Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 28
„Ég ætla að verða eldri en fyrirrennari minn,“
segir núverandi „elsti maður í heimi“,
Manuel Gonzáles Millán, 117 ára.
Elsfli
maður
heimser
117 ára
Þegar Japaninn Siguechl-
yo Izumi, „elsti maður
heims“, lést, en hann varð
120 ára þá færðist titillinn
yfir á Manuel Gonzáles Mill-
án sem fæddist í Jerez de la
Frontera á Spáni 5. ágúst árið
1870. Af þessu tilefni var rætt
við hann á 117 ára afmælis-
daginn í ágúst síðastliðnum.
— Til hamingju með daginn.
Hvernig finnst þér svo að vera
elsti maður í heimi?
— Mér finnst það gaman. Þó
þótti mér Ieitt að heyra um lát
fyrirrennara míns. Núna er
metnaður minn að ná því að
verða eldri en Japaninn 120 ára.
Manuel reykir fjóra pakka af
sígarettum á dag og drekkur að
minnsta kosti fjóra bjóra.
— Og svo er okkur sagt að
reykingar séu lífshættulcgar!
segir hann.
— Hefúrðu gert eitthvað sér-
stakt í tilefhi dagsins?
— Nei mig langar ekkert til að
halda veislu hérna, en mér hefur
verið sagt að ég hafi fengið
sendingar af bjór og það gleður
mig.
— Ég feddist í lest, segir hann
okkur. Mamma feddi mig án
nokkurrar læknishjálpar, en
henni var hjálpað af þeim sem
voru að ferðast í klefanum með
henni.
Það er aðdáunarvert hversu
léttur hann er enn í lund þessi
elsti maður heims. Og þegar við
spurðum hvort hann Iangaði
Vottorðið sýnir svo ekki
verður um villst að Manuel er
feddur 5. ágúst 1870!
ekki til að fara eitthvað þá svar-
aði hann, án nokkurs biturleika:
- Með þessar lappir veit ég nú
ekki hvert ég kæmist. En Man-
uel er í hjólastól. Hann hefur þó
alltaf verið heilsugóður að öðru
leyti og er andlega hress og fylg-
ist vel með heimsviðburðum.
— Þú hefúr þá upplifað marga
atburði heimssögunnar?
— Auðvitað. Ég tók þátt í Kúbu-
stríðinu og í Borgarastyrjöldinni
og var í hernum. Þar fékk ég
þrjú heiðursmerki. Ég vildi fá að
fara með bláu herdeildinni til
Þýskalands en af því ég var orð-
inn sjötugur þá fékk ég ekki að
fara. Ég kynntist mörgum fræg-
um mönnum í gegnum tíðina og
Queipo de Llano hershöfðingi
var góður vinur minn.
— Við hvað starfaðir þú?
— Ég hef unnið við öll mögu-
leg störf.
— Hvað heldurðu að þú hafir
þénað á öllum þínum starfsferli?
— Ekki nema 11000 peseta.
— Áttu fjölskyldu?
— Ég átti sjö börn en þau eru
öll dáin. Það er engum sem þyk-
ir vænt um mig og mér þykir
ekki vænt um neinn — ekki einu
sinni sjálfan mig. Segir hann
beiskjulaust og bætir síðan
stríðnislega við: Ef það kemur
fyrir að mér þykir til um sjálfan
mig þá kyssi ég mig á handar-
bakið.
(A. Perez, Saphan Press/BK)
28 VIKAN
„Pótt undarlegt megi
virðast eru það einmitt
þeir sem eru að deyja,
sem mynda andmælin
gegn þessari læknis-
fræðilegu kenningu.
Hvers verðum við vör
þegar við deyjum?"
Tvennt er það sem oft fer saman,
pg hygg ég að það sannist á okkur
íslendingum. En það er einþykkni
og rík hvöt til sjálfstæðis. Ef þetta
er rétt, þá er það í senn kostur okk-
ar og galli. Annars vegar leiðir þetta
til þess að við viljum standa sem
mest á eigin fótum og erum reiðu-
þúnir til þess að fórna allmiklu til
þess. Hins vegar leiðir þetta oft til
sundurlyndis. Þetta kann að skapa
sterka einstaklinga, en það getur
einnig haft í för með sér hættuleg
sjúkdómseinkenni þjóðar okkar,
því við erum deilugjarnir, eins og
forfeður okkar.
ÆVAR R.
KVARAN
Erdnuðinn
encfir olrar
VIKAN 29