Vikan


Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 37

Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 37
1 I wood og sá sem var skipstjóri í þessum túr, hann var búinn að vera svolítið í því. Honum þótti gott að smakka það. Við sigld- um í gegnum æfingasvæðið og þar var flugvél á ferðinni og við vorum að fylgjast með henni. Þetta var skammt frá Isle of Man en þar var þá æfingaflug- völlur. Þá segir skiptstjórinn allt í einu: — Hún er bara að hrapa. Bölvuð vitleysa, segi ég, hún er ekkert að hrapa. Ég hélt þetta væri bara tremmi í karlin- um. En það skipti bara engum togum, flugvélin hrapaði í sjóinn. Við snérum strax í átt- ina og náðum þremur líkum og settum þau undir hvalbakinn. Hann hét Guðmundur fyrsti stýrimaðurinn og hann biður annan stýrimann að fara ffam í lúkar og slökkva ljósin. Hann sagði eftir á annar stýrimaður- inn að hann hefði tekið þetta svo nærri sér að hann var lengi að jafna sig eftir þetta. Hann varð svo hræddur að hann gat aldrei litið Guðmund réttu auga eftir þetta. Síðar sendi Guðmundur annan, Siggi hét hann, til að fara fram í og athuga hvort það væri kominn sjór í keðjukassann. Siggi fór fram í en var í augna- blikinu búinn að gleyma líkun- um. í myrkrinu rak hann sig á eitthvað sem ekki átti að vera þarna og dettur. Hann ber fýrir sig hendina og lendir á magan- um á einu líkinu og þá kom heldur betur hljóð því líkið ropaði alveg ógurlega. Siggi verður svona ægilega hræddur en hleypur þó af skyldurækni niður stigann. En þar varð hann að sitja í 20 mínútur því hann fékk stífkrampa og gat ekki hreyft sig. Við fórum að leita að honum en hann var þá að losa hendina svo hann gæti lyft löppinni. Hann var bara alveg ósjálfbjarga og gat ekki hreyft sig. Siggi var í heil tvö ár að jafna sig á þessu. Þegar við komum til Fleet- wood þá máttum við ekki fara upp því það átti að rannsaka hvort við hefðum bara ekki skotið niður flugvélina. Við vorum nefnilega með hríð- skotariffil og við höfðum verið búnir að sjá tóma tunnu á reki og stýrimaðurinn hafði verið að æfa sig með því að skjóta á tunnuna. En hann hitti auðvitað ekki í einu einasta skoti. Svo vorum við með minni riffil líka. En þá grunaði virkilega að við hefðum skotið niður flugvelina. Ertu dauður maður — Þú varst fluttur til Hafnar- fjarðar á þessum árum? - Já, og svo fór ég stuttu síð- ar að búa. Ég var sko ógiftur á stríðsárunum og það var oftast svo að þeir voru látnir sigla sem voru ógiftir. Við fengum Málverk af Geira Selvogs, eft- ir Eirík Smith listmálara. Þessi frábæra mynd er táknræn. Hún sýnir Geira með línubauju á öxlinnl og með hundinn Spora í bak- sýn. dálitla áhættuþóknun en kaup- ið var svo sem ekki hátt. — Svo tók bátatíminn við aftur? — Já, ég var til dæmis á Fram frá Hafharfirði. Það var alveg listaskip. Þó það væru 12 vind- stig og þegar maður hallaði sér þá var það alveg sama og að vera heima í rúmi. Hann hagg- aðist varla og var öruggt skip. Þarna var ég mótoristi í 3 ár með Valtý ísleifssyni skipstjóra og það var alveg ágætt. Svo hætti hann. Þá tók við Fram annar skipstjóri, ég man bara ekki hvað hann heitir. Ég held hann hafi veirð einhvers staðar VIKAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.