Vikan


Vikan - 24.03.1988, Page 9

Vikan - 24.03.1988, Page 9
stofan hjá honum er full af fárveiku fólki. Ég held ég hafi aldrei stansað lengur en fimm mínútur við skrifborð læknis, rétt á meðan maður leitar í öllum vösum að hundraðkalli eða hvað það nú er sem það kostar að sjá þá; maður situr lengur hjá bankastjóranum. Grasalæknirinn spurði mig í þaula um mataræði mitt. Ég reyndi að muna eftir bestu getu. Stundum hristi hann höfúðið áhyggjufúllur, sagði mér alvarlegur í bragði ffá því hverslags andstyggðareitri matvælaiðnaðurinn væri farinn að ausa út í venjulegt kaupfélagsdót; ég fann næstum hvernig ég var farinn að rotna að innan. Ég þóttist vita áður en ég heimsótti doktor Grasa að hann myndi ráðleggja mér að draga úr eða hætta kaffidrykkju. Kaffiþamb er þjóðarvani og ég reiknaði það út í hug- anum að ég setti trúlega í mig hátt á annan lítra af þessum snilldardrykk dag hvern. Það fór hrollur um lækninn þegar ég áætl- aði magnið. — Þessu verður að ljúka, sagði hann eins og stjórmálamaður um þjóð- félagsástandið. Og ég lofaði að gera mitt besta. — Þú verður að minnka þetta niður í tvo bolla. Ég bara hætti alveg, sagði ég borubrattur. Það tókst nú ekki betur til en svo að um miðjan næsta dag var ég kom- inn með erfiðan höfuðverk af kaffileysi, varð að setja í mig eins og þrjá desilítra af expresso til að þola við. — Enga mjólk, sagði hann og glotti. — Ekkert mál, sagði ég, — ég hef ekki litið við því gumsi síðan ég var sjö ára. Drekk hana aldrei. — En þú borðar súrmjólk og ost og þess háttar, ekki satt? - Já. — Ég vil að þú hættir alveg við mjólk og mjólkurvörur. Það þýðir að þú verður að hætta að borða brauð, kex, sósur og bara allt sem hugsanlegt er að mjólk sé notuð í. — Já, sagði ég. Þegar ég kom heim og fór að rannsaka kæliskápinn var ekkert, nákvæmlega ekkert, sem mér leyfðist að leggja mér til munns. Og vegna þess að það var áliðið dags vannst mér ekki tími til að endurnýja matvælabirgðir heimilisins. Ég fór svangur að sofa. Morguninn eftir hrakti hungrið mig ofan í rauðabítið. En ísskápurinn hafði ekki bætt neinu í sig síðan kvöldið áður. Ég starði á allt iðnaðareitrið fúllur fjandskap- ar, þetta dót sem ég hingað tii hafði elskað. Svo fór ég að rifja upp það sem grasa- Iæknirinn hafði mælt með. Og sá fýrir mér í huganum gulrótarknippin, kartöfluhaug- ana og baunirnar sem hann vildi að ég kýldi vömbina með. — Tja, sagði ég hugsi við sjálfan mig. - Það ætti að vera í lagi að fá sér eins og eina gamaldags brauðsneið. Og svo drekk ég te með. Það er ekki alveg eins slæmt og kaflfið. Og Grasi sagði að það væri illskárra. Það er heldur ekki hægt fýrir fúllorðinn karlmann að setjast allt í einu niður og nasla fylli sína af gulrótum og drekka grasaseyði með. Fjandakornið! Ég þakkaði húsguðunum heilsu mína og réðist ein- beittur á ostbita sem hafði ekki haft rænu á að skjóta sér undan. Og mér veittist mun auðveldara að hugsa hlýlega til grasalækna og hollráða þeirra eftir að hafa fengið mér belgfylli af öllu því ullabjakki sem þeir vara við. — Þú ert ákaflega mótþróafullur, sagði nornin og horfði bláeyg í glerkúluna. — Ég ráðlegg þér að fara að ráðum grasalæknis- ins og borða meira grænmeti. Smám sman verðurðu glaðværari og samvinnuþýðari. Það er öllum fyrir bestu, ekki síst fjöl- skyldu þinni. - Þetta er samsæri, hugsaði ég. - Það eru hafnar samræmdar aðgerðir sem miða að því að brjóta mig niður, gera mig að sí- brosandi skapleysingja, skoðanalausum grastyggjara sem er öllum til lags. Hvurs- lags gerpi er það eiginlega? Og þó; ef borg- arstjórinn í Reykjavík gengst inn á það að hætta við ráðhúsofforsið og vill rækta gul- rætur þess í stað í hlýlegum reit við Vonar- strætið og verður þar sjálfúr með klóruna í moldinni allan daginn þá skal ég láta af háskasamlegu líferni og verða samvinnu- þýðari, hugsaði ég. Eða hvað? Ætti ég kannski að taka upp baráttu fyrir því að þjóðin öll, en þó einkum ráðamenn, taki upp graskenndara fóður jafhframt því sem nornir