Vikan


Vikan - 20.12.1984, Blaðsíða 45

Vikan - 20.12.1984, Blaðsíða 45
Oskum vidskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gledilegra jóla og farsœls komandi árs. Kassagerd Regkjavíkur, Kleppsvegi 33. Sími 38383. Kexverksmidjan Frón hf., Skúlagötu 28. Sími 11400. Kjörbúdin Hólagaröi, Lóuhólum 2—6. Sími 74100. Kjöreign fsímar 685009—685988 ® rian V « lAliinm IXok»Jkl_ Annúla 21. Dan V.8. Wiium, lögfraaóingur. Ólafur Guðmundsson sölum. skrifst. Skúlagötu 32. Sími 15245. Verksm. Hveragerði. Sími 99-4167. kostá]|böd\ Bankastræti 10. Sími 13122. Landgrœöslusjóöur, Söluskálinn v/Reykjanesbraut. Símar 40300,44081 og 44080. ClANDSVIRKJUN Háaleitisbraut 68. Sími 686400 Olafur Þorsteinsson & Co. hf., Vatnagöröum 4. Sími 685044. Grensásvegi 11. Sími 83500. 'málning'f Kársnesbraut 32 Kópavogi. Sími 40460. JM ■ ■■■% 0""% Síðumúla 22. Sími 83040. ^[□in wææ Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi. Sími 99-1301. Hf. Miönes Sandgerði. Símar 92-7403,7418 og 7446. Miöfellhf., verktakar Funahöfða 7. Símar 31155 og 81366. Glæsibæ, Álfheimum 74, sími 83210. Laugavegi 66, sími 28990. ORA Niöursuðuverksmiðjan Vesturvör 12, Kópavogi. Sími 41995. rídaaPrentHúsið Barónsstíg 11B - Sími 26380 Háaleitisbraut 68. Sími 84445. Ragnar Björnsson, Dalshrauni 6 Hafnarfirði. Sími 50397. 44 Vikan 45. tbl. mmmm . _ \Va Framhaldssaga hafa gert sér einhverja grein fyrir því sem þeir voru í þann veginn aö neyöa hana til. Hún byrjaði að veina og hristi höfuðið. „Hvar eru peningarnir, maður?” spurði sá óseðjandi Jacques Martin. Allt sem á undan hafði gengið, allt sem ég hafði látið Maríu þola — mín vegna — því mátti ekki varpa frá sér án þess að kasta ten- ingunum einu sinni enn. Og ég sver þér það, lafði Devizes, að ein- lægur ásetningur minn var að gefast upp og játa áöur en síðasta svívirðingin væri framin á Maríu minni. „Það eru engir peningar!” hrópaði ég.” Það varð þögn, svo ofboðsleg að jafnvel stríðstrumban á hæðar- brúninni heyrðist ekki fyrir henni. Emma hélt niðri í sér andanum, óttaðist að trufla hárfínt jafn- vægið milli geðveiki og raunveru- leika sem hún og þessi maður héldu. Þó kallaði hún hljóölaust á hann að rjúfa óbærilega spennuna sem umlukti nóttina. „Og svo. . .?” spuröi hún hann og greip hendinni þegar í stað yfir munninn, brá við ósvífni sína. „Og svo,” sagði hann, „var því öllu lokið — eða næstum lokiö. Jacques Martin yppti öxlum, sneri sér að félögum sínum og sagði: „Okkur skjátlaðist. Hann er greinilega að segja sannleikann. Það eru engir peningar hérna. Þaö skiptir ekki máli, vinir mínir, þið hafið fengið að gamna ykkur viö stúlkuna.” Og svo fóru þeir án þess aö líta viö, skildu við okkur eins og viö vorum, rétt eins og þeir höfðu niöurlægt okkur, bæði tvö: hjálp- arvana, klæðlaus, svívirt — og ein saman með sameiginlegan harm- leikokkar.” EMMU HAFÐI þótt frásögnin skelfileg, jafnóbærileg og þegar neglur eru dregnar eftir hrjúfum vegg. Það var ennþá verra sem á eftirkom. . . Yves sagði: „María skar mig ekki niður fyrr en hún var búin að klæða sig. Hún beindi augunum frá nekt minni þegar hún skar reipið í sundur með eldhúshníf. Við skiptumst ekki á oröum fyrr en ég var búinn að hylja nekt mína. Þá lagöi ég hönd á öxl hennar