Vikan


Vikan - 24.03.1988, Side 64

Vikan - 24.03.1988, Side 64
Þannig sparar þú: KLEINUR FYRIR KR. 1» SIK. Þessa uppskrift hef ég bakað í meira en 10 ár við góðar undir- tektir. Reyndar tvöfalda ég hana oft og geymi kleinurnar í frysti í litlum plastpokum. Þær eru þá eins og nýjar þegar þær þiðna. Ég nota alltaf olíu við steiking- una (og þá helst olíu sem heitir Gourmeut og er í 4 1 gulum brúsum.) Þetta er grænmetis- olía og talið frekar hollt. Lítrinn af olíunni kostar um 74 kr. Ég nota 1 — 1.5 1 í pottinn, en það er hægt að nota hluta af olíunni aftur, þannig að ég reikna með að nota ca 0.75 1. Úr deiginu (1 kg af hveiti) fáe ég 107 sæmilega stórar kleinur. 0.75 1. olía 55.50 1 kg hveiti 47.00 1 tsk hjartasalt 1.00 8 tsk lyftiduft 6.00 2 tsk sítrónudr. og kardimommur (dufit) 2.00 100 gr smjörlíki 4.70 250 gr sykur 4.75 3 egg 40.00 '/2 1 mjólk 23.50 (ég nota stundum dálítið af súrmjólk. Samtals. kr. 184.45 Rafmagn ca. 10.00 Alls kr. 194.45 Stykkið kr. 1.81 Hræra saman smjörlíki og sykur, bæta eggjunum útí og hræra vel. Setja hveiti, lyftiduft, hjartasalt, dropa og mjólk sam- an við og hnoða annaðhvort í vél eða höndum. Skiptið deiginu í 4 hluta og fletjið með kökukefli. Búa til kleinur og snúa þeim. Steikja gulbrúnar í heitri feiti (gott að hafa plötuna á 2.5) Vigdís Stefdnsdóttir bakaði 64 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.