Vikan - 27.02.1986, Síða 63
Krakkarnir á myndunum heita Pétur Alan
Boucher og Kathy Boucher._____________________
Kókoskúlurnar, sem kokkur-
inn er með á myndinni, eru
alveg ægilega góðar. Það
þarf ekki að baka þær og því
geta krakkarnir útbúið þær
sjálfír. Þau minnstu verða bara að fá
smáhjálp við að vigta efnið sem fer í þær.
Og hér kemur þá uppskriftin:
3/4 dlmjólk
75 g smjörlíki
185 g flórsykur
250gkókosmjöl
35gkakó
Öllu þessu er hrært vel saman. Það er í
lagi að nota hendurnar ef þið þvoið ykkur
vel áður. Þegar allt hefur blandast vel
saman á að búa til litlar kúlur sem síðan
er velt upp úr kókosmjöli. Þá skuluð þið
raða kókoskúlunum á disk og setja inn í
ísskáp svo að þær stífni svolítið. Strákur-
inn á myndinni hefur sett kókoskúlurnar
í lítil pappírsform - þau fást í mörgum
stórmörkuðum - en það er alls ekki nauð-
synlegt, þið getið eins raðað þeim á falleg-
an disk.
Eftir Hólmfríði Benediktsdóttur
Myndirnar tók Ragnar Th.
Það er ekki mikill vandi fyrir
litlar stelpur að útbúa sína
eigin skartgripi. I föndur-
verslunum og víðar fást
plastperlur í mörgum litum.
Til að búa til perlufesti, eins og er á
myndinni, þarf tvo liti af plastperlum og
tvær stærri trékúlur. Þræðið 35 perlur upp
á band, trékúluna, 35 perlur, hina trékúl-
una og' þá aftur 35 perlur. Nú takið þið
hinn litinn af perlunum og þræðið í 35,
svo í gegnum fyrri trékúluna, þá 35 perlur
og í gegnum seinni trékúluna og síðast
35 perlur. Hnýtið bandið vel saman og þá
er komin tvöföld perlufesti. Þið getið haft
fleiri trékúlur en verðið að passa að hafa
alltaf jafnmargar perlur á milli. Armbönd-
in eru úr litlum trékúlum og tréhjörtum
sem eru þrædd upp á teygjutvinna. Efnið
í þessa skartgripi fékkst í versluninni Litir
og föndur í Keykjavík.
1