Vikan - 27.07.1989, Blaðsíða 13
5ITTHVAÐ
að verða atvinnumaður í knattspyrnu?
„Nei, ekki beint. Það hefur ekki heillað
mig hingað til að fara á fullt út í þetta. Ég
spila reyndar með sænska liðinu HACKEN
en það er ekki nema hálf atvinnumennska
ef svo má að orði komast. Fótboltinn er
ekki aðalvinnan hjá mér og mun eflaust
ekki verða. Mér hefur alltaf liðið vel hér á
klakanum þannig að ég er ekkert æstur í
að hverfa á vit atvinnumennskunnar í leit
að frægð og ffama. Ég fékk tækifæri í fyrra
og bauðst að spila í Noregi sem atvinnu-
maður en hafði ekki nægilegan áhuga á
þvi. Ég viðurkenni samt að ég er orðinn
svolítið þreyttur á að spila hér heima
þannig að tilboðið lfá HÁCKEN í Gauta-
borg kom á topptíma. Það verður væntan-
lega ágæt tilbreyting að komast eitthvað
annað og ég tala nú ekki um að prófa að
búa erlendis sem gerir manni bara gott.
Þetta víkkar sjóndeildarhringinn og gerir
mann reynslunni ríkari.“
Landsliðsandinn
aldrei slæmur
Svo við snúum okkur aðeins að landslið-
inu en þú hefur átt nokkuð tryggt sæti í
því síðastliðin ár. Hvernig er landsliðsand-
inn?
„Hann er alveg stórkostlegur að mínu
mati. Hann er kannski betri ef vel gengur
en þó aldrei slæmur. Það er ekki til rígur á
milli leikmanna og hópurinn er yflrleitt
stilltur inn á það sama þannig að liðsheild-
in nær vel saman í flestum tilfellum."
Hvernig eru keppnisferðir landsliðsins?
„Þær geta off verið erfiðar, sérstaklega
ef þær taka langan tíma. Þær hafa farið upp
í tvær vikur sem er eiginlega það erflðasta
og menn þá orðnir frekar þreyttir. Að
mínu mati er nóg að spila einn leik í einu
og koma heim á milli því menn verða
mjög þreyttir á að vera lengi erlendis. Það
getur líka komið niður á getu liðsins ef
menn fá ekki að slaka vel á milli lands-
leikja. Margir í landsliðinu eru fjölskyldu-
menn þannig að í raun geta þeir ekki verið
lengi erlendis í einu.“
Hvernig er aginn á liðinu rétt fyrir
landsleiki?
„Aginn hefur hingað til verið góður
enda þýðir ekkert annað ef árangur á að
nást í landsleikjum. Leikmönnum er sýnt
nokkuð mikið aðhald og að mínu mati er
það einungis góðs viti. Leikmenn virða
það líka fullkomlega við þá sem að baki
þeim standa og vita alveg að hverju þeir
ganga hverju sinni.“
Hvaða kosti þarf góður leikmaður að
hafa?
„Leikmenn eru nú svo ótrúlega misjafn-
ir enda eru til alls kyns leikmenn og hver
hefur sína kosti. Menn þurfa að vera mjög
ákveðnir og vita að hverju þeir ganga með
liðsheildina í huga. Ef menn ætla sér að
verða góðir þurfa þeir kannski að vera
pínulítið harðir við sjálfa sig og það skiptir
mjög miklu máli að vera útsjónarsamir,
það er að kunna að lesa leikinn til enda.
Þegar það síðan blandast saman við góða
tækni þá er kominn góður leikmaður."
Tóku Ghitu á orðinu
TEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON
LJÓSM.: VALDtS ÓSKARSDÓTTIR
_
Iviðtali, sem Vikan átti við Ghitu Nprby
síðastliðinn vetur, sagði leikkonan
meðal annars: „Hugsið ykkur ef ég á nú
kannski eftir að sitja íslenskan tölthest á
íslandi. Það yrði stórbrotið." Þeir hjá Eld-
hestum í Hveragerði voru ekki seinir á sér
að hafa samband við Ghitu er þeir höfðu
lesið viðtalið og buðu henni að koma til ís-
lands ásamt eiginmanninum og láta
drauminn rætast.