og spurði hana hvort allt væri í lagi með hana. Með því átti ég við hvort henni væri illt og hvort hún vildi að ég sækti handa sér lækni. Ég var ekki nógu næmur — en ég segi þér það, lafði Devizes, að það er ég núna — til að geta mér til um sálarkvalir hennar. Varlega, svo að ég tók næstum ekki eftir því, smeygði hún sér undan handtaki mínu, tautaði að það væri allt í lagi. Ég sagði viö hana: „María, stúlkan mín, þú hefur mikið þurft að líða en þú sigraðir að lokum.” „Já, pabbi,” svaraði hún og fór út án þess að segja fleira eða líta um öxl. Ég gróf Alphonsine, veslings tíkina mína, og þegar ég hugsaði um þaö sem þeir höfðu gert veslings málleysingjanum kvikn- aði bræði mín á nýjan leik. Ætti ég að elta þá og hefna mín? Það yrði létt að hafa uppi á Jacques Martin. Drepa þá alia þrjá? Hvað hagnaöist ég á því? Ég ætlaöi aö láta svolítinn tíma líða, sagði ég við sjálfan mig. Þaö skipti meira máli að græða sár Maríu heldur en aðhefna sín. Ég byrjaði að útbúa kvöldverð- inn okkar, bakaða kanínu, sem var uppáhaldsréttur Maríu, og lagði mig meira fram við verkið en venjulega. Ég lagði á borðið og setti þar afganginn af víninu sem ég hafði komið með frá Quebec. Ég setti þar kerti og vasa með ný- tíndum vorblómum. Ég sagði við sjálfan mig að við myndum gera svolitla fagnaöarhátíð úr harm- leik okkar, staðfestingu á ákvörð- un okkar að hef ja saman nýtt líf. Það rökkvaöi. Ég fór til dyra og kallaði á Maríu en hún kom ekki. Kvöldverðurinn varð kaldur og ég hitaði hann aftur upp. Ég saup á víninu; þaö var orðið súrt í flösk- unni. Ég fór út að leita aö Maríu og fann hana rétt við þröskuldinn hjá okkur. Hún hafði hengt sig í trjá- grein. Hún var ekki með lífs- marki.” Þriðji kafli. Á ÞVI andartaki vissi Emma að hann hafði ofboðiö sér. Það höfðu veriö skelfileg mistök að feta sig aftur í fortíðina og fletta ofan af harmleiknum um Maríu. „Yves, Yves, ekki fara. Vertu hérna kyrr og við skulum tala um eitthvað annaö.. .” Hún greip um hönd hans þegar hann reis á fætur, stareygður og rétt við vitfirringu. „Nei, nei!” sagði hann lágt. „Sýndu mér enga samúð, lafði Devizes. Ég drap hana! Ég, faöir- inn, drap mitt eigið barn eins örugglega og hefði ég lagt reipið um háls henni og sparkað undan henni trjábolnum sem hún haföi staðið á. Ég þarf eitthvað að drekka! Hvað gerði ég við fjárans flöskuna?” Hann sleit sig af Emmu og haltraði burt, leit tryllingslega í kringum sig. Hún heyrði hann hnjóta í skriðunni, sparka í stein- ana, bölva, tauta æðislega og óskiljanlega frönsku. Loks hljóðnaði hann. Það heyrð- ist aöeins djúpt, langdregiö og skelfilegt hljóð sem kona getur ekki afborið: grátur manns. Hjarta Emmu bráðnaði af óum- ræðilegri samúð. Fljótlega tók líka að kólna og á hvert grasstrá og kyrrt laufblað féll kniplinga- hjúpur frosts. Hún stóö skyndilega upp. tók hjartarskinnssvefnpok- ann og fór að leita að honum. Hann lá í hnipri upp við klettinn, sneri andlitinu að steininum, hafði dregið hnén upp undir sig og hafði handleggina þétt krosslagða yfir bringuna. Frostið var þegar farið aö setjast á hárin sem stóðu út úr hvítum makka hans og á kögrið á hjartarskinnsstakknum. Hún kraup og snerti öxl hans. Hann vaknaði samstundis og langur veiðihnífurinn