Vikan


Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 36

Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 36
Gengið á vit Geira Seivogs Þorgeir Þórarinsson heitir hann en er oft kenndur viö bernskustöövarnar og kalaður Ceiri Selvogs. Þrátt fyrir síiía löngu starfsævi á sjónum ber hann aldurinn vel og er enn keikur og hress. Geiri er nú búsettur í Grindavík og gerir baðan út bátinn Farsæl. — Já, ég er fæddur í Selvogi 4. nóvember 1922. Ég byrjaði að stunda sjóinn 14 ára á litlum báti sem ég smíðaði sjálfur, og réri á honum eftir því sem ég gat. En lendingin í Selvogi var „Ertu dauður eða hvað? Geturðu ekki svarað? Ertu dauður eða lifandi? Ég passaði mig á að segja ekki eitt einasta orð og ég held bara að þeir hafi verið farnir að skjálfa." slæm og það átti sinn þátt í því að byggðarlaginu hnignaði. Ég man tii dæmis eftir því að Sveinn á Bjargi gerði út 8 tonna mótorbát og hann varð að liggja út á legunni fyrir föstu og svo varð að róa á milli. Þá var mikill fiskur á vertíðinni. Ég man eftir því að pabbi réri á léttbátnum og hann kom oft með hann fúll- an af fiski, og oít með eina eða tvær lúður. Það var svo mikið af lúðu þá og skötu. Það var einu sinni að það var karl þarna sem bað pabba að koma með sér að róa að sumar- lagi. Þeir fóru með skötulóð, 80 króka, og það var fiskur á hverj- um krók, keila, skata og lúða. Oft voru lúðurnar fjórar eða fimm. Og það var oft mikil skata. Þetta var örskammt frá landi. Nú er þetta allt búið. — Svo hefúrðu snemma farið að heiman? — Já, fyrst til Þorlákshafnar og og svo til Grindavíkur. Þá var ég mest á trillum. Hér í Grindavík réri ég úr Austurhverfinu. Það varð alltaf að setja bátana og það var mikil vinna. Einu sinni man ég að við rérum samfleytt í 22 daga. Það var norðan rok allan tímann og frost, aldrei undir 14 stigum. Síðasta daginn rérum við svo ekki því þá var frostið komið í 22 stig. Þá var fiskur sendur til Englands en stundum söltuðum við sjálfir. Þetta var mikil vinna og við vorurn aldrei búnir fyrr en klukkan ellefu eða tólf, og svo var farið út aftur klukkan tvö á nóttunni. Þá vor- um við með línu en svo koniu netin til sögunnar og þá vorum við með tvær tíu neta trossur. Oft var svo mikill fiskur að við fórum inn að landa og svo út aftur. Þá var iðulega kominn svo mikill fiskur í netinu aftur að það sást ekki hvar við höfðum hætt við að draga áður. Það þótti ekki borga sig að vera á netunum ef það var minna en 45 fiskar í neti. Þá var skipt yfir á línuna afitur. - Voru þetta stórar trillur? —Svona 6 tonna trillur og við vorum 6 eða 7 karlar á þessu. En svo fór ég til Hafnarfjarðar og vann fyrst við uppskipunar- vinnu en fór svo á togarann Óla Garðar og var á honum í 7 ár. Það var á stríðsárunum. Það var oft mikil vinna. Þá voru vaktirn- ar 12 og 6, það er að segja, það var unnið í 12 tíma og svo sofið í 6 tíma. f fiskiríi var oft staðið miklu meira. Það var talsvert siglt með aflann. Eftir stríðið var ég svo 3 ár á Bjarna riddara, ný- sköpunartogaranum. Það var oft lítið stoppað í landi. Eitt árið tók ég saman að við höfðum verið í landi 24 daga. Það var stundum komið úr fiskitúr og gert kiárt í 2—4 tíma fyrir siglingu. Við fengum rétt að skjótast heim og svo var farið af stað aftur. Maður sá aldrei græn grös. En þetta er breytt sem betur fer og það er betra að vera á togurunum núna. Héldu að við hefðum skotið niður flugvél — Þú hefúr sagt mér áður að þú hafi siglt talsvert í stríðinu. Þá hefur ríkt spenna. Var það ekki? — Já, það var sko spenna. Ég man eftir því einu sinni í stríð- inu að það stöðvaði okkur enskt herskip og tilkynnti að það væri þýskur kafbátur undir okkur. Þegar við stoppuðum þá stoppaði líka kafbáturinn svo að herskipið gat ekki varpað djúpsprengjum á hann. Við urðum oft varir við kafbáta sem komu upp tii að taka loft. Ég var oftast fyrstur að sjá þá því ég sá svo vel. Ég var oft hafður á út- kikk þess vegna. Ég var oft að hugsa um kaf- bátana og einu sinni vorum við að borða og þar var Ioftskeyta- maðurinn og ég sagði svona: — Við hvað eruð þið hræddir? Það er sko alveg klárt að þýsku kaf- bátarnir skjóta ekki niður ís- 36 VIKAN lensku skipin. Ef þeir skjóta niður eitt íslenskt sldp þá missa þeir þrjá kafbáta. Við erum eins og skjól fýrir þá. Þeir hafa um sama hraða og við um 9 mílur þegar þeir eru í kafi. Þeir fylgja okkur eftir og liggja svo fýrir skipalestunum og þá skjóta þeir niður flutningaskipin þegar við mætum þeim. Eftir matinn kallaði loft- skeytamaðurinn á mig og spyr mig hvaðan ég hafi þessa vit- neskju. Ég benti bara á kollinn á mér og segi honum að ég sé bara búinn að sjá þetta út. Þetta sé í rauninni bölvuð vitleysa hjá Englindingunum, þeir ættu ekkert að vera að láta okkur sigla því þeir bara tapi á því. það brá svo við að það var eng- inn hræddur eftir þetta. Við höfðum alltaf sofið í björgunar- beltunum en við bara hættum því. Svo man ég eftir öðru atviki. Við vorum að sigla til Fleet-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.