Vikan


Vikan - 24.03.1988, Page 2

Vikan - 24.03.1988, Page 2
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON ITiÖryndís Kristjánsdóttir, annar ritstjóra Vikunnar, skoðar hér verðlaunabílinn í afmælisgetraun Vikunnar, spegilgljáandi Peugeot 205 árgerð 1988 þar sem hann stendur til sýnis hjá Jöfri, sem hefur umboð fyrir þessa vönduðu frönsku bifreiðategund. G ÞU GÆTIR EIGNAST ÞESSA BIFREIÐ Flott skal það vera. í tilefni þess að VIKAN er fimmtíu ára á þessu ári efnum við til afmælisgetraunar þar sem vinningurinn er hinn vand- aði franski smábíll Peugeot 205, sem kostar liðlega 400 þúsund krónur. Hér er um áskrifendagetraun að ræða og þú getur verið með ef þú útfyllir áskriftarbeiðnina í þessu blaði og krossar við réttan reit þar sem spurt er hvaða ár VIKAN hóf göngu sína. Annað var það nú ekki. Dregið verður úr rétt- um lausnum í maí og hver veit nema þú eignist þá glænýjan bíl! Vart er hægt aö finna hentugri bíl til aö senda eiginmanninn á útí mjólk- urbúö eða eftir krökkunum í skólann. Peugeot 205 meö mjúku frönsku línurn- ar er bæði lipur og snögg- ur og eldfljótur í innanbæj- arsnattinu. Línurnar hafa falliö kvenþjóðinni svo mjög í geö að erlendis hef- ur Peugeot 205 verið kall- aöur konubíll aldarinnar. Laglegt útlit og lipurö bíls- ins hafa fært honum lof um víöa veröld. Meö tvær milljónir les- enda í fararbroddi kaus hið virta v-þýska tímarit Auto Motor und Sport Pe- ugeot 205 bíl ársins í fyrra. Hönnun, smekkur, frá- gangur og aksturseigin- leikar þóttu meö afbrigðum góöir. Sá heppni í áskrif- endagetrauninni á því von á góöu. Peugeot 205 XL, fagurrauður og gljáandi, bíður bíllinn eftir eiganda. Verölaunabíllinn er þriggja dyra, meö bjart og rúmgott farþegarými, rýmra en í flestum smábíl- um. Stórir gluggar veita gott útsýni til allra átta og góöir speglar tryggja að hægt sé að fylgjast vel með umferðinni fyrir aftan. Sætin eru meö þægilegu áklæöi, sem auðvelt er að þrífa, ef börnin missa t.d. niður ís eða brölta um á skítugum stígvélum. Það verður enginn þreyttur á stýri eða gír- skiptingu, sem eru hvoru tveggja í senn létt og nákvæm. Bíllinn er fjög- urra gíra, með 50 hestafla vél, sem er meira en nóg í innanbæjaraksturinn og skilar bílnum líka duglega á þjóðvegunum. Þeir sem huga að ferðalögum á Peugeot 205, geta notað farangusrýmið, sem er 216 lítrar að rúmmáli. Þar er nóg pláss fyrir innkaupapokana. Svo er lítil bensíneyðsla einn stærsti kosturinn, innan- bæjar eyðir bíllinn tæpum sex lítrum á hverja hundr- að kílómetra. Er hægt að hugsa sér betri vinning? ■ ef þú getur svarað laufléttri spurningu um leið og þú fyllir út óskriftar- seðilinn. ■ Um leið og þú gerist óskrifandi að vönduðu blaði freistar þú gœfunnar. ■ Þú sparar verulega með áskrift - og gœtir jafnframt eignast bíl að verðmœti kr. 400.000. 2 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.