Vikan


Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 41

Vikan - 24.03.1988, Blaðsíða 41
BLÓM TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR Nílarscf Cyperus diffusus ■ Hér getur aö líta Nílarsef, Cyperus diffusus, sem er af Cyperaceaeætt. Til þessarar ættar heyra að minnsta kosti tíu mismunandi og nokkuð ólíkar tegundir. Nílarsef er þolin planta og nýtur töluverðra vinsælda um þessar mundir. Hún þarf ekki að vera í mikilli birtu né gerir hún sérstakar kröfur til hitans í kringum sig, það eina sem skiþtir máli er að hún þorni aldrei. Já, og það sem meira er moldin verður að vera vel blaut. Nílarsef blómstrar á vorin og sumrin, en blómin eru ekkert augnayndi. Nílarsef þolir vel stofuhita, en kann hins veg- ar ekki að meta að loftið verði mjög þurrt. Nauð- synlegt er að vökva plöntuna vel á sumrin, en heldur má draga úr vökvuninni að vetrarlagi. Plantan hefur gott af að fá áburð frá því í aþríl og fram í ágúst. Hæfilegt er að gefa henni áburðinn einu sinni í viku. Best er að fjölga Níl- arsefi með því að taka blaðhvirfingu af plönt- unni að blómgun lokinni. Látið 5 cm langan legg fylgja blaðhvirfingunni. Leggnum er stungið í vatn og hvirfingin látin nema við vatnsyfirborð- ið. Fljótlega myndast rætur og þá er kominn tími til að stinga græðlingnum í mold. Stjörnuspó fyrir vikurnar 24. mars til 7. apríl Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Pú stefnir að ákveðnu marki en ert orðinn nokkuð lang- eygur eftir árangrinum. Petta tekur talsvert langan tíma en allt miðar í rétta átt svo þú skalt halda ótrauð- ur áfram. Nautið 20. apríl - 20. maí Farðu mjög gætilega þvi leiðin framundan er óskýr. Vendu þig á að hata sjálfstæðar skoðanir. Aðili af hinu kyninu mun verða þér til mikillar hjálpar. Vertu sem mest heima við. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Líklegt er að eitthvað reki á fjörur þínar sem aðeins veitir þér hamingju ef þú leyfir öðrum að njóta þess með þér. Heillalitir eru blár og gulur. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Ókunnur maður ráðleggur þér í mikilsverðu máli. Pér kemur ráð hans mjög á óvart og finnst fráleitt að fylgja því. Pú skalt samt hugsa málið betur. Hugmyndin er ekki eins fráleit og hún sýnist. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Líklega berast þér í hendur talsverðir fjármunir. Ef þú ert ekki viss um hvernig þeirra er aflað skaltu þegar í stað losa þig við þá, annars gætu þeir leitt af sér ógæfu. Meyjan 23. ágúst- 22. september Þú færð góða borgun fyrir góðverk sem þú gerðir fyrir löngu og varst satt að segja búinn að gleyma. Láttu einskis ófreistað að fara út og skemmta þér svolítið hressilega. Vogin 23. sept. - 23. okt. Haltu hugsun þinni vak- andi og fylgstu vel með því sem er að gerast. Pú ert orðinn háskalega leiður á atvinnu þinni enda ættu að leynast víða möguleikar á því sviði. Athugaðu málið vel. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Vertu varkár í sambandi við allar ákvarðanir sem þú þarft að taka varðandi fjármál. Pú hefur í mörg horn að líta þessa vikuna og ættir þvi ekki að láta neinn hégóma trufla þig. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Einhver persóna sem þú þekkir ekki mikið verður þér til trafala í vikunni. Við því er ekkert að gera svo þú skalt taka því með jafnaðargeði. Pað verður óvenju skemmtilegt í vinnunni. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Vertu heima og stundaðu tómstundaiðju þina. Forvitin per- sóna hefur komist að einhverju í sambandi við þig sem helst ekki má vitnast. Reyndu að stinga upp í hana, annars verður leyndarmálið á allra vitorði. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Pér er nauðsynlegt að um- gangast fólk sem er talsvert yngra en þú. Pú munt eignast marga ágæta vini úr þeim hópi. Þér verð- ur vel ágengt á sviði sem þú væntir þér ekki mikils af. Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars Leyndardómsfullt atvik verður til þess að þú átt mikla hamingju í vændum. Pú skalt ekki eyða of miklum tíma i að grafast fyrir um orsök velgengninnar held- ur njóta hennar sem best. VIKAN 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.