Vikan


Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 31

Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 31
„Ég get ekki - get ekki verið kyrr hérna. Ef þú gætir séð það sem ég sé, þá myndirðu vita, að ég get ekki verið hér kyrr," sagði Doris við lafði Barret, sem haföi rétt henni nýfætt barnið. í ævisögum og bókmenntum allra aldra. En þrátt fyrir þetta hefur staðið á vísindalegum rannsóknum. Fyrir rúmri hálfri öld lýstu tveir brautryðjendur sálrænna rannsókna sýnum við banabeði, en það voru þeir Frederich Myers, nafnkunnur breskur fræði- maður í klassískum bókmenntum, og heim- spekingurinn James H. Hyslop við Col- umbíaháskólann í Bandaríkjunum. Þeir gerðu ekki sérstakar rannsóknir á þessum fýrirbærum, sem þess vegna voru almennt ókunn meðal vísindamanna yflrleitt, þangað til undarlegir atburðir tóku að gerast á heimil Sir Williams Barretts, eðlisfræðipróf- essors við Royal College of Science í Dyfl- inni. Eiginkona Sir Williams var læknir og sér- fræðingur í uppskurðum í sambandi við fæðingar. Nóttina 12. janúar 1924 kom hún þjótandi heim til sín úr sjúkrahúsinu í miklu uppnámi og sagði manni sínum frá tilfelli sem snart starf hennar. Lafði Barrett hafði verið kvödd til þess að taka á móti barni Dorisar nokkurrar (eftir- nafni var leynt í skýrslunni). Þótt barnið fæddist fúllfrískt var Doris að dauða kornin. Lafði Barrett lýsti því með þessum orðum: „Allt í einu leit hún í átt til viss hluta herbergisins og geislandi bros færðist yfir ásjónu hennar: „Yndistlegt!" sagði hún. „Ó, yndislegt, dásamlegt!" Ég spurði hana: „Hvað er yndislegt?" „Það sem ég sé,“ svar- aði hún lágri, ákafri röddu. „Hvað sérðu?“ „Yndislega birtu — dásamlegar verur." Það er erfitt að lýsa þeirri sterku tilfinningu raunveruleiks, sem kom fram við það hve gagntekin hún var af sýn sinni. ,Já, en þetta er pabbi! Ó, það gleður hann svo mikið að ég skuli vera að koma. Hann er svo undur- glaður. Þetta væri með öllu fullkomið, ef W (eiginmaður hennar) kæmi bara líka.“ Doris var nú fært barnið, svo hún gæti virt það fyrir sér. „Finnst þér ég ætti að vera kyrr vegna barnsins?" spurði hún þá. Síðan virtist hún snúa sér aftur að sýn sinni og sagði: „Ég get ekki — get ekki verið kvrr hérna. Ef þú gætir séð það sem ég sé, þá myndirðu vita, að ég get ekki verið hér kyrr.“ Það var bersýnilegt að þessi unga kona „sá“ eitthvað, sem var henni svo raunveru- legt, svo fullnægjandi og svo mikils virði að hun var reiðubuin að fórna fýrir það lífi sínu og eigin barni. Þegar eiginmaður hennar kom inn í her- bergið, þá snéri hún sér til hans og sagði: „Þú lætur ekki drenginn okkar í hendurnar á neinum, sem elskar hann ekki, er það?“ En þegar hann nálgaðist hana vék hún honum undan og sagði: „Leyfðu mér að horfa á þessa yndislegu birtu.““ Nú vaknar spurningin um það, hvort hér hafi einungis verið um óskyggju að ræða, sem komið hafi fram í formi ofsjóna. Dr. Barrett velti slíkri skýringu fyrir sér, en hafnaði henni, sökum þess að meðal þesssa látna fólks sem Doris sá var manneskja sem hún átti ekki von á að sjá þarna. En þannig var mál með vexti að systir hennar, Vida, hafði látist þrem vikum áður. Hins vegar hafði þess verið vandlega gætt að Doris frétti þetta ekki, sökum þess hve heilsu hennar var ábótavant. Doris var því mjög hissa, þegar það gerist, sem hér verður lýst með orðum lafði Barrett: „Hún ávarpaði föður sinn látinn og sagði: „Ég er að koma.