Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 2
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
ITiÖryndís Kristjánsdóttir, annar ritstjóra Vikunnar, skoðar hér
verðlaunabílinn í afmælisgetraun Vikunnar, spegilgljáandi
Peugeot 205 árgerð 1988 þar sem hann stendur til sýnis hjá Jöfri,
sem hefur umboð fyrir þessa vönduðu frönsku bifreiðategund.
G
ÞU GÆTIR EIGNAST
ÞESSA BIFREIÐ
Flott skal það vera. í tilefni
þess að VIKAN er fimmtíu
ára á þessu ári efnum við til
afmælisgetraunar þar sem
vinningurinn er hinn vand-
aði franski smábíll Peugeot
205, sem kostar liðlega 400
þúsund krónur. Hér er um
áskrifendagetraun að ræða
og þú getur verið með ef þú
útfyllir áskriftarbeiðnina í
þessu blaði og krossar við
réttan reit þar sem spurt er
hvaða ár VIKAN hóf göngu
sína. Annað var það nú
ekki. Dregið verður úr rétt-
um lausnum í maí og hver
veit nema þú eignist þá
glænýjan bíl!
Vart er hægt aö finna
hentugri bíl til aö senda
eiginmanninn á útí mjólk-
urbúö eða eftir krökkunum
í skólann. Peugeot 205
meö mjúku frönsku línurn-
ar er bæði lipur og snögg-
ur og eldfljótur í innanbæj-
arsnattinu. Línurnar hafa
falliö kvenþjóðinni svo
mjög í geö að erlendis hef-
ur Peugeot 205 verið kall-
aöur konubíll aldarinnar.
Laglegt útlit og lipurö bíls-
ins hafa fært honum lof um
víöa veröld.
Meö tvær milljónir les-
enda í fararbroddi kaus
hið virta v-þýska tímarit
Auto Motor und Sport Pe-
ugeot 205 bíl ársins í fyrra.
Hönnun, smekkur, frá-
gangur og aksturseigin-
leikar þóttu meö afbrigðum
góöir. Sá heppni í áskrif-
endagetrauninni á því von
á góöu. Peugeot 205 XL,
fagurrauður og gljáandi,
bíður bíllinn eftir eiganda.
Verölaunabíllinn er
þriggja dyra, meö bjart og
rúmgott farþegarými,
rýmra en í flestum smábíl-
um. Stórir gluggar veita
gott útsýni til allra átta og
góöir speglar tryggja að
hægt sé að fylgjast vel
með umferðinni fyrir aftan.
Sætin eru meö þægilegu
áklæöi, sem auðvelt er að
þrífa, ef börnin missa t.d.
niður ís eða brölta um á
skítugum stígvélum.
Það verður enginn
þreyttur á stýri eða gír-
skiptingu, sem eru hvoru
tveggja í senn létt og
nákvæm. Bíllinn er fjög-
urra gíra, með 50 hestafla
vél, sem er meira en nóg í
innanbæjaraksturinn og
skilar bílnum líka duglega
á þjóðvegunum. Þeir sem
huga að ferðalögum á
Peugeot 205, geta notað
farangusrýmið, sem er
216 lítrar að rúmmáli. Þar
er nóg pláss fyrir
innkaupapokana. Svo er
lítil bensíneyðsla einn
stærsti kosturinn, innan-
bæjar eyðir bíllinn tæpum
sex lítrum á hverja hundr-
að kílómetra. Er hægt að
hugsa sér betri vinning?
■ ef þú getur
svarað laufléttri
spurningu um
leið og þú fyllir
út óskriftar-
seðilinn.
■ Um leið og
þú gerist
óskrifandi að
vönduðu blaði
freistar þú
gœfunnar.
■ Þú sparar
verulega með
áskrift - og
gœtir jafnframt
eignast bíl
að verðmœti
kr. 400.000.
2 VIKAN