Vikan - 05.06.1986, Blaðsíða 50
D H A U M A R
VAKNAÐi
GRÁTANDI
Kæri draumráöandi.
Ég sendi þér hér enn einu sinni
draum til ráðningar. Ég var í vinn-
unni, það voru allir að hætta og
ég átti eftir að þrífa eitt og hálft
borð. Ég hugsaði að ég yrði að
flýta mér svo ég yrði ekki langt á
eftir öllum hinum. Þá sé ég stelpu
labba um og litast um eftir ein-
hverjum. Ég hugsaði: Er þetta A?
Nei, það getur ekki verið, en jú,
þetta er hún. Ég labbaði til hennar
og heilsaði. Hún var að leita að
mér. Hún sagði að hún væri
kannski að flytja hingað en hún
býr núna í Reykjavík. Mér fannst
í draumnum eins og mamma
hennar og pabbi væru hér að
hugsa um búgarð fyrir einhvern.
Hún sagði að hún og kærastinn
hennar tækju hugsanlega við bú-
garðinum því pabbi hennar og
mamma þyrftu að fara. Ég hugsaði
með mér að vonandi væri hún
með strákana sína með sér, ég
gæti vel hugsað mér að passa
þann yngri og sá mig fyrir mér
með barnið í fanginu úti í búð.
Jæja, svo fór hún í símann, mér
fannst vera símaborð þarna upp
við vegginn. Ég stóð hjá henni í
vinnugallanum og hugsaði ekkert
um vinnuna sem beið. Hún ætlaði
að hringja norður í U að spyrja
um syni sína en þeir voru þar i
pössun hjá föðurömmu sinni. Hún
hringdi og sagði svo: Ingunn (ég
veit ekki um neina Ingunni þar) -
en svo sagði hún: Nú, já, og lagði
á. Svo leit hún á mig og sagði:
Mér var sagt að leggja á því það
er áríðandi simtal til X. Ég tók upp
tólið og sagði halló. Það var
mamma mín, hún sagði: X, búðu
þig undir slæmar fréttir. Hvað?
sagði ég hálfskelkuð. Pabbi þinn
er dáinn, sagði hún, læknarnir vita
ekki úr hverju hann dó, hann var
ekkert veikur, en þeir vita nú
hvernig hann hefur verið. Ég fór
strax að gráta og sagði: Pabbi
minn. A fann strax hvað hafði skeð
og tók í höndina á mér. Svo sagði
mamma: Það gæti hafa verið kvef
í lungunum eða. . . Ég man ekki
hvað hún nefndi. En hann á að
standa uppi í tvær vikur meðan
læknarnir finna út úr hverju hann
dó. Við þetta vaknaði ég svo grát-
andi.
Svo er hér einn stuttur: Ég var
nýbúin að eignast barn og ég var
viss um að það væri stelpa. Barnið
lá á borði og ég stóð upp og fór
að gá. Þá lá þarna strákur. Ég
sagði: Nei, þetta er strákur! Þetta
átti að vera stelpa! Sjáið tippið!
Með fyrirfram þökk.
71552
Fyrri draumurinn, sem eðlilega
hefur komið róti á huga þinn, er
einn af algengustu og sígildustu
draumum sem fólk dreymir. Meg-
ininntak hans er dauði föður þíns
og ekki er hasgt að útiloka að hann
sé laus við táknrænt gildi og lýsi
einfaldlega áhyggjum þínum af
heilsufari hans, en ekki kemur
fram hvort þú hefur ástæðu til að
hafa þær. Dauði manns i draumi
þykir venjulega fyrirboði langlífis
hans og eins og margoft hefur
komið fram i draumaþættinum er
það mikið gæfumerki að gráta i
draumi og vakna grátandi. Ing-
unnarnafnið er eina táknræna
nafnið í draumnum og skiptar
skoðanir á hvernig það nafn er
túlkað í draumi, en i samhengi við
önnur draumatákn erþetta happa-
boði i þessu samhengi. Á draumn-
um má skilja að þú hafir átt i
erfiðleikum og úr þeim sé að ræt-
ast um sinn.
Seinni draumurinn gæti gefið
frekari skýringu á hinum fyrri. í
honum kemur fram að þú væntir
hins versta og trúir ekki þínum
eigin augum þegar þú verður vör
við að mál fara á annan og betri
veg en þú býst við. Þú kannast
ef til vill við máltækið: Böl er þá
barn þig dreymir nema sveinbarn
sé og sjálfur eigi.
GIFTING OG
HRÍSGRJÓN
Kæri draumráðandi!
Fyrir nokkru dreymdi mig draum
sem ég man allvel og mér þætti
gott að fá ráðningu á. Hann byrj-
aði þannig að ég átti að fara að
giftast strák sem er bróðursonur
pabba míns en allt i einu, þegar
átti að fara að gifta okkur, var
hann dáinn, ég vissi ekki hvernig
en ég hugsaði ekki meira um
hann. Síðan ætlaði ég að giftást
strák sem er með mér í bekk. Við
skulum kalla hann X. Hinn strákur-
inn á heima í þorpi rétt hjá þar sem
ég bý. X er fjórum mánuðum yngri
en ég. Þegar ég átti að giftast X
var enginn prestur til staðar svo
ég veit ekki hvernig við áttum að
giftast. Þá langaði X ekki til þess,
enda engin furða því við erum
bara 14 ára. Ég tók það ekkert
nærri mér. Síðan vorum við (ég
og X) stödd úti í sjoppu (við kom-
um ekki þangað saman). Þá
spurði hann mig hvort við gætum
ekki byrjað saman þó við værum
ekki gift. Ég hélt það nú. Síðan
vorum við komin heim til mín. Við
áttum að fara að borða. Áður en
við borðuðum skipti ég um föt en
hann sat frammi á gangi á meðan.
