Vikan - 30.01.1986, Page 24
KRÁKAN
kemur á óvart
Umsjón: Bryndís Kristjánsdóttir
j^rákan er vinalegur veitingastaður á horni Lauga-
vegar og Klapparstígs í Reykjavík, þar scm áður var
Rauða myllan.
Inni er allt I ljósum og léttum stíl nema hvað litrík
málverk hanga á veggjunum. Stöðugt eru í gangi
málverkasýningar á Krákunni og þegar okkur bar þar
að garði voru málverkin eftir Bjarna Ragnar. Segja
má að málverkin hafi á vissan hátt endurspeglað
matseðil staðarins — sem byggist upp á óvenjuleg-
um, framandi og litríkum réttum — því þau voru
mörg mjög litrík og minntu nokkuð á verk eftir
suður-ameríska listamenn. Annars má kannski segja
að staðinn skorti sinn eigin stíl í útliti því hann
minnir um of á Torfuna og Lsekjarbrekku.
Matseðillinn er nokkuð f|ölbreyttur og auk hans er
boðið upp á rétti dagsins. Margir réttanna eru ættaðir
frá fjarlægum löndum og settu þeir sem ætla að fá sér
hina hefðbundnu „steik og kartöflur'’ að fara eitt-
hvað annað, en hinir, sem hafa gaman af því að
bragða eitthvað nýtt og öðruvísi, geta örugglega
fundið eitthvað gómsætt á matscðlinum. Þar er að
finna tvenns konar súpur, karrí- og sjávarréttasúpur,
forrétti, smárétti, grænmetisrétti, fisk- og kjötrétti.
Krákan er með vínveitingaleyfi og þó víniistinn sé
ekki stór þá er þar að finna flestar aigengustu
víntegundirnar.
\^ið vildum bragða á einhverju óvenjulegu og
völdum okkurí forrétt „tzatziki/tarramasalada" sem
eru tvenns konar ídýfur ættaðar frá Grikklandi og eru
þær borðaðar með heimabökuðu flatbrauði. Þctta
var mjög góður og skemmtilegur forréttur, önnur
Idýfan var með sítrónukeim en hin minnti nokkuð á
humus sem er austurlenskur réttur. Brauðið líkist
píta-brauði á bragðið. I aðalrétt var borðaður
„skræpótti fugiinn’’ en það er kjúklingur bakaður I
Tandooriofni. Undirrituð er yfirleitt lítt hrifín af
íslenskum kjúklingum þar sem þeir eru oft þurrir og
kjötlitlir. En skræpótti fuglinn var alveg einstaklega
mjúkur og safaríkur og er það Tandooriofninum að
24 Vikanð. tbl.
i
[rákair
restaurant