Vikan - 20.12.1984, Blaðsíða 47
vörum, hvíslaði ljúf hvatningar-
orð hvenær sem hann virtist hika,
andaöi ánægðum hvatningarorð-
um á áköf eyru hans, þutu veiði-
maðurinn Yves og unga hefðar-
mærin í anda upp úr hlýrri púpu
sinni, risu upp til eilífrar dýrðar
næturhiminsins og út í sólskin
handan allrar ímyndunar, þar
sem draumar taka á sig mynd og
verða raunverulegir. Þau sneru
aftur á sama andartaki, enn sam-
fléttuö, munnur við munn, and-
stutt, mett, södd og fullnægð
meira en trúa nær.
„Alla ævi mína,” hvíslaöi hann
við hold hennar, „get ég aldrei
þakkað þér nógu eða endurgreitt
þér það sem þú hefur gefið mér. ’ ’
„Ég gaf þér svo afskaplega
lítið,” sagöi Emma, „lítinn hluta
af sjálfri mér, svolitla ástúð. Lítið
endurgjald fyrir þaö sem þú hefur
þegar gert fyrir mig — eins og það
aðbjarga lífi mínu.”
„Þaö sem þú hefur gefið mér er
karlmennska mín,” sagði Yves,
„karlmennskan sem flýði frá mér
frammi fyrir brostnum augum
barnsins míns. Hár mitt var kol-
svart. Það varð hvítt kvöldið sem
María hengdi sig út af mér og ég
hef verið eins og geldingur.”
„Ekki út af þér,” ávítaði hún
hann blíðlega. „Þú hélst fast í
þögnina hennar vegna, ekki sjálfs
þín. Það voru þeir — mennirnir
sem nauðguöu henni — sem ráku
hana til að gera þaö sem hún
gerði.”
Þögn.
Og svo grét hann við brjóst
hennar. Hún fann rakann safnast
fyrir og mynda heitan straum nið-
ur á milli brjóstanna og á kvið
sinn. Vindurinn hvein í háum
trjánum.
EMMA SVAF til hádegis og Yves
skoðaði sár hennar. Hraust, ungt
holdið greri fallega (áreynsla
þeirra kvöldið áður hafði ekki haft
nein slæm áhrif); einfalt, nærandi
fæðið sem hún hafði neytt í gilinu
hafði byggt upp krafta hennar.
Veiðimaðurinn kinkaði kolli og
breiddi aftur yfir hana.
„Við förum,” sagði hann. „Ég
verð aö koma þér til St. Lawrence
áður en feraðsnjóa.”
Emma leit upp á ójafnt strikið
sem varðeldar írókanna mörkuðu
í blámann.
„Hvað um — þá? ” spurði hún.
Framhald i næsta blaði.
COTT VEGGRiP
GÓÐ ENDING
QÖMfl (BffiQI?
Hvort er mikilvægara griphæfni hjól-
barðans eða ending?
Hvortveggja skiptir miklu og þess vegna
eru báðir þessir eiginleikar í hámarki í
Goodyear Ultra Grip börðunum. Þetta eru
hjólbarðar með sérstæðu munstri, sem
gefur ótrúlega fast grip, jafnvel í bröttum
brekkum. Þeir standa einstaklega vel á ..s
hálku og troða lausamjöll vel undir sig. Æ
Munsturgerðin og hin sérstaka
gúmmíblanda valda því að barðinn f?
heldur eiginleikum sínum að fullu M
út allan endingartímann, sem er
mjög langur. Munsturraufarnar eru #
þannig lagaðar, að þær hreinsast af
sjálfu sér í snjó og krapi. -jgg;
Áauðum vegi eru Ultra Grip
barðarnir mjúkir og hljóðlátir.
Á Ultra Grip hefurðu öryggið með í 3?|§
förinni. Mm
Goodyear gerir enga málamiðlun,
þegar um er að ræða umferðar-
öryggi.
— Öll hjólbarðaþjónusta fyrir fólksbíla og sendibíla —
GOODWYEAR
GEFUfí 0'fíÉTTA GRIPIÐ
IHIHEKLAHF
J Laugavegi 170-172 Sími 21240
VISA
46. tbl. ViKan 47