Vikan - 24.03.1988, Page 20
FRÁ FREESTYLE KEPPNINNI Á HÓTEL ÍSLANDI
HÁRFlNT
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR / LITMYNDIR: MACNÚS HJÖRLEIFSSON
Sjaldan eða aldrei hafa sést jafn margvíslegar og nýstárlegar greiðslur í nokk-
urri hárgreiðslukeppni hér á landi eins og í þeirri sem haldin var á Hótel íslandi
sunnudaginn 6. mars síðastliðinn.
Keppnin er haldin á vegum tímaritsins Hárs og fegurðar og var þetta í 5. sinn sem
keppnin fór fram. Keppt er tvisvar á ári, annars vegar í Reykjavík en hins vegar í Sjall-
anum á Akureyri. Keppendur hafa aldrei verið fleiri en að (Dessu sinni. Alls voru þeir
85 og sýndar voru jafnmargar greiðslur. Áhugi annarra en þátttakenda er einnig mjög
mikill því áhorfendur fylltu áhorfendasvæði Hótel íslands.
Dómarar sem daemdu greiðslurnar voru 12 talsins, fagmenn og leikmenn, en kepp-
endur skiptust í sveina- og meistaraflokk sem kepptu sér og síðan kepptu nemar sér.
Þarna var bæði keppt í hárgreiðslu og hárskurði. Állir voru sammála um að dómurun-
um væri mikill vandi á höndum, því þarna mátti sjá alveg ótrúlega listræna hæfileika
hársnyrtifólksins. Jafn erfitt áttum við með að velja myndir til birtingar hér og hefðum
gjarnan viljað hafa myndir af öllum greiðslunum. Því miður getum við ekki birt nema
örlítið brot, sem ætti þó að nægja til að lesendur fái smjörþefinn af því sem þarna var
að gerast. □
Myndir á þessari síðu: Heiðurinn af greiðslunni efst t.v. á Gústa Hreinsdóttir sem er
meistari og starfar hún á hárgreiðsiustofunni Hár Expo. Yfirleitt farðar hárgreiðslufólk-
ið módel sín sjálft en þessi er förðuð af Línu Rut. Greiðslan og fatnaðurinn eiga að
gefa brúðarímynd. Stúikunni á myndinni þar við hliðina var greitt af Þóreyju Erlu
Gísladóttur en hún er sveinn og starfar á hárgreiðslustofunni Carmen í Hafnarfirði.
Hárið er fléttað í mjóar fléttur og vír settur í þær þannig að þær standa út frá höfðinu
á þennan hátt. Hér til hliðar er mynd af stúlku sem Jónheiður Steindórsdóttir, sveinn
á hárgreiðslustofunni Papillu, greiddi. Með greiðslunni notar hún hvítar fjaðrir og
greinar og hárlokk úr gervihári krullaði hún með eldgömlu krullujárni sem hitað er á
plötu.
20 VIKAN