Vikan - 12.11.1987, Síða 5
•jeiwod jeiuöis :J!puÁujS9h
Viltu opna verslun
á Rauða torginu?
Sovétmenn funda
með íslenskum
verslunarmönnum
TEXTI: SIGMAR ÞORMAR
Hefur þú áhuga á að
stunda verslun og vlðskipti?
Eða viltu kannski færa út
kvíarnar, ef þú rekur þegar
slíka starfsemi? Þá ættir þú ef
til vill að ræða við rússneska
verslunarfúlltrúann um
málið.
Það er nú ekki svo, að Sovét-
menn ætli að ráðskast með ís-
lenskt viðskiptalíf, heldur vilja
þeir bjóða íslenskum kaup-
mönnum upp á að stofnsetja
verslanir í Moskvu!
Viðskiptafúlltrúar sovéska
sendiráðsins halda kaffifund
með íslenskum verslunarmönn-
um í dag, fimmtudag, þar sem
þeir kynna möguleikana á slíku
samstarfl við íslenska kapitalista
í höfuðvígi kommúnismans.
Umbætur Gorbachevs
í Sovétríkjunum eiga sér nú
stað víðtækar breytingar á efna-
hagslífmu, í samræmi við um-
bótastefiiu Gorbachevs flokks-
leiðtoga, sem stefnir að auknu
frjálsræði í viðskiptum og hefur
vestrænum aðilum þegar verið
leyft að hefja starfsemi þar í
auknu mæli.
Þótt ótrúlegt megi virðst, hafa
sovétmenn þegar leyft vestræn-
um aðilum að opna verslanir við
Rauða torgið í Moskvu. Gorbac-
hev hefur því ekki látið sitja við
orðin tóm. Stefnan er að skrif-
ræði og íhaldsemi eigi að víkja
fyrir liðlegheitum í efnahagslífi
landsins. Gorbachev vill nýta
sér það besta úr vestrænum
kapitalisma.
ísland og Sovét
Hvað varðar okkur um þetta
allt? Viðskipti íslendinga og Sov-
étmanna hafa lengi verið í föst-
um skorðum. Þeir kaupa af okk-
ur fisk og ull og við fáum olíu og
Lödu í staðinn. Nú segja rúss-
nesku viðskiptafúlltrúarnir að
tími sé kominn til að gera þessi
viðskipti fjölþættari, fá fleiri ís-
lendinga til að taka þátt í þeim.
Rússar segjast hafa áhuga á inn-
flutningi, verslun, útflutningi og
samvinnu um stofnun og rekst-
ur fyrirtækja.
Þetta eru meginmálin sem
rússensku viðskiptafúlltrúarnir
ræða við íslenska verslunar-
Sovésku viðskiptafulltrúarnir Bosis Radivilov og Alexei Frolove (sem talar reyndar góða íslensku)
telja að fleiri íslendingar ættu að sýna Sovétviðskiptum áhuga.
Sovétmenn vilja opna dymar
fyrir verslun og viðskiptum við
Vesturlönd.
menn á fundi á vegum Verslun-
arráðs íslands í Húsi verslunar-
innar í dag fimmtudag.
Þeir segjast hafa áhuga á að
kaupa fjölbreyttari vörur héðan
og setja á stofn fiskiréttaverk-
smiðjur o.fl. í samvinnu við ís-
lendinga. Einnig telja þeir
möguleika á að framleiða ís-
lenskar tölvuvogir í Sovétríkjun-
um.
Skriffinskan
Mörgum stendur vafalítið ógn
af skriffinskunni í Sovétríkjun-
um og fýsir því lítt að reka fýrir-
tæki þar. Mönnum finnst yfir-
leitt nóg um þyngslin í kerfinu
hér heima. Viðskiptafulltrúarnir
Boris og Alex úr sovéska sendi-
ráðinu, lofa að þetta sé að breyt-
ast og menn þurfi ekki að óttast
endalausa bið eftir leyfúm og
öðrum pappírum, þar sem
skipulagsbreytingar Gorbac-
hevs séu að færa þessi mál í lið-
ugra horf. Hvort það er raun-
verulega hægt á skömmum
tíma, er svo annað mál. Sovéska
báknið er þekkt fyrir annað en
hraða ákvörðunartöku.
Viðskiptin við Sovétríkin hafa
þó ýmsa kosti, ef þau geta orðið
að veruleika. Vestrænir sér-
fræðingar í Sovétviðskiptum,
segja að Rússar standi vel við
gerða samninga og afhendi vör-
ur á réttum tíma og það sem
ekki er minnst mikilvægt, þeir
eru sagðir greiða skuldir sínar
stundvíslega.
Greinarhöfundur er blaöafulltrúi Versl-
unarráðs (slands.
VIKAN 5