Vikan


Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 32

Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 32
KYNNING Hávaxnar konur fá búð fyrír sig Hönnuður fatnaðarins í Exell leggur áherslu á að fötin séu kvenleg, eins og þessi kjóll ber með sér. Föt með klassísku sniði og I litum sem ekki eru mjög háðir tískusveiflum eru ríkjandi. Hér eru góðar buxur sem ganga jafnt sumar sem vetur og skemmtileg blússa við. K' onunum finnst það mjög góð tilfinning að >. geta gengið inn í búð og fengið á sig föt sem passa - að þurfa ekki lengur að hafa það á tilfinningunni að þær séu öðru vísi en aðrir bara af því þær eru stórar,“ segir Sandra Róbertsdóttir eigandi einu verslunarinnar sem sérhæfir sig í fatnaði fyrir hávaxnar konur - 175 cm og hærri. Þetta er versl- unin Exell á Hverfisgötunni, en meðeigandi Söndru er dóttir hennar, Sigrún Stella Einarsdóttir. Stella þekkir vel af eigin raun hvernig það er að reyna fá á sig passandi föt þegar hæðin er yfir meðlagi, því Stella er 185 cm á hæð. „Ef t.d. síddin á kjól var nokkurn vegin rétt, þá var mitt- ið á honum á allt öðrum stað en mittið á mér,“ segir Stella. Áður en þær mæðgur réðust í að opna svona sérhæfða verslun eins og Exell er, þá gerðu þær smákönn- un á því hversu mikið er um sér- lega hávaxið kvenfólk hér. Þeirra niðurstaða varð sú að hér væru um 10% kvenna — og jafn- vel fleiri — 175 cm á hæð eða hærri. Þær fóru því að leita að fatn- aði sem hentaði og þegar Sigrún Stella sá smáklausu í Observer um konu í París sem sérhæflr sig í fötum á hávaxnar konur, þá höfðu þær mæðgur samband við hana strax. Þessi kona er fransk- ur fatahönnuður, Carole de Wech, og er hún sjálf mjög há. Hún hannar fötin og rekur verk- stæði þar sem þau eru saumuð. Stella sagði að þetta væri eini staðurinn í París, sem þær vissu um, sem sérhæfði sig í þessum fatnaði. Carole tók þeim mæðg- um mjög vel og þær sáu strax að hennar fatnaður myndi henta þeim vel, en Carol leggur áherslu á að hafa fötin kvenleg, úr góðum efnum og ekki um of háð tískusveiflum, þannig að þau detta ekki úr tísku á örfáum mánuðum. „Ungar konur sem koma inn í búðina, segja sumar að þeim flnnist fötin of „konuleg", segir Stella, en Carole er tiltölulega nýbyrjuð og hefur takmarkað sig við vissan aldurshóp til að byrja með. Hún er núna að fara að huga að hönnun léttari fatn- aðar sem hæfir líka þeim yngir, eins og t.d. gallabuxur. Þegar hún er tilbúin með nýja Iínu þá sendir hún okkur sýnishorn og við pöntum eftir þeim. Við reynum að hafa úrvalið eins fjöl- breytt og hægt er, en auk fatnað- arins frá Carole þá höfum við látið útbúa peysur fýrir okkur hér heima.“ Stella segir að versluninni hafi verið vel tekið, þó viðskiptin hafi farið hægt af stað, en Exell var opnuð 12. desember sl. 32 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.