Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 6
UÖSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
Óprenthæfur munnsöfnuður
Var þetta karl? Var þetta
kona? Nei þetta var Divine á
sviðinu í Evrópu um síðustu
helgi er við smelltum þess-
um myndum af kappanum
en þetta er í annað sinn sem
hann kemur til landsins.
Neðsta hæðin í Evrópu var
þéttsetin gestum á fimmtudags-
kvöldið er við litum þar inn,
skemmtileg blanda af uppum og
nippum, fastagestum og lausum,
hommum og lesbíum, stökum
leðurjökkum og lituðu hári í
hófi.
Divine klæmdist við gesti
milli laga sinna og allt sem hann
sagði var óprenthæft. En fólki
skemmti sér vel og hið versta
við þetta var hve stutt próg-
rammið hjá kappanum var, inn-
an við hálftíma en hver mínúta
þess hreint óborganleg.
Fyrir utan sönginn er Divine
þekktur fyrir leik sinn í vægast
sagt umdeildum myndum John
Waters, myndum á borð við
Pink Flamingos sem sýnd hefur
verið hérlendis og Multiple
Maniacs þar sem hann lék dólgs-
Iega feita ljósku sem flutti
bandaríska drauminn að ystu
mörkum fáránleikans.
Fyrir Ieik sinn í þessum
myndum hlaut Divine hinn vafa-
sama tiltil „Saurugasta mannver-
an sem uppi er“ og mun kapp-
inn nokkuð hrifinn af þeirri
nafnbót.
Divine er óumdeilanlega klúr
persóna hvernig sem á hann er
litið eins og gestir Evrópu fengu
að sjá um síðustu helgi. ímyndið
ykkur 150 kíló af skvapholda
karlmanni í gervi kvenmanns á
sviðinu, klæddur Tarzan sam-
festingi með axlirnar berar með
úfha svarta hárkollu og tvö kíló
af farða smurðum framan í and-
litið. —FRI.
Divine í Evrópu.
Lida myndin hér að
ofan sýnir hann eins og
hann lítur raunverulega
út.
6 VIKAN