Vikan


Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 18

Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 18
Weinberger hefiir ávallt verið einn af hörðustu „haukunum í Washington, þótt það sé látið heita að hann hætti vegna veikinda konu sinnar er það ekkert leyndaranál að hann er mjög mótfallinn samningum um afvopnun sem nú eru í undirbúningi. Weinberger sá síðasti af Kaliforníu- genginu * Weinberger heimsækir hermenn í Fort Lewis. Nú þegar Caspar Wein- berger hefúr látið af starfl vamarmálaráðherra eftir sjö ára veru í því má Ronald Re- agan sjá á eftir einum hinna síðustu af nánum ráðgjöfum sínum úr hinu svokallaða Kalifomíugengi, það er manna sem verið hafa með Reagan frá ámnum er hann var ríkisstjóri í Kaliforníu. Opinberlega lætur Weinberg- ar af störfúm vegna veikinda konu sinnar en það er ekkert leyndarmál að hann er mjög mótfallinn samkomulagi því sem Reagan og Gorbatsjov munu undirrita um fækkun kjarnorkuvopna nú í desember. Weinberger verður minnst öðru fremur vegna þess að í tíð Reagans stóð hann fyrir mestu uppbyggingu bandaríkjahers sem þekkst hefur á friðartíma en ÚTLÖND 7 ekkert lát hefúr verið á fjár- streyminu til Pentagon á þeim tíma sem Weinberger hefúr ver- ið varnarmálaráðherra. Hann er þó þekktur að öðru en örlæti í fjárveitingum áður, t.d. hlaut hann viðurnefhið „Hnífúrinn" er hann var fjármálastjóri Reagan í Kaliforníu í upphafi sjöunda ára- tugarins. Viðurnefni hans breyttist síðan í „Cap með skófl- una“ er hann varð varnarmála- ráðherra einkum vegna þess hve miklu af fé hann mokaði í varnarmálin. Pentagon fékk á sig mikla gagnrýni vegna þess hversu fár- ánlega fé þessu var oft varið, dæmi um 7000 dollara kaffivél- ar og 100 dollara boddýskrúfur komu upp á yfirborðið og vitað er að mörg fýrirtæki sviku millj- ónir dollara út úr samningum sínum um smíði hergagna. Þessi gagnrýni náði hámarki 1985 og þá voru uppi raddir um að reka ætti Weinberger úr embætti en áralöng vinátta hans og Reagan kom i veg fýrir slíkt. Weinberger hefur ávallt verið einn af hörðustu „haukunum" í Washington og fer ekki dult með það. Hann er alfarið á móti samningum við sovétmenn um niðurskurð kjarnorkuvopna því hann telur að Sovétmenn muni ekki standa við sína hlið slíkra samninga og hann var ákafur talsmaður þess að Bandaríkin gripu inn í þróun mála á Persa- flóa, sagði þá að ef þeir gerðu slíkt ekki væri öruggt að Sovét- menn myndu grípa tækifærið. Carlucci framagjarn embættismaður Hinn nýi varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, Frank Carlucci er framagjarn embættismaður með flckk- lausan feril innan stjórn- kerfisins allt frá tímum Ric- hard Nixons og hefur hann því þjónað bæði forsetum demókrata og rebúblikana. Carlucci er nákunnur þeim manni er hann tekur við embætti af, Caspar Weinberger, því hann var aðstoðarmaður hans er Weinberger var fjár- málastjóri Nixons og hann fýlgdi Weinberger áfram er Ger- ald Ford gerði hann að heil- brigðisráðherra sínum. Jimmy Carter hafði einnig not fyrir Carlucci því hann gerði hann að varaforstjóra CIA á þeim tíma er Bandartkjaþing. rannsakaði störf leyniþjónust- unnar er nokkur hneyksli komu upp á yfirborðið í þeirri stofnun. Er Ronald Reagan varð forseti og bað Weinberger um að taka stöðu varnarmálaráðherra gerði Weinberger það að skilyrði að hann fengi Carlucci sem stað- gengil sinn en íhaldssöm klíka í öldungadeildinni var lítt hrifin af þeirri ráðstöfun þar sem Car- lucci hafði þjónað Carterstjórn- inni. Eftir að Carlucci hafði gengt þessari stöðu í 2 ár reyndi hann fýrir sér í einkageiranum án mikil árangurs og er Reagan þurfti að finna sinn fimmta formann Þjóðaröryggisráðsins í miðju Iran/Contra hneykslinu féll staðan í hlut Carlucci. Starfs- mannastjóri Hvíta hússins þá, Donald Reagan, vildi fá annan í þetta starf en Weinberger lagði inn gott orð með sínum fyrra samstarfsmanni. Það var einkum hlutverk Car- lucci að hreinsa til í Þjóðar- öryggisráðinu sem farið var að reka eigin utanríkismálastefnu Frank Carlucci hinn nýi varn- armálaráðherra Bandaríkj- anna. án samráðs við utanríkisráðu- neytið og þykir hann hafa gert þetta af miklum myndarskap. Sem varnarmálaráðherra er búist við að Carlucci verði mun móttækilegri fyrir niðurskurði kjarnorkuvopna en fyrirrennari hans var og í tíð hans er búist við að hægt verði á þeirri miklu uppbyggingu bandaríkjahers sem hafin var í tíð Weinbergers. 18 VIKAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.