Vikan


Vikan - 03.02.1983, Side 51

Vikan - 03.02.1983, Side 51
Draumar Margir draumar um hitt og þetta Kæri draumráðandi. Mig langar til að biðja þig að ráða hér nokkra drauma fyrir mig. 1. Það var eitthvert boð heima eða alla vega voru hjón þar sem ég hef aldrei séð. Hjónin voru eitthvað ,,íðí” og maðurinn byrjaði að kyssa aðra konu sem var þarna líka. Þá fór eiginkon- an út úr stofunni og kom svo aftur inn með skókassa. Konan rétti manninum sínum kassann með bros á vör. Þegar hann opnaði kassann stökk upp úr hon- um eiturslanga. Eiturslang- an stökk fram á gólf og ég hljóp út í horn en opnaði fram og slangan fór þangað í ofboði. Stuttu seinna kom mamma inn í stofu og sagði mér að slangan hefði bitið bróður minn ífótinn. Eg sá það fyrir mér í draumnum. 2. Það voru nokkrar ung- ar stelpur sem áttu börn. Systir mín var þeirra á meðal (X) og litla dóttir hennar (Z). X og hinar stelpurnar voru að tala um mikla útsölu og ég var að reyna að ýta kerru Z upp lítið barð (við vorum stadd- ar á túni rétt hjá húsi mínu). Svo sleppti ég kerr- unni á meðan ég var að staulast upp barðið sjálf. Kerran rann niður brekk- una á túninu (löng brekka) og ég á eftir, en ég var í klossum og var alltaf að hugsa um að fara úr þeim en lét aldrei af því verða. X öskraði og Z líka og rétti fram hendurnar. En það var of seint að elta Z. Allt í einu rakst kerran á eitthvað appelsínugult neðst í brekkunni og Z flaug upp úr kerrunm með ofsa hraða og þá vaknaði ég. En ég er viss um að enginn krakki hefði lifað þetta af, svo rosalegt flug var þetta. Z er aðeins eins árs og mér þykir ofsalega vænt um hana. 3. Þessi draumur er svo- lítið skrýtinn. Eg var fátæk og allt var eld-gamaldags (í Húsið á sléttunni-stíl). Eg var að koma heim af dans- leik og var með fjóslukt um leið og ég gekk inn í húsið. Mamma lá veik í rúminu (ekki mamma í raunveru- leikanum). Hún lá þarna eins og steingervingur í innra herberginu með svitaperlur á andlitinu. Eg gekk að henni og leit út um gluggann sem var eins og í fangelsi, kolryðgaðir riml- ar. Þá komu strákar í mín- um bekk. Strákarnir byrj- uðu að kasta tómötum og svoleiðis inn um gluggann og í húsið eins og indíánar með hávaða og látum. Eg hljóp út úr húsinu, heim til fyrrverandi vinkonu minnar og bað hana að koma og hjálpa mér. Við hlupum niður að húsinu og réðumst á strákana. Svo allt í einu var ég komin heim í mitt hús og mín eigin móðir kom á móti mér og sagði að ég mætti aldrei fara í þetta hús oftar. Erá mínu eigin húsi sást gamla húsið vel og það var eitt og gamaldags innan um hin húsin. Og svo hefur mig tvisvar dreymt að strákar hötuðu mig og í bæði skiptin vegna vinkonu minnar sem er mjög vinsæl hjá strákum. Eyrri draumurinn er mér óljós, man bara að tveir strákar, sem voru hrifnir af vinkonu minni, voru að elta mig uppi vegna þess að þeir sögðu að ég væri búin að spilla henni þannig að hún liti ekki á þá. Eg faldi mig í blokk, sem enginn átti heima í, en þeir fundu mig og börðu. Sá síðari er skýrari. Eg var á leið á fót- boltaleik eða rallí. Leikur- inn átti að vera fyrir utan bæinn sem ég bý í. Eg fór á puttanum og sá þá að strákurinn, sem vinkonan er hrifin af, kom á bílnum. Eg stoppaði hann og fékk far því hann var líka að fara á leikinn. Við vorum þögul alla leiðina. Eftir leikinn fór ég beint að btlnum og settist inn. En skömmu síðar var btllinn orðinn fullur af strákum sem allir hafa einhvern tíma verið hrifnir af vinkonu minni. Hún var líka með og við sátum framí. Strákarnir fara að tala um hvað ég sé leiðinleg og reyna stðan að ýta mér út um bíldyrnar. Þeir hötuðu mig allir. Eg spurði þá af hverju þeir segðu þetta en fékk ekkert svar. Og ég skil ekki sjálf af hverju allir strákar hata mig í draumum og alltaf út af vinkonu minni því við er- um góðar vinkonur. Hér koma þrír draumar sem varla eru í frásögur fær- andi. . . Það er mjög þýðingar- mikið fyrir mig að fá ráðn- ingu. Dreymsa Fyrsti draumurinn er fyrirboði erfiðleika sem verða af völdum einhvers af þeim er standa þér næstir. Einhver svik tengjast þeim atburðum sem munu koma þér og öðrum ættingjum óþægilega á óvart. Næsti draumur er sennilega af- leiðing hugsana þinna í vökunni, er einungis hræðsla þín við að eitthvað illt komi fyrir systurdóttur þína. Engin ástæða er til að ætla að þessi draumur boði henni eitthvað illt í fram- tíðinni. Þriðji draumurinn er fyrirboði einhverra erfið- leika í ástamálum og mun þér hollast að fara að öllu með gát og umfram allt að vera ekki of auðtrúa. Mundu að þú ert ekki eina mannveran sem kynnist því að vegir ástarinnar eru ekki alltaf blómum stráðir og betra að hafa sterk bein til að þola verstu stormana. Hinir draumarnir eru svo mikið til afleiðingar hugs- ana þinna í vökunni, með- vitaðra og ómeðvitaðra. Minnimáttarkennd gagn- vart vinkonunni brýst þannig fram í draumi og engin ástæða til að taka mark á þeim draumum á annan máta. Hatur strák- anna til þín í draumum er lítt marktækt og merkir einungis að ennþá ertu of ung og óörugg í samskipt- um við hitt kynið til þess að standa gegn ýmsum öflum. Draumarnir óbirtu tákna í raun og veru alveg það sama og þeir fyrri. Eitthvað vefst fyrir þér samband þitt og unga stráksins og kemur út í draumnum sem efi um hans raunverulega kyn- ferði. Einnig þarna er ekk- ert mark takandi á táknum því slíkir draumar eru oft- ast afleiðing hugsana í vök- unni og hafa sáralitla þýðingu í framtíðinni. Megininntak draumanna er að þér muni happadrýgst að fara varlega í samskipt- um við hitt kynið á næst- unni enda nægur tími til að sinna þeim málum síðar. S. tbl. Víkan 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.