Þau hjónin voru því væntanleg til Iands-
ins síðastliðinn laugardag til að slást í för
með Eldhestum í ferð sem ber nafnið
„Perlur Suðurlands", en þær ferðir standa í
þrjá til sex daga.
í viðtalinu við Vikuna sagði Ghita við
blaðamanninn og ljósmyndarann: „Þið
eruð einu íslendingarnir sem ég hef hitt,
fýrir utan frú Vigdísi og Önnu Borg leik-
konu, en hins vegar þekki ég íslenska
hesta af eigin raun og þá elska ég. Að ríða
þeim úti í snjó og kulda og heyra þá frýsa
er alveg einstök tilflnning. Þeir hafa svo
sterk og skemmtileg sérkenni..."
„Hugsið ykkur
nú bara ef ég á
einhvern tímann
eftir að sitja
íslenskan
tölthest á
fslandi," sagði
Ghita Nörby í
viðtali við
Vikuna í vetur -
og Eldhestar
tóku hana á
orðinu.
Og nú ætti leikkonan sem sé að vera
búin að fá tækifæri til að njóta þess að ríða
íslenska hestinum í hans rétta umhverfi
eins og hún hafði þráð.
Eiginmaður Ghitu Nprby heitir Svend
Skipper og er píanóleikari. í gærkveldi,
miðvikudagskvöldið 26. júlí, ætíaði hann að
koma ffam í Norræna húsinu ásamt frúnni
og eiga „en hyggelig aften, hvor alle har
det rart“, eins og þau komust að orði.
Hann ætlar að leika á píanó og hún að lesa
sögur eftir H.C. Andersen og fleiri. Dag-
skrána hafa þau nefht „Lidt om os — lidt
om os allesammen". □
Hcrfnfirslc stúlka til Parísar
- í boði Vikunnar, Flugleiða og Pierre Cardin
egar dregið var úr innsendum seðlum
í lesendakönnun Vikunnar 13. júlí
síðastliðinn kom upp nafn 24 ára gamallar
stúlku í Hafnarfirði, Ágústu Steingríms-
dóttur, Stekkjarhvammi 28. Eftirsóknar-
verð ferð fyrir tvo til Parísar í boði Flug-
leiða, Vikunnar og tískukóngsins Pierre
Cardin kom því í hennar hlut. Ágústa hélt
utan sunnudaginn 23- júlí og flaug að sjálf-
sögðu á Saga Class farrými. í París tók á
móti henni blaðamaður og ljósmyndari
Vikunnar, Gunnlaugur Rögnvaldsson, og
ók henni á hið glæsilega Park Avenue
Hotel. Um kvöldið beið þeirra svo kvöld-
verður í Espace, helsta samkomustað
glæsifólksins í París. Kvöldið eftir var svo á
dagskránni kvöldverður í hinum heims-
ffæga veitingastað Maxim ’s. Báðir staðirnir
eru í eigu Cardin. Ennffemur var svo
fyrsta morguninn á dagskránni skoðunar-
ferð um borgina í lúxusútgáfu af Peugeot
505, sem biffeiðaverksmiðjurnar lögðu til
ásamt bílstjóra og leiðsögumanni.
Síðast en ekki síst var Ágústu boðið á
tískusýningu hjá Pierre Cardin, aðra af
tveimur á árinu, en sýningarnar eru aðeins
fyrir fjölmiðlafólk og sérstaka boðsgesti
aðra.
Parísarferð Ágústu er því ævintýri sem
fáir eiga kost á að upplifa. Að sjálfsögðu
segir Vikan frá flottheitunum í máli og
myndum í næstu tölublöðum.
Au Pair í Ameríku
Löglega leiðin til Bandaríkjanna
Við leitum að fólki sem getur unnið í hlutastarfi við að tala við
væntanlega umsækjendur og aðstoða við að velja þá.
Þetta starf getur hentað vel þeim sem eru vanir að taka viðtöl
og hafa virkilegan áhuga á menningarlegum samskiptum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi síma.
Hafir þú áhuga á starfinu, vinsamlegast hafðu þá samband
við:
Dorothy Stuart, framkvæmdastjóra,
37 Queens Gate, London, SW7 5HR
Sími í London: 581-2730.
15. TBL 1989 VIKAN 13