glampaöi í hnefa hans. Venjur auönarinnar hverfa seint. „Nú, ert þetta þú?” sagöi hann. „Gerðu þetta aldrei aftur. Þú fékkst hnífinn næstum milli rifj- anna. Af hverju ertu komin hing- að?” Hann skalf en hvort þaö var af kulda eða hugarangri vissi hún ekki. Emma var fullkomlega blátt áfram, gaf ekki kost á neinum andmælum. Hún breiddi úr svefn- pokanum, opnaði hann svo að slétt skinnfóðrið blasti við. Svo renndi hún sér í hann og teygði sig eftir hendi veiðimannsins. „Komdu líka, Yves,” sagði hún. „Hvernig á ég nokkurn tíma að komast til Quebec ef ég leyfi þér að farast úr kulda? Komdu — þú hefur sofið hjá mér áður. Þú hefur sagt mér það.” „Undir honum,” sagði hann. „Ekki ofan í honum. Það er ekki rúmfyrirtvo þar.” „Það yrði það,” sagði hún, „ef þú færir úr þessum leðurstakki og þessum fáránlegu háu stígvélum. Komdu nú. Flýttu þér! Mér er hrollkalt.” Og þannig tókst Emmu glettnis- lega — kvartaði svolítið yfir því hvað hann fór sér hægt, hvatti hann látlaust — að fá hann til að fara úr ytri fötunum og þykku hjartarskinnsstígvélunum sem náðu honum upp að hnjám. Og hann skreiö niður í væran ylinn í loöfóðruðum svefnpokanum sem var svo þröngur að hann neyddist til að vera í stöðugri snertingu við mjúkan líkama hennar. „Jæja — þarna sérðu,” lýsti Emma yfir. „Nægilegt rúm fyrir okkur bæði og meira til. Fer nægi- lega vel um þig? Handleggurinn er svolítiö fyrir. Af hverju )egg- urðu hann ekki um mittið á mér? Svona. Þarna. Er þetta betra?” „Af hverju ertu að þessu?” urr- aöi hann í eyra hennar. Það var af honum fúl vínlykt, ekki þó jafn- slæm og áður. „Færi ekki betur um þig,” sagði Emma, „ef þú létir ekki höfuðið og megnið af hálsinum standa út úr pokanum en drægir það frekar inn og legöir það á barm minn?” Líkt og ungbarn lét hún hann hjúfra sig upp að brjóstum sínum, hélt smárri hendinni um háls hans og hélt honum kyrrum. „Eg hef aldrei legið með konu eftir þennan dag,” sagði hann. „Daginnsem. . .” „Þú svafst hjá mér,” greip hún ákveðin fram í. „En ekki með neinni löngun,” svaraði hann. „Frá deginum sem dóttur minni var nauðgað og hún dó hef ég verið ófær um að þóknast nokkurri konu. Ég er eins og — geldingur!” „Langar þig í mig núna, Yves?” hvíslaðihún. „Bara svolítið?” „Já. Það er einkennilegt en mig langar til þess — en það er gagns- laustaövona.” „Mmmmmm.” Langt í burtu vældi ugla. Rétt hjá þeim þaut næturvindur í trjá- toppunum. Hann fann hönd henn- ar færast upp eftir upphlutinum hennar. Andartaki síðar, þegar hann hreyfði höfuðið, harðnaði nakin geirvarta hennar við vanga hans. „Ég var að velta því fyrir mér,” sagöi Emma, „hvort þú vildir vera svo vænn að klóra mér á bak- inu. Þetta er gott. Og núna aðeins neðar. Undir fötunum, ef þú vildir vera svo vænn. Unaðslegt.” Malandi ánægja hennar hvatti hann til dáða og veiðimaðurinn hélt áfram atlotum sínum, varð æ djarfari við þau. Við það tóku þau bæði eftir að tilfinningar hans voru orðnar hluti af þessum glettnislega daðurleik sem hún hafði hafið og að áþreifanlegt kraftaverk hafði orðið í loö- fóðraðri púpunni sem þau deildu með sér í frosti auðnarinnar. Skref fyrir skref, hún alltaf í for- ystu, stýrði höndum hans og 45. tbl. Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.