Vikan - 24.03.1988, Qupperneq 63
HEILABROT
ncji Jjjj nsm
Patrick Siiskind, höfundur Iimsins og
Kontrabassans, rithöfundur á hraðri leið
upp á frægðarhimin, hefur augljóslega
gaman af því að fera lesendum sínum
fróðleik af einhverju tagi. í Kontrabassan-
um segir hann þeim sem fávísir eru á sviði
tónlistar margt um uppbyggingu tón-
smíða, hugsunarhátt tónskálda og fleira í
framhaldi af því. Fróðleikurinn flæðir ffam
af munni leikarans (Árna Péturs Guðjóns-
sonar hjá leikhópnum Frú Emilíu) og úr
penna skáldsins. I Ilminum, skáldsögu sem
kom út sl. haust í þýðingu Kristjáns Árna-
sonar ffæðist lesandinn um ilmvatnsgerð
og lyktarvinnslu. Auk þess að fá ofurlitla
hugmynd um allan þann daun sem legið
hefúr yfir borgum fyrr á öldum. Ódauninn
þann reynir maður svo að bera saman við
ólyktina sem stundum svífúr að vitum
manns í borgum nútímans. Ég minnist
þess að lengi vel fannst mér útblástur bíla,
bensín- og malbiksangan vera minn lífsel-
exír og neitaði að taka mark á kvaki um-
hverfisverndarmanna sem sögðu að lítil
börn fengju taugasjúkdóma af að alast upp
í bensín reyk. Svo var ég einhverju sinni í
Lissabonn. Þá var heitt í veðri og þoku-
kennt loft Iagði yfir borgina af hafl. Olíu-
brækjan var sjáanleg berum augum, lagðist
að húsveggjunum og maður sá svarta
tauma koma að manni í augnhæð. Og log-
sveið í vit og augu. Þegar þessi stybba og
þessi sviði blandaðist saman við matarlykt-
ina frá veitingastöðunum nærri ströndinni
og reyndar líka inni í borginni og uppi á
hæðum, varð úr fúrðulegur daunn sem
svipti mann matarlyst, framkallaði brjóst-
sviða og velgju. Ég veit ekki hver ókjör ég
varð að þamba af bjór og víni til að sætta
vitin við pestina.
Hér nyrst í veröldinni feykist þessi
brækja út í veður og vind. Og þótt kokkar
steiki stórum og löngum þá hverfur matar-
lyktin upp í himingeim löngu áður en feit-
in nær að þrána og lyktin verða vond. Eig-
inlega finnur maður ekki oft vonda lykt í
íslensku þéttbýli nema þegar þeir eru að
bræða loðnu ellegar þorskhausa og flsk-
mjölsbrækjuna leggur yfir byggðina.
Stundum hvílir bræðsludaunninn yfir
Reykjavík og á það til að liggja dagpart yfir
Þingholtunum því að þar er oftast logn og
trúlega hlýjast loft reiknað út ffá meðaltali
ársins á landi hér. Þegar þannig stendur á
tekur maður eins og óvart eftir því að
maður hefur Iyktarskyn. Annars er ilman-
inn sú skynjun nútímamanns sem einna
næst því er að detta upp fyrir. Ekki yrði ég
hissa þótt ég frétti það austur í eilífð þegar
þar að kemur að börnin verði farin að feð-
ast án lyktarskyns, kannski alveg neflaus.
Þegar ég var barn og var sendur í sveit
eins og þá þótti hverjum manni hollt,
helltist sveitalyktin yfir mig og mér til
mikillar furðu var bara ánægjulegt að anda
að sér lykt af ferskum beljuskit, kindaskít
ellegar lyktinni af blautum smalahundi. Að
maður ekki nefni lykt af hrossum, lykt af
nýmjólk, lykt af nýsleginni töðu. Öll ver-
öldin græn og vellyktandi, skógurinn ilm-
aði, moldin angaði, lyngið lyktaði. Um
haustið kom maður suður inn í lyktarlausa
veröld. í Reykjavík var engin lykt, nema
kannski á öskuhaugunum og svo náttúr-
lega í fjörunni og niður við höfh. En á
þessum slóðum var maður aldrei, fann því
aldrei lykt. Nema á jólunum. Á jólunum
kom til manns lykt af nýjum ávöxtum. Og
rakspíra.
Þegar ég stálpaðist fóru gamlar frænkur
að gefa mér rakspíra í jólagjöf. í fyrstu hélt
ég að það væri vegna þess að af mér væri
verri lykt en af öðru fólki. Svo komst ég að
því að frænkurnar voru að uppgötva lykt-
arleysið í mannheimi og vildu bæta úr.
Alla tíð síðan hef ég átt rakspíra í glasi.
Reyndar nota ég hann aldrei. Og spíra-
flöskurnar rykfalla. Og þó - eftir að ég las
Ilminn hans Súskinds stend ég mig að því
að snúa tappann af gamalli flösku og lykta,
lykta vel og lengi. Trúlega er rakspíralykt
með þeim ómerkilegri í lyktarheimi þeirra
sem kunna að nota nefið. En eigi að síður
hef ég á tilfinningunni að hún geti verið
góð byrjun fyrir mann sem er í eins konar
endurhæfmgu. Það er ótækt að láta geril-
sneytt umhverfið, tæknifægðan nútímann
svipta mann einu af fáum skilningarvitum.
Nefið lengi Iifi! Og Súskind líka! -GG.
VIKAN 63