Vikan - 12.11.1987, Blaðsíða 10
DANMÖRK
Danskt skip með vopn til íran?
Danskt skip, Danica Four,
er nú á leið til Austurlanda
f]ær með vopnafarm innan-
borðs frá Svíþjóð, Frakklandi
og Bretlandseyjum. Talið er
nokkuð öruggt að vopn
þessi séu á leið til íran, í
gegnum Singapore.
Skipið er tæp 1000 tonn og er
heimahöfn þess Nakskov
á Lálandi. Eigendur eru
Folmer og co. í Kaupmanna-
höfn. Það tók vopnafarm um
borð í Varberg í Svíþjóð og hélt
þaðan til Cherbourg í Frakk-
landi þar sem fleiri vopn voru
lestuð um borð en áður hafði
skipið tekið vopn í Bretlandi.
Henrik Berlau ritari danska
sjómannasambandsins segir að
farmur Danicu Four sé örugg-
lega á leið til Persaflóa, annað
hvort til írak eða íran. Eigendur
skipsins segja aftur á móti að
skipið sé á leigu og viti þeir ekki
áfangastað þess eða hvaða farm
það ber. Hinsvegar sé það Ijóst
að skipið megi ekki sigla á hafhir
við Persaflóann vegna þess hve
ástandið sé ótryggt þar né held-
ur megi það sigla til Suður Afr-
íku vegna viðskiptabanns Dana
á það land og séu ákvæði uni
þetta í leigusamningnum.
Nokkur fjöldi danskra skipa
hefur í ár tekið þátt í vopna-
flutningum, m.a. til Persaflóans
og nú er til meðferðar á danska
þinginu frumvarp þess efhis að
dönskum skipum verði bannað
að sigla með vopn til landa sem
eiga í stríði. Það eru vinstri
flokkarnir á danska þinginu sem
hafa þvingað hina borgaralegu
stjórn til að leggja fram frum-
varpið en bæði stjórnin og
dönsku skipafélögin eru mjög
andvíg þessu frumvarpi.
GRIKKLAND
„Félagar og vinir"
Hin bandaríska eiginkona
Papandreou, Margarita, hefi.tr
loksins fallist á að ræða um
hneykslismál það, er kom upp
er ljóst var að eiginmaður
hennar var í tygjum við hina
33 ára gömlu flugfreyju Dim-
itra Liani.
„Þar sem er reykur þar er
Papandreou og Liani saman
í sjónvarpsþætti hennar.
eldur,“ segir Margarita en vill
að öðru leyti ekkert segja sem
skaðað gæti pólitískan feril
manns hennar. í viðtali við
tímaritið The Progressive seg-
ir hún: „Við ætlum að lifa sam-
an áfram sem félagar og vinir
og sem eiginmaður og eigin-
kona...“ og síðar segir hún að
hjónaband þeirra geti ekki
haggast „ ... vegna atburðar
sem næstum hver kona upp-
lifir á ævi sinni.“
SVÍÞJÓÐ
Eiturlyfja-
hringur
upprættur
Um tuttugu manns voru
handteknir af sænsku fíkni-
efhalögreglunni nótt eina í
síðustu viku. Hér er um að
ræða einn stærsta eitur-
lyfjahring sem starfað hef-
ur í landinu. Fleiri hand-
tökur fylgdu í kjölfarið
næstu daga og samhliða var
lagt hald á mikið magn af
amfetamíni en andvirði
þess nam nokkrum millj-
ónum sænskra króna.
Lögreglan hefur fylgst með
þessum eiturlyfjahring í nokk-
ur ár en jók mjög eftir-
grennslanir sínar er tollurinn í
Helsingjaborg lagði hald á 23
kíló af amfetamíni sem falið
var í varadekki bíls' á leið frá
Danmörku til Svíþjóðar nú í
september.
SUÐUR-AFRÍKA
Sænskar löggur í Suður-Afríku
Sænskir lögreglumenn frá
Stokkhólmi hafa undanfarið
ár farið í nokkrar ferðir til
Suður-Afríku þar sem þeir
hafa m.a. tekið þátt í æfing-
um með lögreglumönnum
þar. Hinir sænsku eiga nú á
hætttu að missa störf sín
vegna þessa en lögregluyfir-
völd í Stokkhólmi eru nú að
rannska þetta mál.
Lögreglumennirnir, sem eru
tiu talsins, munu hafa hvatt fé-
laga sína til sams konar ferða-
laga til að .hjálpa hvítu
stjórninni...“
Ef í ljós kemur að lögreglu-
mennirnir hafa farið þessar ferð-
ir í frítíma sínum er lítið sent
lögregluyfirvöld geta gert en
komi í ljós að um þjónustuferðir
var að ræða munu lögreglu-
mennirnir missa störf sín þar
sem allar slíkar ferðir verða að
vera til landa sem sænsk stjórn-
völd eiga eðlileg samskipti við,
en einnig ma nefna að Sænska
lögreglumannasambandið hefur
fordæmt stjórnvöld Suður-
Afríku.
Lögreglumennirnir sem hér
um ræðir eru ur Norrmalms
hverflnu, en gegn lögreglu-
mönnum þar hafa áður kornið
ásakanir um öfgar til hægri, mis-
notkun valds og ofbeldi.
EVRÓPUBANDALAGIÐ
Milljarðar í súginn
Milljarðar króna fara árlega í
súginn hjá Efnahagsbanda-
lagi Evrópu vegna þess hve
lönd innan EBE rækta slæmt
tóbak. Rannsóknarnefnd sú
sem er efnahagslegur varð-
hundur F.BE heldur þessu
firam í nýrri skýslu um
málið.
í skýrslunni segir að tími sé til
kominn að kanna ítarlega hvað
verði um þá 5 milljarða danskra
króna sem fara í tóbaksgeirann
hvert ár og eiga að styrkja fram-
leiðslu á tóbaki sem engir
ntöguleikar eru á að markaðs-
setja.
Rannsóknarnefndin segir enn-
fremur að styrkjakerfi EBE að
þessu leyti taki alls ekki mið af
því sem er að gerast á heims-
markaði hvað tóbak varðar og að
framleiðslan svari ekki kröfum
neytenda.
10 VIKAN