“ Um leið snéri hún sér til mín og sagði: „Ó, hann er svo nálægur." Svo leit hún aftur á sama stað og sagði með undrunarsvip: „Hann er með Vidu hjá sér!“ Svo snéri hún sér aftur að mér og sagði: „Vida er hjá honum." Síðan sagði hún: „Þú vilt fá mig, pabbi — ég er að koma.““ Dr. Barrett varð fyrir svo miklum áhrifum af því að Doris skyldi sjá Vidu, að hann safn- aði saman öllum slíkum frásögnum, sem hann gat fundið, og gaf þær svo út í bók, sem bar nafnið Banaheðssýnir og út kom 1926. etta var fyrsta kerfisbundna rannsókn- in á þess konar fýrirbærum. Niður- stöður Barretts voru þær, að hinir deyjandi hafi séð í sýn látnar persónur, sem hafi kom- ið til þess að færa þá til sinna himnesku heimkynna. Hann komst þannig að þeirri niðurstöðu, að slíkar sýnir séu algengari, þegar hugur sjúklingsins er skýr og skynsamlegur, og stundum komi það fram í slíkum sýnum, sem hinn deyjandi eigi alls ekki von á. Til dæmis undruðust börn oft að sjá engla án vængja. Einnig kom fram í til- fellum Barretts að sýnunum fýlgdu upp- hafning, unaðslegar tilfinningar, ró og friður. Þá nefndi hann einnig dæmi þess, að viðstaddur ættingi eða hjúkrunarkona fyndi einnig til þessara unaðslegu tilfinninga ásamt hinum deyjandi manni. Það voru einmitt þessar rannsóknir, sem þeir dr. Karlis Osis og dr. Erlendur Haralds- son tóku upp aftur með sama vísindalega árangri. Það hefur lengi verið skoðun mín, að dauðinn sé engan veginn endir allrar mann- legrar reynslu; að við lifum áfram að þessu lífi loknu. Ég er alveg sammála Dag Ham- merskjöld um það, að það sé ákaflega mikil- vægt hverjum manni að gera sér sem fyrst grein fyrir þessu sökum þess, að þessum sannleik fylgir óhjákvæmilegur skilningur á því, að reikningar okkar verða ekki gerðir upp að fullu í þessu Iífi. Það er hverjum hugsandi manni alveg Ijóst með því einu að líta í kringum sig, að niðurstaðan af því að trúa ekki á líf eftir dauðann hlýtur að leiða til þeirrar skoðunar, að réttlæti sé ekki til. Sú skoðun, að þetta líf sé öll tilvera mannsins, getur þvi leitt til eyðileggjandi hugsunarháttar. Ef maður telur sig staddan í frumskógi þar sem ofbeldi, fals og fláræði sé eitt til nokkurs gagns og sá sterki eigi tví- mælalaust að ráða, þá getur slíkt leitt til miskunnarlauss lífs, sem getur eyðilagt við- komandi persónu. eir sem trúa á annað líf, eins og komið hefúr fram í vísindalegri könnun að meiri hluti íslendinga gerir, eða telja það beinlínis hafa verið sannað fyrir sér, sökum þess sem þeir hafa upplifað, og hljóta því jafhframt að gera sér þess fúlla grein, að hver er sinnar gæfu smiður; að áminning Páls postula um að eins og maðurinn sái hljóti hann að uppskera, er lögmál, sem enginn kemst undan. En okkur gengur stundum erfiðlega að átta okkur á því, hvort gæfan sé okkur hlið- holl sökum rangs mats á því í hverju gæfan liggur. Hverja trú sem menn þykjast játa opin- berlega, þá er það sannreynt að á Vestur- löndum og víðast annars staðar er fólk fyrst og fremst metið eftir hæfileikum sínum til þess að safna fé og græða. Áhrifamesti guð Vesturlanda er Mammon, þótt þess sé gætt að viðurkenna það aldrei opinberlega. Hér þarf að hefjast endurmat slíkra skoð- ana og er það raunar hafið meðal fjölda ungs fólks víða um heim. Það hefúr séð á lífi foreldra sinna að gæfan er ekki föl fyrir fé eða frama. Meðal annars af þessum ástæðum hljót- um við að fagna nýjum rannsóknum vísind- anna, sem færa enn nýjar stoðir skynsem- innar undir þá skoðun að látinn lifir. VIKAN 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.