kyntákn. Þær eru frekar stelpan-í-næsta-húsi-tegundin, viðkunnanleg- ar og skemmtilegar. I upphafi voru þær hálf- gerðar fitubollur en fóru svo í megrun aö skipan umboöskonunnar. A síðasta ári fóru þær aö nýju í stúdíó og gerðu aðra LP-plötu, Vocation. A þeirri plötu reyndu þær og upptökustjórinn, sem aftur var Richard Gottehrer, aö bæta um betur frá fyrri plötunni, meö grófara sándi og ýmsum öörum tilraunum. Platan náöi ekki sömu vinsældum og Beauty and the Beat en er alls ekki síöri aö gæöum. Titillagið heyröist oft í íslenska út- varpinu á síöasta ári, ef einhver man eftir því. Sagan um Go-Go’s er mjög skemmtileg. Hún er sagan um það hvernig draumar rætast eftir mikla baráttu. Rokktónlist hljómsveit- arinnar er ekki sú tegund tónlistar sem veldur jarðsögulegum breytingum en í Ameríku er hún sú róttækasta sem komið hefur fram lengi. I 5. tbl. ViKan 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.