Vikan - 20.12.1984, Blaðsíða 36
SAGA JOLAPOKANS
Hver fléttaði fyrsta
íslenska jólapokann?
Hver skyldi hafa fléttað
fyrsta íslenska hjartalaga
jólapokann? Um það eru
engar öruggar heimildir.
En jólasérfræðingar telja
ekki ólíklegt að þar hafi
verið að verki óþekktur
danskur kobmand Sören-
sen sem hafi borið þessa
hefð með sér frá Dan-
mörku.
Þó Danir þyki hvað best-
ir í að flétta hjartalaga jóla-
poka og engum Dana þyki
jól nema fléttaði jólapok-
inn sé á sínum stað mun
hugmyndin upprunalega
vera komin frá Þýskalandi.
Þar hafa menn fléttað jóla-
poka í tæpar tvær aldir.
Þaðan mun einnig kominn
músastiginn og fléttaðar,
útklipptar pappírslengjur
sem hengdar eru upp í loft
ogá veggi.
Árið 1840 stofnaði
Friedrich Fröbel fyrsta
barnaheimilið í Þýskalandi
og kenndi börnunum að
flétta poka, körfur og mjóa
pappírsstrimla saman í
mikil listaverk. Síðan er
ákveðin aðferð í þessari list
kölluð Fröbel-aðferðin. Frá
þessu barnaheimili bárust
flétturnar til annarra
barnaheimila og þaðan til
annarra landa. En þó
fléttulistin sé rakin til
Þýskalands er eflaust hægt
að rekja hana mörg þúsund
ár aftur í tímann. Ekki þarf
annað en að líta á þjóðlega
muni í Kína ogjapan til að
sjá að þar liggur sama hug-
mynd að baki.
Danir vita einnig upp á
hár hver það var sem fléttaði
fyrsta danska hjartað. Og
það var enginn venjulegur
maður heldur sjálfur rit-
höfundurinn H.C.Ander-
sen. Ævintýrarithöfundur-
inn ku hafa verið óvanalega
laginn með skæri og prýða
margar útklipptar myndir
og hjörtu klippibækur hans
sem varðveist hafa fram á
þennan dag. Um 1860
klippti hann svo hjörtu,
annað gult og hitt grænt,
og fléttaði þau saman, ein-
mitt eins og við gerum nú
er við búum til jólapok-
ana. Hjartað gaf hann sinni
heittelskuðu Mathilde
Orsted en ekki virðist það
þó hafa verið sérstaklega
ætlað á jólatré þar sem eng-
inn hanki var á því.
Eins og áður sagði þykja
Danir meistarar meistar-
anna í fléttuðum jólapok-
um og hafa þeir verið
óþreytandi við að finna
upp ný og ný flókin mynst-
ur. í sumum fjölskyldum er
jafnvel keppni um hver jól,
um hver býr til flóknasta
eða minnsta jólahjartað.
Þeir allra færustu geta flétt-
að stafi inn í pokann og er
áletrunin JÓL auðvitað vin-
sælust. Aðrir flétta minni
hjörtu, jólaklukkur, stjörn-
ur og aðra jólalega hluti
inn í pokana sína. En þrátt
fyrir alla meistaratilburði í
fléttutækninni er litla, ein-
falda jólahjartað vinsælast.
36 Vikan 4S. tbl.