Vikan - 12.11.1987, Qupperneq 60
MYNDBÖND
PIRATES ★
Aðalhlutverk:
Walter Matthau
o.fl.
Leikstjóri
Roman Polanski
Það var gott að Polanski skyldi ekki taka
uppá því að sýna Pirates þegar hann heim-
sótti okkur nú um daginn. Slíkt hefði verið
ærið vandræðalegt, bæði fyrir hann og áhorf-
endur. Fyrir mann sem gert hefur snilldarverk
eins og Tess og Chinatown, hlýtur að vera
afleitt að sitja uppi með þessa misheppnuðu
mynd. Hana skortir bókstaflega allt, dulúð,
gamansemi, ævintýri, eðlilegt rennsii, góð
samtöl og styrka leikstjórn. Maður hlýtur að
spyrja sjálfan sig hvað maðurinn hafi verið að
hugsa, með ómælt fé í höndunum og hug-
mynd sem hefði getað orðið að afar góðri
skemmtimynd. Pirates verður að flokka sem
feilspor á ferli Polanskis sem áreiðanlega á
eftir að ná sér á strik og magna galdur sinn
fyrir unnendur hvíta tjaldsins innan skamms
tíma.
STAND BY ME
★ ★★
Aðalhlutverk:
River Phoenix,
Kieier Sutherland
o.fl.
Leikstjóri
Rob Reiner
Rob Reiner er kvikmyndagerðarmaður á
svipuðum slóðum og John Hughes, en þeir
kumpánar bera höfuð og herðar yfir aðra
bandaríska kollega sína sem notast við börn
og unglinga i myndum sínum. Fjórir drengir
halda í leiðangur til að hafa uppá líki drengs
sem leitað hefur verið lengi en einn þeirra hef-
ur komist á snoðir um hvar það sé að finna.
Leitin að líkinu verður þó ekki aðalatriði mynd-
arinnar heldur persónur og hugsanir drengj-
anna sjálfra um lífið, dauðann og tilganginn.
Þessum stóru spurningum er síðan vafið inni
hlýlegan feld gamansemi, spennu og frábær-
lega vel skrifaðra samtala. Ein af betri mynd-
um síðari missera.
Ásgrímur Sverrisson
X
THE CAINE
MUTINY ★★★
Aðalhlutverk:
Humphrey Bogart,
Van Johnson.
Leikstjóri
Edward Dmytryk.
Ein af þessum traustu skemmtimyndum
sem bárust frá Vesturheimi á fimmta og sjötta
áratugnum, þessi undir öruggri handleiðslu
framleiðandans Stanley Kramer, en nafn
hans má yfirleitt telja gæðastimpil. The Caine
Mutiny segir sögu Queegs skipstjóra og
áhafnar hans um borð í tundurduflaslæðara í
seinni styrjöldinni. Áhöfnin neyðist til að taka
völdin á úrslitastundu, þegar skipstjórinn
brotnar undan álaginu og herréttur fylgir i kjöl-
farið. Ýmsum kann að þykja framsagnarmát--
inn gamaldags en maður getur þó ekki annað
en dáðst að fagmennskunni þar sem orð og
gerðir bera söguþráinn beina leið í höfn án
nokkurra undanbragða eða útúrdúra. Einfald-
lega góð, gamaldags skemmtun.
TOP GUN ★★★
Aðalhlutverk:
Tom Cruise, Kelly
McGillis.
Leikstjóri
Tony Scott.
Það verður að segjast eins og er; mér er
meinilla við að viðurkenna það en mikið skratti
er þetta góð mynd. Hún hefur allt sem slíka
mynd má prýða. Sterkt meginþema (ungur
piltur krefur fortíð sina um reikningsskil og
verður að manni), mikinn hraða og kraft, ag-
aðan leik og stílfærðan samkvæmt umgjörð
myndarinnar og áhrifamiklar sjónrænar upp-
lifanir. En óbragðið kemur þegar maður gerir
sér grein fyrir því að ætlun höfunda myndar-
innar var ekki að segja þroskasögu ungs
manns heldur að stappa stálinu í bandarískan
hernaðarmóral og þá gamalkunnu pólitík að
skjóta fyrst og spurja svo.
ROOM WITH A
VIEW ★★★
Aðalhlutverk:
Helena Bonham-
Carter, Julian
Sands, Daniel
Day Lewis, Den-
holm Elliot.
Leikstjóri
James Merchant.
„Delightful, little comedy" myndu Bretar
segja - og hafa reyndar sagt, ásamt Banda-
ríkjamönnum sem tóku þessari mynd opnum
örmum. Sama skalt þú gera því þessi mynd er
yndisleg lítil perla og góður fulltrúi þess besta
sem bresk kvikmynda- og frásagnarhefð
stendur fyrir. Tvíeykið Merchant/lvory og
handritshöfundurinn Ruth Prawer Jhabvala
endurskapa rómantískt andrúmsloft fyrra
hluta aldarinnar í sögu af ákveðinni ungri
stúlku sem staðráðin er í að koma undir sig
fótunum í lífinu. Persónugerð, leikurog fram-
setningarmáti með afbrigðum vel af hendi
leyst. Hún á eftir að ylja þér um hjartarætur....
Myndir sem við mælum
með á myndbandaleigum
The Mission
Dr. Strangelove
Aliens
A Clockwork Orange
Hollywood Shuffle
East of Eden
the Caine Mutiny
60 VIKAN