Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 48
100% álagning
Kæri Póstur.
Ég sá í síðasta blaði að Póstur
Vikunnar virðist ekki lengur
einskorðast við gelgjubólur og
unglingaástir, svo ég læt mig
hafa það að senda þér nokkrar
línur, þar sem ég er kominn af
fyrrnefhdu aldursskeiði.
Mig langar til að vekja athygli
ykkar á okri. Það er hugsanlegt
að ný og breytt Vika geti kannað
þessi mál ofán í kjölinn og birt
greinar um íslenska okrara.
Þegar ég segi okrara á ég ekki
við þessa kappa sem lána fé með
okurvöxtum heldur á ég við
hina „heiðvirðu" íslensku kaup-
menn. Þessar heilögu kýr, sem
ekki virðist mega hrófla við.
Ef maður ætlar að kaupa sér
fataleppa og vill hafa þá svona
nokkurn veginn í takt við nú-
tímann er lítill möguleiki á að
það sé hægt nema riðla heimilis-
fjárhagnum svo gjörsamlega að
fjölskyldan verður nánast að
svelta sig til að komast hjá að
ganga um nakin.
Þetta gegndarlausa okur á
fatnaði verður að taka enda.
Hvar sem maður kemur erlend-
is eru föt allt að þrisvar sinnum
ódýrari en hér á landi. Fræg
tískumerki eru meir en helm-
ingi ódýrari í verslunum í t.d.
Þýskalandi en hér á íslandi. í
þýsku búðunum er líka drjúg
álagning, þar sem Þjóðverjarnir
eru varla í þessum viðskiptum
án þess að ætla að græða eitt-
hvað á þeim. íslenskir fatasölu-
menn lifa flestir hverjir í vellyst-
ingum og fara mikinn, en það er
vegna þess að þeir komast upp
með það að okra á náunganum.
Enginn segir neitt við þessa
menn, sem virðast geta farið
sínu fram óáreittir. Manneskja
sem ég þekki og hefur góða
þekkingu á þessum fatabúða-
rekstri sagði mér að dæmi væru
um að tískuverslanir legðu allt
að 1000 prósent á vörur sem
þær flytja inn til Iandsins. Ljótt
er ef satt er.
Gunnar Sveinsson
Utanáskriftin er:
VTKAN, Pósturinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
Innlendar
fréttaskýringar
Herra ritstjóri.
Ég vil byrja á að óska ykkur til
hamingju með breytingarnar á
Vikunni. Þær voru tímabærar og
ég efast ekki um að þær mælist
vel fyrir hjá lesendum blaðsins.
Alla vega er blaðið lesið spjald-
anna á milli á mínu heimili og er
það nokkurt nýmæli, þegar Vik-
an er annars vegar.
Ég er afskaplega ánægður
með þá nýbreytni, að fá frétta-
efiti frá hinum Norðurlöndun-
um, en það er frekar sjaldséð í
öðrum blöðum og vona ég að
þið haldið áffam á þessari braut.
Hins vegar sakna ég góðra inn-
lendra fféttaskýringa í blaðinu.
Þið megið gjarnan taka það til
athugunar, þar sem ég veit að
margir lesendur kynnu vel að
meta slíkt effii.
Ó.S.
Hvar er
smásagan?
Kæri Póstur.
Ég hef verið áskrifandi Vik-
unnar í áratugi og hef því mátt
þola tímana tvenna í sambandi
við gæði blaðsins. Nýja ritstjórn-
in er vafalaust hið mesta dáindis
fólk, sem veit hvað gengur best
t lesendur nýrra tíma, en ég
sakna þó smásögunnar minnar í
blaðinu. Framhaldssögurnar
máttu svo sem missa sig, þar
sem ég var alveg hætt að nenna
að lesa þær. Þegar maður hefúr
sjónvarp og mikið af öðru les-
efhi nennir maður varla að bíða
mánuðum saman effir sögulok-
um. Svona er ég nú orðin smit-
uð af þessu harðsoðna þjóðfé-
lagi okkar.
Nú má ekki taka þetta bréf-
korn sem svo, að ég sé ekki
ánægð með endurbæturnar á
Vikunni. Ég er hæstánægð. Blað-
PÓSTURINN /
ið er miklu fjölbreyttara og læsi-
legra en áður.
Með kveðju,
Sólveig Helgadóttir
Svar: Það er stefna ritstjórnar
að hafa smásögur í blaðinu, en
hins vegar er ætlunin að hafa
fjölbreytni og sveigjanleika í
efhisvali blaðsins, svo smásagan
mun annað slagið þurfa að víkja
fýrir öðru efni.
ritstj.
Hægri eða
vinstri?
Ágætu ritstjórar.
Mér finnst stefha blaðsins
ykkar dálítið óljós. Þið virðist
vera að breyta Vikunni í eitt-
hvert sambland af þjóðmála- og
fréttablaði og fjölskyldublaði af
gamla stílnum. Undanfarnar vik-
ur hafa dálkahöfundar blaðsins
skrifað gagnrýnar greinar um
stjórnmálamenn á bæði hægri
og vinstri kantinum. Þótt sumar
af þessum greinum séu skrifaðar
í léttum dúr er þó greinilega
ákveðinn broddur í þeim, en
mér finnst vanta einhverja
heildarstefhu, sem hægt er að
festa hendur á. Er Vikan hægri
eða vinstrisinnað blað?
Helgi
Svar: Vikan er ekki pólitískt
blað. Blaðið fjallar um þjóðmál
eftir efhi og ástæðum hverju
sinni, en tekur ekki beina póli-
tíska afstöðu til einstakra mála.
Dálkahöfúndar og fastastarfs-
menn blaðsins eru ekki ráðnir
eftir pólitískri litgreiningu, svo
þeir hafa vafalaust mismunandi
skoðanir á þjóðmálunum. Það
er ágætt að þér finnst erfitt að
binda Vikuna við einhverja
ákveðna pólitíska línu, þá er til-
gangi hennar náð.
ritstj.
48 VIKAN