Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 22
„Fyrst finnum við módel,
fáum síðan hugmynd
og svo er að byrja“
- segja þátttakendur frá hárgreiðslustofunni Guðrún Hrönn
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON
Frá hárgreiðslustofu Guðrúnar Hrannar komu þrír keppendur,
enda keppnisandi ríkjandi þar innandyra því Guðrún Hrönn
sjálf er mikil keppnismanneskja og hefur tekið þátt í fjölmörg-
um keppnum. Stúlkurnar hennar sem tóku þátt heita Þórunn
Sigurðardóttir sveinn, Emelía Blöndal nemi og Steinunn
Bragadóttir nemi.
Ljósmyndarinn okkar mætti á stof-
una einn laugardagseftirmiðdag þegar
þær voru að æfa sig fyrir keppnina.
Þórunn, eða Systa eins og hún er oft-
ast kölluð, sagði okkur frá því sem þær
voru að gera. „Við byrjum að undirbúa
okkur svona tveim mánuðum til sex vik-
um fyrir keppni. Við byrjuðum á því að
finna okkur módel - síðan er að finna
hugmynd. Sumir fara öfugt að og fá
hugmyndina fyrst og fara síðan að leita
að módeli sem passar.
Hugmyndin breytist síðan oftast í
meðförum og verður kannski allt öðru-
vísi að lokum en í upphafi. Hér æfðum
við okkur fyrst bara um helgar, en síð-
ustu dagana fyrir keppni æfum við okk-
ur öll kvöld. Þegar komiö er að keppni
þá erum við búnar að útfæra greiðsl-
una eins og við viljum hafa hana. Einn-
ig ákveða háraliti og sumar nota hár-
toppa með og þá þarf að lita þá eins
eða í mótlit. Föstudaginn fyrir keppni
þá erum viö tilbúnar til að fara að máta
saman greiðsluna, fötin og farðann. Á
keppnina megum við mæta með
greiðslurnar 75% unnar og Ijúkum við
þær á sviðinu."
Því það er ekki nóg með að þátttak-
endur greiði eða klippi hár. Þeir þurfa
einnig að farða módelin og útbúa fatn-
aðinn á þau þannig að heildarsvipur
myndist og allt fari vel saman; hár, förð-
un og fatnaður. Dómararnir hafa allt
þetta í huga þegar stigin eru gefin. í
keppni í frjálsri greiðslu verður að
reyna að koma með listrænar, hug-
myndaríkar og fyndnar greiðslur fremur
en greiðslur sem notaðar eru daglega.
Hárgreiðslu- og hárskerameistarar
og -sveinar kepptu saman og síðan
kepptu saman nemar í báðum grein-
um. Fern verðlaun - sem eru utan-
landsferð á námskeið í faginu - eru
veitt, en eins og fyrr segir er keppnin
haldin á vegum tímaritsins Hárs og fe-
gurðar og í næsta hefti þess verður
keppninni gerð veglegri skil en við gát-
um gert hér - og þar verða birtar mynd-
ir af verðlaunagreiðslunum. □
Emelia Blöndal þurrkar hárið á sínu módeli sem er með mjög sitt hár. Emelía túperaði hárið síðan mjög stíft og greiddi hátt upp frá höfðinu.
Hárið var litað koparlitt og eins konar „skrúfulokkar" féllu niður eftir greiðslunni, en árangurinn sést hér á næstu mynd.
22 VIKAN