Vikan - 27.07.1989, Blaðsíða 46
MEGRUN
Lífræn aðferð til
staðbundinnar grenningar
TEXTI:
SIGRÚN HARÐARDÓTTIR
„Body-Design“ megrunar-
kerfið, sem nýkomið er til
landsins, er lífræn aðferð til
staðbundinnar grenningar.
Krem eru borin á svæðin sem
fólk vill grenna og notað er
plast sem vafið er um svæðin.
Framleiðendur mæla með
því að fyrst sé farið í heitt bað
og jafnvel nudduð þau svæði,
sem grenna á, til þess að örva
blóðrásina. Svo er rétt að fara á
salemið áður en hafist er
handa við meðferðina. Kremið
er borið á og nuddað inn í
hörundið án þess þó að það
hverfi alveg inn í húðina. Næg-
ir þriðjungur úr glasinu á lík-
amann hverju sinni. Kremið
inniheldur meðal annars hesta-
kastaníu, nornahesli, berg-
fléttu og fleira. Efni úr þessum
jurtum auka meðal annars
þvaglát og hafa áhrif á bláæða-
kerfið.
Næsta skrefið er að vefja sig
plasti frá ökklum upp að
brjóstum. Svo er hvíld í
klukkutíma. Mælt er með að
liggja með kodda undir höfði
og fótum. Ekki er gott að
svitna meðan plastið er utan
um líkamann því við það
minnkar verkun kremsins.
Eftir klukkustund á að
klippa plastið sundur og
nudda því sem eftir er af kremi
á húðinni vel inn í hana. Ef tek-
ið er mál af þeim svæðum, sem
á að grenna, fyrir og eftir með-
ferðina er hægt að fylgjast með
breytingum.
Meðferðin er svo tekin á 5—
8 daga fresti þangað til tilætl-
uðum árangri er náð. Milli
meðferða er notað annað
krem sem inniheldur einnig
efni úr jurtum. Það er hlaup
sem á að nudda alveg inn í
hreina húðina kvölds og
morgna.
Þeir sem skyldu varast að
nota Body-Design meðferðina
eru sykursjúkir, ófrískar konur
og konur með barn á brjósti,
fólk með æðahnúta og þeir
sem hafa of háan blóðþrýsting
skyldu varast að vefja plastinu
mjög þétt utan um sig. Ekki á
að nota meðferðina meðan á
blæðingum stendur."
• LJÓSMYNDASAMKEPPNI KODAK EXPRESS GÆÐAFRAMKÖLLUNAR OG VIKUNNAR •
17 myndavélar o.fl.
Eina skilyrðið er að notuð sé Kodak
filma og framkallað hjá Kodak Express
Gæðaframköllun. Hún er á eftirtöldum
LATTU OKKUR
FRAMKALLA
SUMARBROSIÐ!
Allir geta tekið pátt í Sumarbrosinu,
hinum einfalda sumarleik. Hann felst
einfaldlega í því að skila inn myndum
af sumarbrosi (fólki eða dýrum) eða
broslegri mynd.
í hverjum mánuði verða birtar fjórar
athyglisverðustu myndirnar og besta
mynd sumarsins verður valin í september
úr öllum innsendum myndum. Vegleg
verðlaun eru í boði: utanlandsferð.
• Verslanir Hans Petersen, Bankastræti,
Glæsibæ, Austurveri, Kringlunni og
Lynghálsi • Ljósmyndaþjónustan,
Laugavegi 178 • Kaupstaður, Mjódd
• Veda, Hamraborg, Kópavogi • Filmur
og Framköllun, Strandgötu, Hafnarfirði
• Ljósmyndahúsið, Dalshrauni 13,
Hafnarfirði • H(jómval, Keflavík
• Bókaverslun Andrésar Níelssonar,
Akranesi • Bókaverslun Jónasar
Tómassonar, (safirði • Pedrómyndir,
Hafnarstræti og Hofsbót, Akureyri
• Nýja Filmuhúsið, Hafnarstræti,
Akureyri • Bókabúð Brynjars,
Sauðárkróki • Vöruhús KÁ, Selfossi.
Lesið nánar um Sumarbrosið í Vikunnil