Vikan


Vikan - 24.03.1988, Síða 5

Vikan - 24.03.1988, Síða 5
m^^mmm saumakeppni husqvarna og vikunnar mmm^^m Vönduð saumavél „ fyrir snið að einfaldri flík Lesendur hafa sýnt keppninni veruiegan áhuga og margir hafa hringt til að spyrja nánar út í tilhögun. Kona hringdi og spuröi hvort senda mætti fleiri en eina flík í keppnina, því hún sagðist ekki geta valiö á milli tveggja. Viö sjáum ekkert athugavert viö þaö þó sami aðili sendi inn fleiri en eina flík. Sendiö okkur bara endilega flíkurnar sem fyrst. Viö höfum einnig veriö spurö hvort flíkunum veröi ekki skiliaö aftur. Svariö viö þeirri spurningu er aö öllum flíkum veröur skilað, hvort sem uppskriftir aö þeim koma til með aö birtast í blaöinu eöa ekki. Aftur á móti viljum viö endur- taka aö flíkurnar veröur aö merkja vel; helst þarf aö sauma merkimiöa fasta innan í flíkina vegna þess að þegar verið er aö Ijósmynda hana eöa flytja á milli staöa getur illa festur merkimiði týnst. Sé frekari upplýsinga þörf hikið þá ekki viö aö hringja - verðlaunin eru þess viröi aö taka þátt því Husqvarna Optima 190 saumavélin gerir saumaskapinn svo sannar- lega aö leik því á hana er hægt aö sauma bæöi einfaldan og tvöfaldan „overlock" saum, hún er meö sjálfvirkum hnappagatasaum, hægt er að sauma meö henni alla helstu nytjasauma, s.s. blindfald, hraðstopp, styrktan beinan saum, og vélin er meö gír þannig aö hægt er aö setja hana í hægagang ef vill. A henni er nálarstopptakki sem ræöur því hvort nálin stoppar ofan í efninu eöa upp úr. Vélin er ekki nema 61/2 kíló en er samt mjög kraftmikil og fer t.d. auðveldlega yfir 12-14 falt gallabuxnaefni. Kveðja, Bryndis Kristjánsdóttir ritstjóri Saumavélin sem veitt verður í verðlaun. Fermingargjöfm Pósthússtræti 13, sími 22477. „Sjarmerandi" satínnáttföt, jakki, buxur og sloppur. Sérstaklega vandað satín, mjúkt og létt. Rllegir litir, mildir eða líf- legiraðvild. ŒB AUGCrSINGAWONVSTAN < SIA

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.