fái starf við að lagfæra útgeislun þeirra. Því ekki það? — Já, sagði nornin ákveðin í bragði enda hafði hún lesið hugsanir mínar. — Því ekki það. Og svo renndi hún löngum fingrum inn á barm sér og dró fram langt, mjótt glas sem hafði að geyma tæran vökva. Þeg- ar hún kippti tappanum úr glasinu lagði á móti mér koníaksilminn. — Þetta er Iausn- in, sagði nornin. - Lausnin á öllum þínum vandræðum. Blómadropar. Blómadropar eru unnir í útlöndum. Þar sitja margar nornir og pressa tæran vökva úr hinum ýmsu jurtategundum, setja í bragðefni og áfengi og gauka þessu svo að fólki sem þær telja að þurfi hressingar við. — Hvernig virkar þetta? spurði ég norn- ina. — Það veit ég ekki, sagði hún. — Enda er það aukaatriði. Ég get aðeins sagt þér að það virkar. oft verkir hér og þar. Þeir sem þjást af asma eru t.d. oft með mjólkurofnæmi og liðagigt getur stafað oft af glutenofnæmi. Gluten er í öllu hveiti og oft batnar ungu fólki sem þjáist af liðagigt ef það hættir að borða hveitimat, s.s. brauð. Einnig hefur mikið verið talað um gluten í sambandi við MS og psoriasis. Fólki með þessa sjúk- dóma stórbatnar oft á því að hætta að borða fæðu sem inniheldur gluten. Eina brauðið sem þetta fólk má þá borða er brauð sem bakað er úr hrísmjöli eða maís- mjöli.“ — „En hvað er það sem grösin gera til hjálpar?" „Segja má að jurtir vinni þannig að þær komi inn bakdyramegin, kíkja og segja: „Hvað get ég gert hér?“ Þær reyna að koma þvagörvandi og kalíumrík. reglu á líkamsstarfsemina þannig að líkam- inn ráði sjálfúr við að iækna meinsemdina. T.d. er til ber sem getur hækkað eða Iækk- að blóðþrýsting eftir því hvort það er sem viðkomandi þarf. Einnig eru til grös sem gefin eru þegar skjaldkirtillinn starfar ekki rétt. Þessi grös myndu ekki gera neitt þar sem skjaldkirtillinn starfar eðlilega — það er aftur á móti ekki hægt að segja um hefð- bundin skjaldkirtilslyf. Grös geta einnig hjálpað í þeim tilfell- um þar sem fólk verður að búa við sjúk- dóm ævilangt. T.d. í tilfellum þar sem æðar í hjarta eru orðnar kalkaðar eða blóðfita orðin mikil þá eru til grös sem hjálpa til við að auðvelda blóðstreymi til hjartans. Svo er það svefnleysið sem hrjáir marga í dag. Þar hafa jurtir borið alveg ótrúlega góðan árangur og oft lagast margir kvillar þegar búið er að ráða bót á svefnleysinu." — „Hvernig hafa læknar hér tekið ykkur?“ „Eldri læknar eru miklu jákvæðari gagn- vart okkur. Þeir yngri eru enn fastir í því sem þeir eru nýbúnir að læra. í Englandi fer margt fólk frekar til grasalækna og þá út af öllu mögulegu. Til dæmis er algengt að karlar sem eru farnir að eldast komi og biðji um eitthvað við getuleysi. Við þessu fá þeir m.a. netlur, en af þeim eru settar 2—3 tsk. í bolla og búinn til úr þeim drykk- ur og má drekka af honum eins mikið og hver vill. Drykkurinn virkar einnig til styrktar ónæmiskerfinu og hjálpar til að hreinsa út. Úr netlum er einnig búinn til áburður sem virkar vel á húðútbrot sem mikill kláði fylgir.“ — „Netlur eru semsagt hálfgerð galdra- Maríustakkur er sérstaklega góð jurt fyrir konur. Hún kemur til hjálpar þegar blæðing- ar eru miklar. jurt, en fær fólk ekki á sig útbrot og kláða við að koma við þær?“ ,Jú, en náttúran á ráð við því,“ segir Linda ánægð fyrir náttúrunnar hönd. „Við hliðina á netlunum vex alltaf jurt sem á latínu heitir Rumex. Ef tekið er af henni lauíblað og það brotið í tvennt og síðan nuddað yfir kláðablettina þá hverfa útbrot- in og kláðinn!" Þegar hér var komið sögu var Linda far- in að Iíta á klukkuna, en sagði að hún gæti vel haldið áfram að segja fflá en að hún yrði að blanda skammta á meðan fyrir fólk sem kæmi að sækja þá seinna um daginn. Okkur fannst ekki rétt að tefja lengur, enda aldrei hægt að fá allt að vita í einu viðtali. Aftur á móti var kominn tími til að senda næsta blaðamann í viðtal við konu sem býr til blómadropa og notar fleiri hjálparmeðul til að koma fólki til betri heilsu. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.