Það var hrísgrjónagrautur I mat-
inn. Ég spurði hann hvort hann
vildi kakó en hann sagðist vilja
grautinn. Ég vildi kakó. Þannig
endaði þessi draumur. Ég vona að
þú viljir ráða hann fyrir mig. Ég
hef aldrei sent þér draum áður,
samt dreymir mig næstum því á
hverri nóttu. Þess vegna þætti mér
vænt um að þú gæfir mér ráðlegg-
ingu fyrir þennan draum.
Bæ.
Ein dreymin.
Draumurinn bendir til þess að
eitthvað slettist upp á vinskapinn
milli þin og þessa bekkjarbróður
þíns um skeið. Þessi leiðindi verða
þó skammvinn og sennilega á
misskilningi byggð. Síðan þróast
mál svo að með ykkur tekst mikil
og góð vinátta. Ekki er þó líklegt
að það verði samband eins og i
draumnum. Upphaf þessarar end-
urheimtu vináttu má, að því er
virðist, rekja tii einhverrar frekar
leiðinlegrar heimsóknar hans til
þín en síðan ákveðið þið bæði að
stíga skref til sátta, þó með sitt-
hvorum hættinum verði. Hvað
frænda þinn varðar þarftu ekki að
hafa miklar áhyggjur af honum,
hann kemur ekki draumnum við
nema ef til vill á þann hátt að
dauði hans er farsælt tákn fyrir
hann, sígilt fyrir langlíf/ þess sem
deyr i draumi.
TVEIR
GULLHRINGIR
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi fyrir nokkru mjög
skýran draum sem ég hef mikinn
hug á að þú ráðir fyrir mig. Ég var
stödd í veislu. Þetta var afmælis-
veisla, haldin I skíðaþorpi, að mér
fannst, samt var þarna mikill
íburður og efnaó fólk. Afmælis-
barnið fékk gjöf, það var lítil askja.
Þegar hún var opnuð var í henni
hringur úr gulli, frekar stór og með
bláum steini. Ég dáðist að hringn-
um úr fjarlægð. Stuttu síðar fór
ég út aó ganga um fjallshlíðarnar
þarna I kring. Ég kom að moldar-
haug og I honum sá ég að var
pakki vafinn inn í brúnan, slitinn
umbúðapappír. Ég tók hann upp
og tók utan af honum. i honum
var lítil askja, svipuð og afmælis-
barnið fékk. Áður en ég opnaði
hana leit ég yfir fjörðinn og fjalls-
hlíðarnar. Þá sá ég afmælisbarnið,
unga, dökkhærða stúlku. Hún var
að renna sér á skónum niður
sprungu með fæturna hvorn sin-
um megin við hana. Mér fannst
þetta glæfralegt en fór samt að
hugsa betur um pakkann. Ég opn-
aði öskjuna og I henni voru tveir
dásamlegir hringir, annar stór
gullhringur, sams konar þeim sem
afmælisbarnið fékk nema I mínum
augum var hann miklu fallegri.
Hann var stór og grafið I hann
munstur en í miðjunni var stór
glitrandi steinn, Ijósblár og dá-
samlega fallegur að mér fannst.
Hinn hringurinn var steinlaus og
minni, til þess að hafa á litlaputta.
Hann var einnig úr gulli og grafið
munstur allan hringinn.
Mér fannst sem ég yrði að halda
þessum fundi mínum leyndum en
setti hringana samt á fingurna.
Mér fannst ég vera komin inn í
bíl nokkru seinna og var með
hringinn. Þetta var stór bíll, að
mér fannst. Mér fannst einnig að
þetta væri bill fyrrverandi vinnu-
veitenda minna. Ég sat aftur I og
það var ryk og drulla út um allt
og bíllinn hossaðist svo mikið að
ég missti hringana, mér til mikillar
skelfingar. Ég fór að leita, bograði
við það, og eftir mikla leit fann ég
þann stóra og að mig minnir þann
minni líka, en aðallega var ég hrif-
in af þvi að finna þann stóra nema
hvað hann var allur orðinn ryðg-
aður og Ijótur. Ég varð sár og fór
að skoða hann betur en við nán-
ari athugun fannst mér að ég
gæti pússað hann og þá yrði hann
eins fallegur aftur. Þá setti ég hann
bara á mig og andvarpaði af fegin-
leik.
H.K.
Þessi draumur er fyrirboði
tveggja ástarsambanda i framtíð-
inni og annað þeirra skiptir þig
miklu meira máli en hitt. Bæði eru
traust og jafnvel hugsanlegt að
þú standir á svipuðum tima i þeim
báðum þannig að það valdi þér
hugarangri, þó þú takir annað
sambandið augljóslega fram yfir
hitt. Vera má að einhver sam-
keppni verði i þessum ástamálum
þínum. En þú munt einhverra
hluta vegna ekki rækta þessi sam-
bönd sem skyldi og eftil vill vegna
þess að þú ert óörugg með sjálfa
þig og áhuga hins aðilans. Svo
þegar þú gerir þér grein fyrir að
það er fyrst og fremst þinu eigin
tómlæti að kenna að upp úr er að
slitna muntu leggja meira á þig til
að halda samböndunum góðum,
öðru sennilega sem vinasambandi
en hinu sem ástarsambandi, en
þú þarft að leggja talsvert á þig
til að allt verði jafngott og áður.
Þú verður víst að búa við óvissuna
um niðurstöðu málsins enn um
sinn en það skýrist seinna.
50 VIKAN 23. TBL