Vikan


Vikan - 24.03.1988, Qupperneq 67

Vikan - 24.03.1988, Qupperneq 67
Grikkir fangelsa Mollý -hún gleymdi agúrkunni! Eftir að hafa eytt sem svarar til tæpra tveggja milljóna íslenskra króna í veitingastað sinn varð gúrkuskortur Mollý að falli. Bresk amma hefur verið dæmd í 5 mánaða fangelsi í Grikklandi fyrir að bera ekki agúrku á borð fyrir ferðamenn sem koma í veitingaliús hennar. Molly Huddleston var hand- tekin og látin dúsa í fanga- geymslu vegna þess að hún hafði brotið lög staðarins sem kveða á um að þetta grænmeti sé ávallt til reiðu fyrir matar- gesti. Eina grænmetið sem hún hafði að bjóða var kál sem hún segir að matargestir sínir kjósi heldur. Eftir svefnlausa nótt í fangelsinu var Mollý færð fyrir rétt á Rhodes þar sem verðlags- eftirlitið kærði hana fyrir alls konar einkennilega „glæpi“. Þar á meðal var að hafa sett Chilikássu á bakaða kartöflu og látið borga aukalega fyrir, einnig að bera ekki matseðil á borð hvers og eins en þó var verðlag á öllu alltaf sýnt greinilega. Hún barðist við tárin þegar dómur- inn var kveðinn upp. „Þetta eru allt svo miklir smámunir. Ég trúi því ekki að þetta sé að gerast," sagði hún snökktandi. „Ég eyddi um 30.000 pundum í veitinga- húsið — öllu sparifé mínu — og nú koma þeir fram við mig eins og ég sé ótíndur glæpamaður." Afbrýðisemi nálægra veitingahúsaeigenda Mollý var leyft að yflrgefa fangelsið eftir að hafa áfrýjað og hún hótar nú að leggja málið fyrir Mannréttindadómstól Evr- ópu. Þangað til reynir hún að verða sér úti um 1000 pund sem samkvæmt lögum staðarins nægir til að kaupa sig frían frá ákærunni. Ekki hefur þurft að loka veitingastað hennar, Hjá Molly (Molly’s Place) og hún segir að þar sé útúr fullt á hverju kvöldi. Þangað sækja einkum erlendir ferðamenn sem eru mjög ánægðir með að fá hefðbundinn breskan mat — og það er ástæðan fyrir því að eigendur nálægra veitingastaða eru afbrýðisamir. Lögreglan sem kom á staðinn tók með sér reikning upp á 4 pund sem var fyrir tveim kar- töflum með cilli og tveim gos- drykkjum. Samkvæmt lögum á kartafla ekki að kosta meira en 35 pence. Þeir sögðu að það skipti engu máli þó á kartöfluna væri settur góður skammtur af chillikjötkássu. „Ég sýndi þeim fram á kostsnaðinn af þessum rétti en þeir vildu ekki hlusta. Af einhverri ástæðu virtust þeir fastákveðnir í að handtaka mig.“ Enginn eftir heima til að passa barnabörnin „Ég sagði þeim að ég væri eina fullorðna manneskjan á staðnum og að ég hefði engan sem gæti hugsað um barnabörn- in mín sem væru í heimsókn hjá mér. Þau eru 10 og 11 ára en lögreglunni var alveg sama. Ég var neydd til að dvelja í klefa án vatns, matar eða salernisað- stöðu. Lögreglan svaraði því einu til að ég skvldi vera þakklát fyrir að þurfa ekki að dvelja í klefa með öðrum föngum." Morguninn eftir hlustaði hún orðlaus á þær furðulegu ákærur sem á hana voru bornar og á dóminn sem hún fékk fyrir. „Ég frétti af því að fyrir nokkrum dögum var þýskur ökumaður dæmdur í 6 rnánaða fangelsi fyr- ir að hafa nærri því drepið tvær manneskjur á Rhodes en ég fékk 5 mánuði útaf kartöflu. Er þetta réttlæti? „Mamma varð að segja mér þetta þrisvar sinnurn áður en ég trúði henni. Ég hélt að þetta væri fáránlegt grín," sagði dóttir Mollýar. „Það er auðsjáanlega verið að reyna að flæma hana burt. Allir innlendu veitinga- húsaeigendurnir eru afbrýði- samir Út í hana.“ Sunday Express/BK SK0P í VIKUL0KIN Oj barasta Sex ára gutfi kom heim til sín einn daginn með fullan munninn af tyggigúmmíi sem hann tuggði og tuggði. Mamma hans spurði hvar hann hefði fengið tyggjó. „Ég fann það úti á gangstétt hérna fyrir utan,“ svaraði hann og flýtti sér að beeta við: „en þetta er allt í lagi - ég þvoði það í polli.“ Sjö daga vika „Slæmt kvef væri ekki svo slæmt ef ekki kæmu til alls konar ráð velviljaðs fólks í kringum mann. Ég hef komist að því að með því að fara að þessum ráð- um þá tekur það u.þ.b. viku að læknast af kvefinu - án ráðanna tekur það sjö daga! þurrka alltaf undan skónum eftirleiðis! Eltur heim af ókunnri konu Gamli maðurinn var f læknis- skoðun og að henni lokinni var hann beðinn um að segja næsta manni að koma inn. Hann opnaði hurðina fram á biðstofu og sagði: „Næsti, gjörið svo vel!“ Hann fór síðan í frakkann sinn og lagði af stað heim. Þegar hann hafði gengið svo sem 100 metra varð hann var viö að hann var eltur. „Hvert erum við að fara?“ spurði konan á eftir honum - þetta var - „naesti" sjúklingurinn á biðstofunni. Það kom í Ijós að hún var þarna í fyrsta skipti og hélt að gamli maðurinn væri læknirinn! 66 VIKAN 0miRUClS B 475 820 287 MIKLIGARÐUR 0CULUS FJARÐARKAUP NÓATÚN SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS AMAR0 HAGKAUP SJAÐU ELSKAN ÞEIR HALDAST UPPI! S0KKABUXUR HNÉS0KKAR DIMUP MIKIÐ ÚRVAL í LITUM, ÁFERÐ 0G MUNSTRI UTS0LUSTAÐIR:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.