Vikan - 19.11.1987, Qupperneq 28
Óðagot ungdómsins
Það hefur borið nokkuð á því að
sportbílaútfærslur smábílanna, sem við
fjöllum um, lendi í árekstrum. Slíkir
bílar eru oftast annar bíll fjölskyldna og
oftar en ekki eru það unglingar, sem
nýkomnir eru með próf sem fá slíka
bíla lánaða og lenda í ógöngum.
Bílarnir eru léttir og kraftmiklir og erfitt
að átta sig á Hraðanum. Flestir bílanna lenda
í árekstrum með framhlutann, sem eitt sér
er ábending uni það að of greitt er ekið. Að
sögn lögreglu hafa aflmiklir japanskir smá-
bílar verið þyrnir í augum löggæslumanna
um helgar. Þá eru það litlu sportbílarnir í
höndum ungdóntsins, sem eru í spyrnu-
leikjunt og kappakstri unt götur bæjarins.
Hafa mörg óhöpp, orðið af þeim sökum. Er
féill ástæða fyrir foreldra að íhuga vel lán á
slíkum bílum. Það sanna klesstir bílar
undanfarna mánuði. Kvað svo rammt að
þessu að nienn voru farnir að tala um að
sumir bílar hlytu að vera gallaðir; ástæðan
er hinsvegar óðagot ungdómsins....
.<■ "'■ - :
Bílaverksmiðjurnar leggja milljarða króna í hönnun og prófanir á nýjum bílum. Alls-
kyns tækjabúnaður er notaður til könnunar á virkni hinna ýmsu hluta bílanna. Á þess-
ari mynd eru starfsmenn Ford í Englandi að prófa fjöðrun í Ford Fiesta á grófúm vegi,
hellulögðum sem eru algengir í borgum á meginlandi Evrópu. í sendibílnum eru tölv-
ur sem nema hreyfingar fjöðrunarinnar, sem sýnirisvo tæknimönnum hvað má bæta.
Fjöðrun bíla verður að virka við allar aðstæður, á malbikuðum vegum, steinsteyptum,
á niöl og þarf mikla vinnu í að stilla hlutina rétt.
Rándýr rannsóknaraðstaða
Ford opnaði nýlega nýja
álmu í rannsóknardeild
sinni í Dunton í Englandi.
Rannsóknarstofan er þegar
metin á tæplega 300 ntill-
jónir dollara, en nýja álman
kostaði 6 milljónir dollara i
uppsetningu. Þar ntá t.d.
prófa virkni bíla í óeðlilega
háum og lágum, hita og
rakastigum.
Sérstakur klefi þjónar
þeirn tilgangi að fn'sta og
liita bíla, allt frá rnínus 40
gráðum á Celcius upp í 50
gráður í plús. Vindgöng
geta rnyndað vindhraða
sem jafnast á við 180 km
hraða og rúllubraut, sem
bíll stendur á setur hann í
220 km hraða. Brautin er
bæði fyrir fram og aftur-
drifria bíla, stóra sem smáa.
Öllum þessurn búnaði teng-
ist nýlegur tölvubúnaður
sem kostaði 15 milljónir
dollara að koma upp.
Avikan á smábílamarkaði
Nýr Skodi
Loksins nýr Skoda. Eftir að hafa framleitt
afturdrifna Skoda í áratugi hyggst verk-
smiðjan tékkneska koma með nýjan bíl á
markað á næsta ári. Bíllinn er hannaður af
vestræna fyrirtækinu Bertone, en vélin mun
koma fráöðrum vestrænum framleiðanda.
Nissan, Isuzu, Volkswagen og Renault eru
öll inn í myndinni hvað vélarmál varðar.
Það verður því fátt tékkneskt nema efnið og
vinnan...
Suzuki Swift í hendur
íslenskra rallökumanna
Til að sýna ffam á styrk og getu bíla sinna
senda bílaverksmiðjur suma bíla i rall-
keppni. En það hefur verið minna um að
smábílar hafi haldið orðstý mismunandi teg-
unda á lofti. Þó hefúr Skoda undanfarin 14
ár, sent sína bíla í bæði Evrópu og heims-
meistarakeppnina í rallakstri með góðum
árangri. Suzuki verksmiðjurnar japönsku
reyna nú að sýna fram á burði Suzuki Swift,
með þátttöku í rallakstri.
Slíkir bílar hafa keppt í þýsku meistara-
keppninni í ár og fimm sinnum unnið sinn
vélarflokk. Nú ætla nokkrir ungir íslending-
ar að taka sig saman og keppa á slíkum bíl-
um bæði hérlendis og erlendis. Öku-
mennirnir Ari Arnórsson og Ævar Hjartar-
son hafa fest kaup á slíkum bílum og ætla að
keppa í minnst þremur mótum erlendis,
auk þess að keppa í röllum íslandsmeistar-
akeppninnar. Þeir telja bílinn sterkan, þó lít-
ill sé og vélarafl gæti orðið nærri 150 hest-
öflum. í 750 kg bíl er slíkt oft mjög mikið
og sjálfsagt munu bílarnir fara greitt, a.m.k.
miðað við stærð.
26 VIKAN